Fréttablaðið - 12.12.2018, Page 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Hljóðbókin með sögunni og
tónlistinni í flutningi Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands fæst í
streymi á forlagid.is
Sögurnar um Maxa hafa
heillað unga sem aldna
víða um heim
NÝ ÆVINTÝRI MAXA
NÝ ÆVINTÝRI MAXA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Helgar 11–19 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
„Hvar sem
tónlist hljómar,
þar verða
allir glaðir!“
ALÞINGI Frumvarp um veiðigjöld var
afgreitt á Alþingi í gær en með lög-
unum er aðferðafræði við útreikning
gjaldsins breytt. Verður gjaldtakan
nú byggð á upplýsingum sem eru
nær í tíma en áður.
Breytingartillaga Viðreisnar,
Samfylkingarinnar, Pírata og Flokks
fólksins var felld en hún gerði ráð
fyrir að gildandi lög yrðu framlengd
um eitt ár. Þannig gæfist meiri tími
til að vinna málið betur. Alls greiddu
32 þingmenn atkvæði með frum-
varpinu, 16 greiddu atkvæði gegn því
og tíu greiddu ekki atkvæði.
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, sagði að samþykkt
málsins fæli í sér „mjög sérkenni-
lega og jafnvel nöturlega afstöðu til
hugmynda um réttlæti“. Verið væri
að létta álögum af fyrirtækjum sem
hefðu greitt mikinn arð á síðustu
árum.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, for-
maður atvinnuveganefndar, sagði
að verið væri að „afkomutengja
veiðigjöld í rauntíma og tryggja
þjóðinni sanngjarna auðlindarentu
af sameiginlegri auðlind þjóðar-
innar“. – sar
Frumvarp
um veiðigjöld
samþykkt
DómsmáL Hemn Rasul Hamd var
í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
dæmdur í tveggja og hálfs árs fang-
elsi fyrir að nauðga konu á klósetti
skemmtistaðarins Hressó í febrúar
2016.
Hamd játaði við aðalmeðferð
málsins að hafa átt samfarir við
konuna á klósettinu en hélt því fram
að það hefði verið með vilja beggja.
Var honum samkvæmt ákæru gefið
að sök að hafa nauðgað konunni,
beitt hana ofbeldi og notfært sér að
hún gat ekki spornað gegn verknað-
inum. Konan bar því þó við að hafa
aðeins drukkið þrjá bjóra umrætt
kvöld, einn í heimahúsi og tvo á
skemmtistaðnum en að hafa fundið
skyndilega verulega á sér eftir þann
síðari. Vitni báru því öll við að
ástand konunnar hefði ekki verið í
samræmi við áfengisneyslu hennar
og gefið í skyn að hugsanlega hefði
konunni verið byrluð ólyfjan.
Dómurinn mat brotaþola hafa
gefið staðfastan framburð, studdan
öðrum sönnunargögnum og því
bæri að sakfella Hamd. Auk refs-
ingar þarf hann að greiða konunni
1,5 milljónir í miskabætur. – smj
Nauðgaði konu á klósetti Hressó
Auk tveggja og hálfs árs
fangelsisvistar þarf maður-
inn að greiða konunni 1,5
milljónir í miskabætur
sAmGÖNGUr „Við þurfum að fá að
vita hvað meirihlutinn er að hugsa
því ef það er ætlunin að þvinga þetta
í gegn þá hefur það auðvitað áhrif á
það hvernig við högum okkar þing-
störfum,“ segir Hanna Katrín Frið-
riksson, þingflokksformaður Við-
reisnar og fulltrúi í umhverfis- og
samgöngunefnd, um breytingartil-
lögu meirihluta nefndarinnar um að
koma á veggjöldum.
Nefndin fundaði um málið í gær-
morgun og aftur í kvöldverðarhléi
þingfundar. Samkvæmt starfs-
áætlun á þingið að ljúka störfum
fyrir jólafrí á föstudag og því ljóst
að naumur tími er til stefnu.
Jón Gunnarsson, settur formað-
ur nefndarinnar, sagði síðdegis í
gær að enn væri verið að vinna að
útfærslu þessara hugmynda. „Við
erum að vinna í þessu nefndaráliti
og erum að stefna að því að fara sem
lengst með það í dag.“
Hanna Katrín segir að Viðreisn
hafi það á stefnuskrá sinni að skoða
gjaldtöku sem leið til að flýta sam-
gönguframkvæmdum en segir ekk-
ert liggja á nú.
„Þetta er samfélagsbreyting og ég
vil bara fá tækifæri til að ræða við
okkar bakland og kjósendur. Við
erum með mjög einfalda kröfu um
að málið verði saltað fram yfir ára-
mót. Það breytir engu hvort þetta
verði afgreitt í febrúar nema því að
við getum rætt þetta í sátt.“
Hún segir að minnihlutinn eigi
erfitt með að setja sig inn í málið
því á hverjum fundi komi uppfært
skjal frá meirihlutanum. Þá liggi
ekki nákvæmlega fyrir hvert fjár-
munirnir fari.
Björn Leví Gunnarsson, fulltrúi
Pírata í nefndinni, segir að um sé að
ræða svo mikla breytingu að hann
telji að um nýtt þingmál sé að ræða.
„Þetta er sett fram sem hluti af
nefndaráliti meirihlutans sem við
getum ekki gert breytingartillögur
við. Þarna eru fullmótuð tilmæli til
ráðherra um hvernig eigi að haga
veggjöldum. Það stendur til að setja
á veggjöld á allar stofnbrautir út úr
Reykjavík, öll jarðgöng og vegna
einstaka framkvæmda.“ Til standi
að fjármagna 76-77 milljarða fram-
kvæmdir með veggjöldum fram til
ársins 2033.
„Ráðherrann kallar eftir kjarki og
þori til að klára þetta. Hvers konar
kjarkur og þor er það hjá honum að
láta okkur gera þetta?“
sighvatur@frettabladid.is
Spyr um kjark ráðherra þegar
komi að upptöku veggjalda
Gert er ráð fyrir að veggjöld verði tekin upp á öllum stofnleiðum til og frá
höfuðborginni og í öllum jarðgöngum landsins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þingmenn stjórnarand-
stöðunnar gagnrýna að
koma eigi veggjöldum
inn í samgönguáætlun í
miklum flýti. Ekkert liggi
á og nauðsynlegt sé að
ræða málið betur.
FÍB: Stórfelldar
skattahækkanir
„Við gerum mjög alvarlegan
fyrirvara við þetta enda um
stórfellda skattahækkun að
ræða ef af verður. Fyrir utan að
þarna eru alls konar töfralausnir
boðaðar en enginn kostnaður
nefndur,“ segir Runólfur Ólafs-
son, framkvæmdastjóri FÍB.
Hann bendir á að samkvæmt
samgönguáætlun sé gert ráð
fyrir að verja 29 milljörðum
í nýframkvæmdir og viðhald
en að ríkið innheimti um 80
milljarða af bílum og umferð
árlega. „Þar af eru 40 milljarðar
í notendagjöld af bifreiðum og
við teljum eðlilegt að þessum
fjármunum verði varið til vega-
framkvæmda.“
Þá hefur hann áhyggjur af
kostnaði við eftirlit og inn-
heimtu veggjalda. „Hver króna
er svo illa nýtt í svona kerfi, sér-
staklega þegar þú ert með svona
fáa notendur.“
Rúnar Garðarsson, formaður
hópbílanefndar SAF, segir að
ekkert samtal hafi átt sér stað
við stjórnvöld um hugmyndir
um veggjöld. „Ég lýsi yfir miklum
áhyggjum af þessum hug-
myndum. Öll svona gjöld þýða
auðvitað aukinn kostnað.“
Kristján Þór
Júlíusson sjávar-
útvegsráðherra.
Hressingarskálinn er við Austurstræti 20 í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 2 . D e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U D A G U r4 f r é t t I r ∙ f r é t t A b L A Ð I Ð
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-9
4
C
C
2
1
B
6
-9
3
9
0
2
1
B
6
-9
2
5
4
2
1
B
6
-9
1
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K