Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Page 48
48 28. september 2018LÍFSSTÍLL - KYNLÍF
Ég skal sjá um að
rassskella kvikindið
É
g veit ekki hvort þetta á erindi í tölvupóst, en
þetta er mál sem ég einhvern veginn get ekki
hugsað mér að reifa við neinn mér tengdan,
en er samt að ræna mig sálarrónni
Mig vantar alveg sárlega hlutlaust álit á atriði
sem er búið að angra mig mikið upp á síðkastið.
Málið er að í vor hóf ég frekar lauslegt „samband“
við mann sem ég hitti á Tinder og leist vel á. Í fyrsta
skiptið sem við stunduðum kynlíf sagði hann mér
fljótlega að leik loknum að ég ætti endilega að hug-
leiða alvarlega að fara í brjóstastækkun – ég yrði svo
miklu meira sexí þannig!
Nú er ég í frekar góðum málum líkamlega miðað
við rúmlega fertuga konu; ég er grönn og frekar há
og í góðu formi og bara frekar lagleg, en hef aldrei
verið brjóstamikil (B breyttist í A eða minna fljót-
lega eftir brjóstagjöf fyrir 21 ári og hefur aldrei kom-
ið til baka). Ég er líka frekar axlabreið og með stóran
brjóstkassa sem hjálpar heldur ekki til. Samt er ég
ekki marflöt – en ég get ekki sagt að brjóstahaldara-
kaup séu nein skemmtun fyrir mig; á tvö stykki sem
eru örugglega orðin fimm ára.
Ég tók þetta mjög nærri mér og leið mjög illa
yfir þessu og var á tímabili öskureið, en við héldum
samt áfram að hittast og alltaf var hann að núa mér
upp úr þessu (jafnvel í miðjum klíðum) – auk þess
sem hann tók fram að hann hefði engan áhuga á
mér nema fyrir kynlífið. Við vorum samt ágætir vin-
ir og spjölluðum mikið saman – en nýlega ákvað ég
að slíta þessu því ég get ekki stundað kynlíf án þess
að bindast viðkomandi tilfinningalega
Það versta er kannski að fyrir þremur árum sleit
ég sambúð við mann sem lét eins út af brjóstunum
á mér – hann var reyndar fíkill og fyllibytta líka sem
var nú aðalástæða þess að ég fór. Nú var sem sagt
kominn annar í viðbót sem var svona brútal hrein-
skilinn (án þess að ég hafi beðið um álit) á þennan
útlitsgalla minn. Þar áður hafði ég verið gift í þrettán
ár og sá maður hafði alltaf blásið á áhyggjur mínar
af brjóstunum og sagt að ég væri fín eins og ég væri,
ég þyrfti ekki að stækka þau fyrir hann.
Mér hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel á deit-
markaðnum síðastliðin þrjú ár, hef ekki orðið neitt
meira en „booty call“ hjá neinum og nú er ég far-
in að ímynda mér að karlmenn flýi bara ef ég fer
úr að ofan og ég verði að leggjast undir hníf-
inn ef ég ætli ekki að verða ein til æviloka. Ég
meina, vill einhver elska brjóstalausa konu?
Ég á pantaðan tíma hjá lýtalækni eftir
nokkra daga, en eftir margra vikna um-
hugsunartíma þá eru tilfinningar mín-
ar gagnvart þessu samt afar blendnar.
Mun mér líða eitthvað betur eða líka
betur við sjálfa mig? Ég fór síðast í
svoleiðis viðtal fyrir fjórum árum,
en guggnaði á að fara í aðgerðina.
Hluta af mér langar í aðgerðina,
en í aðra röndina er ég sárreið
við sjálfa mig að ætla að lúffa
fyrir hégóma í einhverjum fá-
bjánum.
Verður þetta eitthvað sem
peppar sjálfkrafa upp á sjálfs-
traustið, sem er eiginlega brotið í þús-
und mola þessa dagana?
Með fyrirfram þökk,
Harðbrjósta Valkyrjan
É
g er brjáluð og það
sýður gjörsamlega
á mér. Mig langar að hringja í þennan
sataníska Tinder-mann og gefa honum
orð í eyra, mjög mörg orð raunar. Hvers kon-
ar framkoma er þetta við konu sem ákveður að
deila líkama sínum, tíma og tilfinningum með
honum? Djöfuls dratthali að voga sér að gagn-
rýna líkama þinn á þennan hátt. Það er morgun-
ljóst að svona maður hefur engan áhuga á ÞÉR
heldur vill hann hafa holdlega runkmúffu af
mjög ákveðinni stærð til að stinga sínum óverð-
skuldaða skaufa í og hrista hann til. Og hann á
ekkert betra skilið fyrr en hann lærir mannasiði!
Ef álíka drullusokkur slysast einhvern tíma
aftur upp í ból hjá þér ætla ég að biðja þig
lengstra orða að sparka honum fram úr, og það
fast og hratt! Gerðu kröfur um almenna kurteisi
og falleg samskipti. Ef einhver nær honum ekki
upp vegna þinna prýðilegu A-brjósta er það
HANN sem á við vandamál að stríða og þarf að
eiga við það á sinn hátt.
Ég lendi oft í að hughreysta menn sem telja
sig vera með of lítil typpi og halda að þeir muni
aldrei finna konu sem getur sætt sig við þá
eins og þeir eru. Þá segi ég blíðlega að ef typpi
þeirra sé það sem geri útslagið, og þeirra helsti
mannskostur, sé nú ekki mikið varið í þá. Það
sama segi ég við þig – ef brjóstin eru það sem eiga
að gera þig að girnilegri konu, frábærri mann-
eskju og skemmtilegri ástkonu getur varla margt
annað verið í
gangi. Úr bréfi þínu les ég hins vegar
allt annað – þú hefur HEILMIKIÐ til brunns að
bera og ert greinilega bráðgreind og glæsileg
kona.
Prófaðu að setja bestu vinkonu þína í sporin
þín. Hvað mundirðu ráðleggja henni? Að leggj-
ast undir hnífinn? … Ég hélt ekki!
Vertu stolt af því sem þú hefur og gerðu
kröfur, kona! Ef þú lætur fylla brjóstin þín af
svona ástæðu er alls ekki lík- legt
að sjálfsmynd þín styrkist.
Spáðu frekar í aðrar leiðir
til að styrkja þig og æfðu
þig í að setja mörk. Vertu
góð við þig!
Ég skal sjá um að rass-
skella þetta kvikindi ef
ég rekst einhvers staðar
á hann!
Baráttu-
kveðjur,
Ragga
Sæl Ragga
Elsku, elsku Valkyrja
Ragnheiður Eiríksdóttir
er hjúkrunarfræðingur
og kynlífsráðgjafi.
raggaeiriks.com
raggaeiriks@gmail.com
„ Í fyrsta skiptið sem við
stunduðum kynlíf sagði hann
mér fljótlega að leik loknum að ég
ætti endilega að hugleiða alvarlega
að fara í brjóstastækkun – ég yrði svo
miklu meira sexí þannig!