Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 42
Vikurnar fyrir jólin eru yfirleitt annasamasti tími ársins hjá Jóa Fel en hann hefur starfað
við bakstur í 35 ár. „Það er alltaf
jafn gaman þegar jólin nálgast og
þá lengjast gjarnan vinnudagarnir.
Eftir öll þessi ár er þetta alltaf jafn
skemmtilegur tími og það er svo
gaman að sjá viðskiptavini koma til
okkar og sjá gleðina skína úr and-
litum þeirra. Það er bara eitthvað
við það að finna ilminn af nýbök-
uðum jólakökum koma úr ofninum
þannig að þótt hraðinn og spennan
sé mikil er þetta bara svo gefandi.“
Hann segir ótrúlega lítið hafa
breyst í gegnum tíðina þegar
kemur að jólabakstri landsmanna.
„Við erum að nota að mestu leyti
sömu uppskriftir sem mömmur og
ömmur okkar notuðu, hvort sem
það er í bakstri heima fyrir eða í
bakaríum. Jólahefðirnar eru svo
sterkar hjá flestum og þar má helst
engu breyta. Fyrir marga koma
jólin ekki nema hin eða þessi kaka
sé bökuð heima fyrir.“
Vinsælar kökur
Ein mest selda jólakakan hjá Jóa
Fel er brún hnoðuð lagkaka með
smjörkremi. „Ég ólst upp við hana
á æskuheimili mínu og þegar ég
byrja að baka hana koma jólin hjá
mér. Ef ég ætti að nefna einhverjar
nýjungar þá eru það helst Söru
Bernhard kökurnar sem margir
tengja við jólin í dag. Við seljum á
milli 15 og 20 þúsund Sörur fyrir
jólin og höfum vart undan. Fyrir
nokkrum árum bjó ég til nýja
tegund af Sörum sem ég kalla Dívur.
Þær eru með hvítu súkkulaði og
vanillukremi og svo hjúpaðar með
hvítu súkkulaði. Þær verða vinsælli
með hverju árinu en þær fást ein-
göngu í bakaríunum okkar. Svo
verð ég að minnast á Frostrósina
okkar sem er súkkulaði tryffle kaka
með hindberjum og krókanti. Við
bjóðum alltaf upp á kökuna fyrir
jólin, hún er stórglæsileg og geymist
vel, enda er þetta eins og einn stór
konfekt moli.“
Negulkökur mömmu í
uppáhaldi
Eins og gefur að skilja bakar Jói
lítið heima fyrir jólin enda sérlega
annasamur tími. „En ég á alltaf
brúna lagköku heima og eitthvað
af smákökum. Uppáhaldið mitt er
þó negulkökurnar sem mamma og
amma bökuðu hér áður fyrr. Núna
eru jólakökurnar borðaðar allan
desembermánuð en áður fyrr bara
rétt yfir jólin. Landsmenn vilja hafa
jólahátíðina lengi og helst njóta
næstum allan desember, borða
góðan mat og fá sér kaffi og smá-
kökur.“
Jói Fel rekur fjögur bakarí á
höfuð borgarsvæðinu, við Hring-
braut í Reykjavík, í Litlatúni í
Garðabæ, í Smáralindinni í Kópa-
vogi og í Holtagörðum í Reykjavík
en þar fer auk þess öll bökun fram.
Bakarí Jóa Fel selja á milli 15 og 20 þúsund Sörur fyrir
hver jól og hafa starfsmenn vart undan við að baka þær.
Jólasnúðarnir eru bæði bragðgóðir og fallegir í útliti.
Fyrir nokkrum árum bjó Jói Fel til nýja tegund af Sörum
sem kallast Dívur. Þær eru með hvítu súkkulaði og van-
illukremi og svo hjúpaðar með hvítu súkkulaði.
Frostrós er súkkulaði tryffle kaka með hindberjum og
krókanti. Glæsileg kaka sem er eins og stór konfektmoli.
Jói Fel ásamt Bjarna Bjarnasyni bakara, samstarfsfélaga til næstum 20 ára.
Framhald af forsíðu ➛
,,Við erum að
nota að mestu
leyti sömu
uppskriftir sem
mömmur og
ömmur okkar
notuðu, hvort
sem það er í
bakstri heima
fyrir eða í
bakaríum,“ segir
Jói Fel. MYND/SIG-
TRYGGUR ARI
Það er bara eitt-
hvað við það að
finna ilminn af nýbök-
uðum jólakökum koma
úr ofninun.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L AU G A R DAG U R
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-E
C
2
0
2
1
A
F
-E
A
E
4
2
1
A
F
-E
9
A
8
2
1
A
F
-E
8
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K