Fréttablaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 10
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
0
7
1
4
R
e
n
a
u
lt
A
t
v
in
n
u
b
íl
a
r
5
x
2
0
n
ó
v
www.renault.is
RENAULT KANGOO, DÍSIL
1,5 L. VÉL, 90 HESTÖFL
Verð: 2.411.000 kr. án vsk.
2.990.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 4,3 l/100 km*
RENAULT TRAFIC, DÍSIL
1,6 L. VÉL, 120 HESTÖFL
Verð frá: 3.218.000 kr. án vsk.
3.990.000 kr. m. vsk.
Eyðsla frá 6,5 l/100 km*
RENAULT MASTER, DÍSIL
2,3 L. VÉL, 125 HESTÖFL
Verð frá: 4.024.000 kr. án vsk.
4.990.000 kr. m. vsk.
Eyðsla 7,8 l/100 km*
Öflugir vinnufélagar
Kíktu í kaffi og reynsluakstur
TIL AFGREIÐSLU STRAX
INDÓNESÍA Hamfaravarnastofnun
Indónesíu hækkaði í gær viðvör-
unarstig upp á næsthæsta stig vegna
gossins í eldfjallinu Anak Krakatá,
eða Barni Krakatá. Sagði það gert
vegna aukinnar eldvirkni í fjallinu.
„Hættusvæðið hefur verið stækk-
að úr tveggja kílómetra radíus í
fimm. Íbúum og ferðamönnum er
því óheimilt að koma nær fjallinu
en sem nemur fimm kílómetrum,“
sagði í tilkynningu frá stofnuninni.
Skriða féll úr fjallinu á laugar-
dag og orsakaði flóðbylgju. Bylgjan
skall á strandbyggðum á eyjunum
Jövu og Súmötru við Sunda-sund. Á
fimmta hundrað lést í hamförunum
og á annað hundrað er enn saknað.
Hundruð bygginga eyðilögðust,
bílum skolaði í burtu og tré rifnuðu
upp með rótum. Þá er að minnsta
kosti 16.000 enn gert að halda sig
fjarri heimilum sínum og gista þús-
undir því í neyðarskýlum.
Flugumferðarstjórnarstofnunin
AirNav Indonesia sagðist í gær
loka fyrir ákveðnar flugleiðir til og
frá svæðinu vegna ösku sem fjallið
spýr úr sér. Í samtali við BBC sagði
verkefnastjóri hjá stofnuninni að
ákvörðunin snerti 20-25 ferðir. – þea
Hafa hækkað
viðvörunarstig
Börn leika sér á hrúgu af fötum frá
hjálparsamtökum. NORDICPHOTOS/AFP
ÍSRAEL Benjamín Gantz, fyrrverandi
herforingi í Ísrael, stofnaði í gær
nýjan stjórnmálaflokk sem mun
bjóða fram í þingkosningum í apríl
næstkomandi.
Flokkurinn nefnist Ísraelski
þrautseigjuflokkurinn en stefna
hans hefur ekki verið opinberuð
nema að takmörkuðu leyti. Ljóst
er þó að flokkur Gantz mun leggja
áherslu á þjóðaröryggi og efnahags-
mál. Reuters greindi frá.
Gantz og flokkur hans mælast
sterkustu andstæðingar Benjamíns
Netanjahú forsætisráðherra og
Líkúd-flokksins. Í könnun Midgam
sem birti var á jóladag, mældist
Líkúd með 29 prósent og Gantz, er
hafði ekki enn stofnað flokk sinn,
með sextán prósent.
Verði þetta raunin myndi það
reyndar þýða að Líkúd bætti við sig
fylgi. Flokkurinn fékk 23,4 prósent
árið 2015. Ísraelska blaðið Haar-
etz birti greiningu á stöðunni í gær
þar sem sagði að lögregla og ríkis-
saksóknaraembættið vildu ákæra
manninn sem líklegast er að myndi
stjórn eftir kosningar, Netanjahú,
fyrir mútuþægni í að minnsta kosti
tveimur ákæruliðum. Tekið var fram
að líklega væru fá fordæmi fyrir
þessu í hinum vestræna heimi.
Lögregla mælti opinberlega með
því í upphafi desembermánaðar að
Netanjahú yrði ákærður fyrir mútu-
þægni.
Málið snýst annars vegar um
meintar gjafir frá milljarðamæring-
um sem sagðir eru vinir forsætisráð-
herrans og svo boð til fjölmiðils um
innleiðingu hagstæðrar löggjafar
gegn jákvæðri umfjöllun.
Netanjahú hefur sömuleiðis verið
gagnrýndur vegna gerðar vopnahlés
við Hamas.
Sú ákvörðun leiddi til þess að
einn samstarfsflokkanna sagði
sig úr ríkisstjórnarsamstarfinu og
minnkaði þingstyrk stjórnarinnar
í 61 sæti af 120.
Forsætisráðherrann ákvað svo að
flýta kosningunum, sem upphaflega
áttu að fara fram í nóvember, vegna
þess að stjórn hans var að liðast í
sundur vegna umdeilds frumvarps
um að koma skyldi á herskyldu fyrir
strangtrúuðustu gyðinga landsins.
Haaretz fullyrti að auki að
Netanjahú myndi reyna, ef hann
nær kjöri, að þvinga væntanlega
samstarfsflokka til þess að koma
á löggjöf sem bannar að sitjandi
forsætisráðherra sé ákærður. „Það
hljómar vitfirrt en það er planið.
Það er ekkert annað í stöðunni,“
sagði í umfjölluninni.
Vefmiðillinn Times of Israel
greindi svo möguleika Gantz og
talaði um „baráttu Benjamínanna
tveggja“. Þar sagði að miðað við
kannanir virtist ólíklegt að hefð-
bundnir stjórnarandstöðuflokkar
næðu að steypa Netanjahú af stóli.
Ef Netanjahú nær að halda for-
sætisráðuneytinu fram í lok júlí
verður hann þaulsetnasti leiðtogi
Ísraels. Skýst þannig upp fyrir David
Ben-Gurion. thorgnyr@frettabladid.is
Benjamín keppir við Benjamín
Benjamín Gantz stofnaði
nýjan flokk í Ísrael sem
mælist næstvinsælastur
á eftir flokki forsætisráð-
herrans, Benjamíns Net-
anjahú. Kosningar fara
fram í apríl, var flýtt þar
sem samsteypustjórn
undir forsæti Netanjahús
liðaðist í sundur.
Benjamín Gantz og Benjamín Netanjahú á meðan sá fyrrnefndi var enn herforingi. NORDICPHOTOS/AFP
2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
9
-5
A
C
4
2
1
E
9
-5
9
8
8
2
1
E
9
-5
8
4
C
2
1
E
9
-5
7
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K