Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2018, Síða 9
MENNING 928. september 2018
Leikhóparnir Miðnætti og Lost
Watch fyrir barnasýninguna
Á eigin fótum í Tjarnarbíó;
leikstjóri Agnes Wild.
Leikendur eru bæði fólk
og brúður. Sagan gerist
fyrir löngu og segir með
látbragði, tónlist og frum
legri sviðsvinnu, en nánast
orðalaust, frá því þegar Ninna
fer sex ára í sveit til vandalausra.
Hugarangri barnsins er komið vel
til skila á hæfilega kímilegan hátt
og afar vel sýnt hvernig hún aðlag
ast smám saman lífinu í sveitinni.
Fyrst eru það dýrin á bænum sem
ná til hennar. Þau urðu til úr alls
konar tilfallandi dóti fyrir framan
augu heillaðra leikhúsgesta og
voru gríðarlega skemmtilega gerð.
Þetta er spennandi og fróðleg saga
sem gaman er að tala um við börn
auk þess sem hún geymir sanna
leikhústöfra.
Katrín Halldóra Sigurðardóttir,
Gísli Örn Garðarsson og Ólafur
Egill Egilsson fyrir Elly í uppfær-
slu Vesturports og Borgarleik-
hússins.
Lífshlaupi einnar dáðustu dægur
lagasöngkonu landsins eru gerð
framúrskarandi skil í hugvitsam
legu handriti Gísla Arnar og Ólafs
Egils. Þar gegnir tónlistin lykilhlut
verki, en höfundarnir hafa valið
ríflega fjörutíu lög frá ferli Ellyjar
sem flutt eru að hluta eða í heild til
að skapa réttu stemninguna hverju
sinni. Gísli Örn heldur sem leik
stjóri utan um alla þræði uppfær
slunnar af miklu öryggi og sterkri
listrænni sýn þar sem hjartað og
húmorinn ráða ríkjum í þeim leik
húsgaldri sem skapaður er. Katrín
Halldóra geislar í hlutverki Ellyjar,
enda býr hún yfir miklum sviðs
sjarma, góðum kómískum tíma
setningum og stórkostlegri rödd
sem snert hefur streng í hjarta
þjóðarinnar.
Eggert Þorleifsson fyrir tit-
ilhlutverkið í Föðurnum eftir
Florian Zeller undir stjórn Krist-
ínar Jóhannesdóttur í Kassa
Þjóðleikhússins.
Eggert leikur verkfræðinginn
André, reffilegan fullorðinn mann
sem þolir illa tilraunir dóttur sinn
ar til að ráða handa honum hús
hjálp. En fljótlega kemur í ljós að
André stríðir við minnisglöp sem
verða æ verri þegar líður á verk
ið. Áhorfendur upplifa sterkt líð
an hans í viðsjárverðum heimi þar
sem allt er ótryggt, ástvinir koma
og hverfa, ókunnugt fólk legg
ur undir sig híbýli hans, er hann
heima hjá sér eða annars stað
ar? Það er jafnvel talað við hann
eins og hann sé fáviti. Eggert sýn
ir glöggt hæga leið manns inn í
tómið, yfirborðshroka hans með
an hann heldur ákveðnu sjálfsör
yggi, vaxandi óöryggi uns kemur
að hjartaskerandi niðurbroti að
lokum.
Brynhildur Guðjónsdóttir fyrir
hlutverk sitt í Guð blessi Ísland
eftir Mikael Torfason og Þorleif
Örn Arnarsson í leikstjórn Þor-
leifs Arnar Arnarssonar á Stóra
sviði Borgarleikhússins.
Brynhildur fer með hlutverk Dav
íðs Oddssonar í verki sem byggt
er á Rannsóknarskýrslu Alþingis.
Hún birtist fyrst í verkinu stand
andi á þaki líkbíls sem ekur fram
á sviðið og ryður um leið frá sér
gríðarlegum fjölda af vandlega
uppröðuðum hvítum garðstól
um. Margt mátti lesa úr þessari
innkomu sem sannarlega var ein
sú magnaðasta á árinu. Bryn
hildur nýtti sér kraft innkomunn
ar og hélt áhorfendum í hendi
sér til loka með sívaxandi dýpt og
óvæntum vinklum, allt þar til hún
afklæddist hlutverkinu í sýningar
lok. Persónusköpun hennar í hlut
verki Davíðs var svo tæknilega
fáguð, margslungin og skemmti
leg að ekki verður séð að nokkur
hefði getað betur farið í hans gervi.
Tyrfingur Tyrfingsson, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Ólafur
Egill Egilsson fyrir Kartöfluæt-
urnar á Litla sviði Borgarleik-
hússins.
Tyrfingur hefur einstakt lag á
að beina sjónum áhorfenda að
flókinni dýnamík ofbeldissam
banda. Í Kartöfluætunum mat
reiðir hann meðvirkni, stjórnsemi
og leyndarhyggju með sótsvörtum
húmor, laus við alla pólitíska rétt
hugsun. Uppfærsla Borgarleik
hússins var kraftmikil og ögrandi
undir úthugsaðri leikstjórn Ólafs
Egils þar sem persónur fóru aldrei
stystu leið að markmiði sínu. Sig
rún Edda hafði meistaraleg tök á
hinni margræðu ættmóður sem
notaði óhikað sjarma sinn og kyn
þokka til að sveigja aðra að vilja
sínum. Valdbeitingin var klædd
sem umhyggja, en tilfinningaleg
ur kuldi persónunnar og andleg
vannæring leyndi sér ekki í með
förum Sigrúnar Eddu.
Í dómnefnd sátu Bryndís Lofts-
dóttir, Silja Björk Huldudóttir og
Silja Aðalsteinsdóttir
RÁIN
Hafnargata 19a
Keflavík
S. 421 4601
FERSK OG FALLEG
ÞJÓNUSTAR
ÞIG Í MAT OG
DRYKK
TILNEFNINGAR TIL MENNINGARVERÐLAUNA DV 2017
Leiklist
Tyrfingur Tyrfingsson, Sigrún
Edda Björnsdóttir og Ólafur
Egill Egilsson eru tilnefnd fyrir
verkið Kartöfluæturnar.
Eggert Þorleifsson
Leikhóparnir Miðnætti og Lost
Watch eru tilnefndir fyrir barnasýn-
inguna Á eigin fótum.
Framhald á síðu 10
Íris Ellenberger