Fréttablaðið - 12.12.2018, Side 8
Pantaðu
á kronan.is fyrir
15. desember
Kemur í verslanir
21. des.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur og/eða myndabrengl.
Pantaðu þína
Wellington
3399 kr.pk.
Vegan Wellington, 800 g
Samgöngur Vaxtakostnaður vegna
Vaðlaheiðarganga verður um 700
milljónir á næstu árum ef marka má
orð formanns stjórnar Vaðlaheiðar
ganga hf. um framvindu verkefnis
ins. Opna á göngin formlega þann
12. janúar næstkomandi en for
svarsmenn ganganna vonast eftir
að geta hleypt umferð um göngin
fyrir jól.
Stjórn Vaðlaheiðarganga kynnti
veggjaldafyrirkomulag ganganna á
fundi í gær. Stakt gjald fyrir fólks
bifreið mun verða 1.500 krónur en
ódýrast verður að kaupa hundrað
ferðir á 700 krónur ferðina. Gjald
fyrir stórar bifreiðar, yfir 3.500 kíló,
verður 6.000 krónur.
Ekki verður mönnuð gjald stöð í
göngunum heldur verður ný tækni
notuð þar sem hægt er að kaupa
staka ferð í gegnum snjallforrit.
Einnig er hægt að skrá sig í áskrift
og kaupa ferðir fyrirfram á vefsíðu
fyrirtækisins, veggjald.is. Hver ein
staklingur getur skráð sig fyrir
þremur bifreiðum. Raftákn og Efla
hafa hannað kerfi sem gerir kaup
á fargjöldum auðveldari fyrir ein
staklinga.
Hilmar Gunnlaugsson, formaður
stjórnar Vaðlaheiðarganga, segir að
endanlegur kostnaður við göngin
muni liggja í kringum 17 milljarða
króna og samkvæmt útreikningum
fyrirtækisins ætti að vera hægt að
greiða upp lánið á um 28 árum.
Einnig sagði hann að vextir af lang
tímalánum verði ekki hærri en 4,2
prósent.
„Þegar verður komin reynsla á
rekstur ganganna munum við fara
í langtímafjármögnun og þá fyrst
vitum við hvaða vextir bjóðast
okkur. Væntingar okkar eru hins
vegar að þeir verði ekki meiri en
4,2 prósent,“ segir Hilmar. „Við
byggjum okkar áætlun á spá Vega
gerðarinnar um umferð og svo
gerum við ráð fyrir sömu aukningu
og Vegagerðin árlega.“
Ef vextir af 17 milljörðum verða
um fjögur prósent er líklegt að
vaxtakostnaðurinn hlaupi á hund
ruðum milljóna
króna.
Mikill vatns
elgur í göngunum,
með bæði heitu og
köldu vatni, gerði
g a n g a m ö n n u m
erfitt um vik.
Va t n s e l g u r i n n
kom ekki fram
í t i lraunabor
unum á sínum
tíma þrátt fyrir
að bergið í Vaðla
heiðargöngum
hafi verið meira
rannsakað en í
Hvalfjarðargöng
unum á sínum tíma.
Umferð um svæðið hefur aukist
um 60 prósent frá því ákveðið var
að hefja framkvæmdir við göngin.
Sú aukning, sem er að miklu leyti
vegna aukinna umsvifa í ferða
þjónustu, kemur sér afar vel fyrir
framkvæmdaraðila en án hennar
væri ljóst að tekjurnar myndu aldrei
standa undir kostnaðinum.
sveinn@frettabladid.is
Vaxtakostnaður 700 milljónir
Göngin opna 12. janúar næstkomandi. Fréttablaðið/auðunn
Þegar komin verður
reynsla á rekstur
ganganna munum við fara í
langtímafjár-
mögnun og þá
fyrst vitum
við hvaða
vextir bjóðast
okkur.
Hilmar Gunnlaugsson,
formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga
4,2%
er ósk formanns stjórnar að
verði hæstu mögulegu vextir
sem fyrirtækið fái á lang-
tímaláni.
Vaðlaheiðargöng verða
opnuð 12. janúar en
vonast er til að umferð
verði hleypt um göngin
fyrir jól. Áætlað er að
kostnaður við verkið
endi í um 17 milljörðum
króna. Vaxtakostnaður
mun nema hundruðum
milljóna króna.
Bandaríkin Donald Trump, for
seti Bandaríkjanna, fékk Nancy
Pelosi og Chuck Schumer, leiðtoga
Demókrata í fulltrúa og öldunga
deild þingsins, á sinn fund í gær til
þess að ræða um fjármögnun fyrir
byggingu veggjar á landamærunum
við Mexíkó. Trump fer fram á fimm
milljarða dala viðbót en Demó
kratar virðast ekki ætla að láta það
eftir forsetanum enda lengi talað
gegn veggnum.
Byggingin var helsta kosninga
loforð Trumps í forsetakosninga
baráttunni. Þá sagði hann reyndar
að Mexíkó myndi að lokum greiða
fyrir byggingu veggjarins. Hann
hefur þó ekki útskýrt þá hugmynd.
Samkvæmt breska ríkisútvarpinu
var mikil togstreita á fundinum.
Demókratarnir komu því á fram
færi að fimm milljarðar væri of
mikið. Náist ekki að koma málinu í
gegnum þingið er hins vegar ljóst að
alríkisstjórninni, það er öllum þeim
stofnunum sem hún rekur, kunni
hreinlega að verða lokað.
„Ef við fáum ekki það sem við
viljum, hvort sem herinn eða þið
eða einhver annar hjálpar okkur,
þá mun ég loka alríkisstjórninni.
Og ég yrði stoltur af því að loka
alríkisstjórninni í þágu öryggis á
landamærunum. Ég skal taka það á
mig. Ég skal vera sá sem lokar,“ sagði
Trump á fundinum. – þea
Hótar lokun
vegna veggjarins
landamæraveggurinn var helsta
kosningaloforð Donalds trump.
Ég yrði stoltur af því
að loka alríkis-
stjórninni í þágu öryggis á
landamærunum.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna
1 2 . d e S e m B e r 2 0 1 8 m i Ð V i k u d a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-B
C
4
C
2
1
B
6
-B
B
1
0
2
1
B
6
-B
9
D
4
2
1
B
6
-B
8
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K