Fréttablaðið - 12.12.2018, Page 40
PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is
PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar,
endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar
viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn.
Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur
Bókhald
Jafnlaunavottun
Áhættustýring
Endurskoðun
Verðmæti
Hafðu samband því þinn árangur er mikils virði.
Ráðgjöf
Hámarkaðu árangurinn þinn
og verðmæti með því að nýta þér
fjölbreytta þekkingu og víðtæka reynslu
PwC á öllum sviðum rekstrar
Skattamál
Markaðurinn instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
Miðvikudagur 12. desember 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Stjórnar-
maðurinn
06.12.2018
Meirihluti Landsréttar hefur staðfest þrjá dóma
Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem viðurkennd-
ur var eignarréttur Mentis, félags í eigu Gísla
Heimissonar, forstöðumanns hugbúnaðarsviðs
Kortaþjónustunnar, að samtals 7,2 prósenta
hlut í Reiknistofu bankanna. Einn af þremur
dómurum var á öndverðri skoðun og skilaði séráliti.
Mentis keypti hlutinn í Reiknistofu bankanna
í apríl 2016 en seljendur voru Kvika banki, Sam-
band íslenskra sparisjóða og Sparisjóður Austurlands.
Sparisjóður Höfðhverfinga taldi sig hins vegar hafa
orðið eiganda að hlutnum með yfirlýsingu um beitingu
forkaupsréttar í samræmi við samþykktir fyrir-
tækisins en í málinu var deilt um hvort þrjátíu
daga fresturinn til að nýta sér forkaupsréttinn
hefði verið liðinn þegar tilkynning sjóðsins um
nýtinguna barst stjórn RB. Var sérstaklega deilt
um við hvað bæri að miða upphaf frestsins.
Meirihluti Landsréttar taldi að upphaf frestsins til
að neyta forkaupsréttar ætti að miðast við tilkynn-
ingu til stjórnar Reiknistofu bankanna um tilboð.
Sparisjóður Höfðhverfinga hefði tilkynnt um nýtingu
forkaupsréttar síns meira en þrjátíu sólarhringum síðar
og því hefði fresturinn verið liðinn. – kij
Mentis réttur eigandi að hlut í rB
Gísli
Heimisson.
Innflæðishöft
á ein-
hverja ákveðna
fjármálagerninga
eru bara fullkom-
lega galin í mínum
huga.
Sigurður Viðarsson,
forstjóri TM
Theresa May tilkynnti á mánu-
dag að atkvæðagreiðslu breska
þingsins um Brexit-samning
hennar yrði frestað um óákveð-
inn tíma. Ljóst er að May er með
því einungis að forðast óum-
flýjanlegt tap í þinginu, en spár
gerðu ráð fyrir að hún myndi
tapa með um eða yfir hundrað
þingmanna mun.
Staða May er þröng svo ekki
sé meira sagt og engir augljósir
kostir í stöðunni. Leiðtogar ESB-
ríkjanna hafa sagt að engar líkur
séu á að May fái frekari eftirgjöf
en var að finna í þeim samningi
sem var á borðinu. Samkvæmt
því eru engar líkur á að hún geti
snúið aftur sigri hrósandi og
lagt nýjan og betri samning fyrir
þingið.
Því er kostunum óðum að fækka
og þeirra ólystugastur er sá að
ganga úr Evrópusambandinu
án þess að samkomulag liggi
fyrir um samband Bretlands
og Evrópu að útgöngu lokinni.
Samkvæmt Englandsbanka
myndi landsframleiðsla dragast
saman um 8% strax á næsta ári,
og atvinnuleysi margfaldast.
Afleiðingarnar yrðu mun verri
en þær sem fylgdu bankakrís-
unni árið 2008.
Ef rétt er sem May segir og
valið snýst um „minn díl eða
engan díl“, ættu allir skynsamir
menn að geta sameinast um
fyrri kostinn. Þriðja leiðin er
hins vegar einnig fær, og nýtur
æ meiri stuðnings. Hún er sú
að ganga hreinlega alls ekki úr
Evrópusambandinu.
Það skyldi þó ekki vera að
May boði til annarrar Brexit-
atkvæðagreiðslu? Kannanir sýna
að meirihluti breskra kjósenda
vill nú vera áfram í ESB enda
afleiðingar útgöngu alltaf að
koma betur í ljós. Það væri ef til
vill við hæfi að hringavitleysan
Brexit endaði á sama stað og hún
byrjaði. Bretland yrði áfram í
ESB og Brexit reyndist ferð án
fyrirheits.
Þeir sem nú hvetja undir rós til
útgöngu Íslands úr EES ættu að
hugsa sig tvisvar um.
Ferð án
fyrirheits
1
2
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
B
6
-9
9
B
C
2
1
B
6
-9
8
8
0
2
1
B
6
-9
7
4
4
2
1
B
6
-9
6
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
1
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K