Fréttablaðið - 12.12.2018, Qupperneq 24
Margir réðu stofn-endum Snaps, sem er einn vin-sælasti veitinga-staður landsins, frá því að opna
staðinn. „Hugmyndin kviknaði í
lok árs 2011 þegar efnahagslífið var
enn að sleikja sárin eftir fjármála-
hrunið. Sagt var við okkur að veit-
ingastaðurinn myndi aldrei ganga
enda er hann ekki við aðalgötu,“
segir Sigurgísli Bjarnason viðskipta-
fræðingur sem stofnaði Snaps ásamt
Stefáni Melsted kokki.
Stefán rifjar upp að feður þeirra,
veitingamaður og lögmaður, hafi
verið býsna áhyggjufullir gagnvart
hugmyndinni í byrjun. Sigurgísli
segir að faðir hans, sem er veitinga-
maður, hafi séð fyrir sér árin þegar
hann rak Cafe Óperu í miðbæ
Reykjavíkur, sem var einn vinsælasti
veitingastaður landsins, í kringum
1990, ljóslifandi. „Þrátt fyrir miklar
vinsældir var það erfiður tími og
rekstrarumhverfi erfitt.“
Opnuðu á góðum tíma
Af hverju ákváðuð þið að kýla á
þetta?
Stefán: „Við höfðum trú á þeirri
hugmynd að opna veitingastað eins
og við vildum borða á og vorum
harðákveðnir í að láta hann verða að
veruleika. Það kom líka á daginn að
við opnuðum Snaps á góðum tíma,
árið 2012. Fáir voru að opna nýja
veitingastaði í miðbænum og efna-
hagslífið var að rétta úr kútnum.“
Veitingamennirnir voru um þrí-
tugt við stofnun Snaps. „Við lögðum
til þrjár milljónir í hlutafé og tókum
sjö milljónir króna að láni,“ segir
hann.
Sigurgísli segir að þeir hafi fengið
hagstæðan leigusamning til 15 ára
og fjölskylda, vinir, frændur og
frænkur réttu þeim hjálparhönd
við undirbúning opnunarinnar.
„Við sættum okkur við að nota
gömlu eldhúsinnréttinguna hans
afa á barinn, keyptum gamla kæla
og fyrsti djúpsteikingarpotturinn
fannst í nytjagámi á Bíldudal.
Við keyptum antíkstóla frá Dan-
mörku en pabbi átti mikið inni í
geymslu sem við gátum nýtt, eins
og marmaraborð sem voru á gamla
Vörumarkaðnum í Ármúla og ljós
frá Cafe Óperu. Speglar og fataheng-
ið komu úr gamalli hárgreiðslustofu
á móti Vitabar. Þessir hlutir gæða
veitingastaðinn lífi,“ segir hann.
Sigurgísli og Stefán stóðu sjálfir
að því að innrétta staðinn og nutu
aðstoðar Hálfdánar Petersen hönn-
uðar. „Birgjar sýndu okkur mikla
þolinmæði í upphafi og þetta hefði
ekki verið hægt án þess góða sam-
bands sem við eigum við þá.“
Fyrsta árið var strembið
Stefán: „Fyrsta árið var strembið.
Við gátum iðulega ekki greitt okkur
laun fyrstu sex til átta mánuðina.
Ég spurði Sigurgísla oft eftir að við
borguðum launin hvað væri mikið
eftir. Sigurgísli sagði þá fimm þús-
und krónur! Og við önduðum léttar
því að við gátum greitt starfsfólk-
inu laun á réttum tíma. Þetta stóð
stundum tæpt en hefur alltaf gengið
upp. Eitt af því sem við, sem stjórn-
endur fyrirtækis, höfum áhyggjur af
er að geta greitt laun. Við sögðum í
upphafi að við vildum reka fyrir-
tækið með heiðarlegum hætti og
standa okkar plikt gagnvart starfs-
mönnum og skattinum.
Eftir sex til átta mánuði gátum við
greitt okkur einhver laun og eftir
þrjú ár urðu launin eins og hefð-
bundin kokkalaun. Á þessum tíma
borðuðum við einfaldlega starfs-
mannamatinn í flest mál og vorum
hér öllum stundum, ég í kokka-
fötum og Sigurgísli með svuntuna.
Við eyddum þess vegna litlu.“
Stefán segir að fyrsta árið hafi
Snaps tapað peningum. „Við vorum
að læra á reksturinn og vorum að
vinna með lágt verð. Þess vegna
töpuðum við fyrsta árið. Samt var
brjálað að gera hjá okkur.“
Sigurgísli: „Það héldu allir að við
hefðum ansi gott upp úr Snaps en
staðreyndin var sú að við töpuðum
tíu milljónum króna fyrsta árið.“
Vín hússins lítið hækkað í verði
Stefán: „Við stilltum verðið af en
gættum þess sérstaklega að hafa
álagninguna á vínum hóflega. Við
vildum frekar halda verðinu lágu.
Hugmyndin er að selja í staðinn
fleiri flöskur. Vín hússins hefur til
dæmis einungis hækkað um 5 pró-
sent á síðastliðnum sex árum.“
Hvers vegna virkar Snaps?
Sigurgísli: „Í grunninn er þetta
sambland af sanngjörnu verði, góðri
upplifun og gæðum í mat og drykk
og góðu starfsfólki sem margt hvert
Náðu góðum tökum á rekstri Snaps
Snaps, einn vinsælasti veitingastaður landsins, opnaði dyr sínar á góðum tíma árið 2012. Fáir voru að opna nýja veitingastaði í miðbæn-
um og efnahagslífið var að rétta úr kútnum. Stofnendurnir tveir lögðu til þrjár milljónir í hlutafé og tóku sjö að láni. Þeir sýndu útsjónar-
semi við opnun staðarins eins og að innrétta með notuðum munum og fundu fyrsta djúpsteikingarpottinn í nytjagámi á Bíldudal.
Stofnendurnir Sigurgísli Bjarnason og Stefán Melsted. „Við höfðum trú á þeirri hugmynd að opna veitingastað eins og við vildum borða á,“ segir Stefán. FréttaBlaðið/Sigtryggur ari
Það þýðir ekkert að
sjá eftir neinu. Það
mikilvægasta er að hafa
gaman af því sem við erum
að gera.
Stefán
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Gengisþróun krónu
er tvíeggjað sverð.
Við njótum góðs af veikingu
krónu því hún fer beint í
vasa erlendra ferðamanna.
En að sama skapi hækka
aðföng. Þau eru mikið til
innflutt og ef þau eru ekki
innflutt krefjast þau í mörg-
um tilfellum innflutts fóðurs
eða áburðar.
Sigurgísli
1 2 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r8 markaðurinn
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
B
6
-C
1
3
C
2
1
B
6
-C
0
0
0
2
1
B
6
-B
E
C
4
2
1
B
6
-B
D
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K