Fréttablaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5000
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.isGÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR Agnar Tómas Möller framkvæmda-
stjóri sjóða hjá GAMMA – Andrés
Jónsson eigandi Góðra sam-
skipta – Arnar Sigurðsson vínsali og
innflytjandi hjá Sante Wines – Ari
Edwald forstjóri MS – Ari Fenger
forstjóri Nathan & Olsen – Ármann
Þorvaldsson forstjóri Kviku – Ásgeir
Helgi Reykfjörð Gylfason fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku
– Árni Maríasson forstöðumaður
markaðsviðskipta Landsbankans
– Baldur Stefánsson framkvæmda-
stjóri fyrirtækjaráðgjafar Kviku
– Baldvin Björn Haraldsson meðeig-
andi BBA Legal – Benedikt Gíslason
stjórnarmaður í Arion banka – Birna
Einarsdóttir bankastjóri Íslands-
banka – Bjarni Eyvinds Þrastarson
framkvæmdastjóri markaðs-
viðskipta Kviku – Bjarni Þórður
Bjarnason aðstoðarframkvæmda-
stjóri Arctica Finance – Björgvin
Guðmundsson meðeigandi KOM –
Björgvin Ingi Ólafsson sviðsstjóri hjá
Deloitte – Daníel Helgason fjárfestir
– Flóki Halldórsson framkvæmda-
stjóri Stefnis – Guðjón Ármann
Guðjónsson framkvæmdastjóri
Hópbíla – Guðrún Hafsteinsdóttir
eigandi Kjöríss og stjórnarformaður
Lífeyrissjóðs verslunarmanna –
Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa
lónsins – Hannes Frímann Hrólfsson
framkvæmdastjóri eignastýringar
Kviku – Haraldur I. Þórðarson for-
stjóri Fossa markaða – Heiðar
Guðjónsson fjárfestir og stjórnar-
formaður Sýnar – Helga Valfells
forstjóri Crowberry Capital – Helgi
Magnússon fjárfestir – Helgi Vífill
Júlíusson viðskiptablaðamaður á
Fréttablaðinu – Hermann Þórisson
forstöðumaður sérhæfðra fjár-
festinga hjá Landsbréfum – Hrund
Rudolfsdóttir forstjóri Veritas –
Hörður Ægisson ritstjóri Markaðar-
ins – Jakob Ásmundsson forstjóri
Kortaþjónustunnar – Jón Gunnar
Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins
– Jón Sigurðsson fjárfestir – Jón
Skaftason framkvæmdastjóri 365
Invest – Kjartan Smári Höskuldsson
framkvæmdastjóri Íslandssjóða
– Kristinn Ingi Jónsson viðskipta-
blaðamaður á Fréttablaðinu – Lilja
Björk Einarsdóttir bankastjóri
Landsbankans – Lýður Þorgeirsson
framkvæmdastjóri fjárfestingar-
bankasviðs Arion banka – Mar-
grét Sanders formaður Samtaka
verslunar og þjónustu – Marinó
Örn Tryggvason aðstoðarforstjóri
Kviku – Páll Harðarson forstjóri
Kauphallarinnar – Ólöf Skaftadóttir
ritstjóri Fréttablaðsins – Sigurður
Atli Jónsson stjórnarformaður
Íslenskra verðbréfa – Sigurður
Hannesson framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins – Svanhildur
Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir – Stein-
grímur Helgason forstöðumaður
fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans –
Þorbjörn Atli Sveinsson sérfræðingur
hjá Íslenskum fjárfestum – Þor-
steinn Friðrik Halldórsson við-
skiptablaðamaður á Fréttablaðinu
– Þorbjörn Þórðarson fréttamaður á
Stöð 2 – Örn Arnarson sérfræðingur
hjá Samtökum fjármálafyrirtækja –
Ægir Már Þórisson forstjóri Advania
á Íslandi.
Dómnefnd Markaðarins
Sala tölvuleikjafyrirtækisins CCP til suðurkóreska tölvu-leikjaframleiðandans Pearl Abyss fyrir 425 milljónir dollara, jafnvirði 50 millj-arða króna á núverandi
gengi, var valin viðskipti ársins af
fjölskipaðri dómnefnd Markaðarins.
„Verðlaunin gleðja mig mikið. Þau
eru mikil viðurkenning á því sem
við höfum áorkað á þessu ári. Fram
hefur komið í fjölmiðlum að um var
að ræða stærstu sölu á nýsköpunar-
fyrirtæki í sögu Íslands,“ segir Hilmar
Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins til 18 ára og einn af
stærstu hluthöfunum með 6,5 pró-
senta hlut.
„Ég vona að þessi kaflaskil í sögu
CCP, sem skiluðu hluthöfum góðri
ávöxtun, sanni það í eitt skipti fyrir
öll að þetta „eitthvað annað“ – sem
oft er nefnt þegar hugsað er til áhuga-
verðra og umhverfisvænna starfa
– er til í alvörunni. Vonandi vakna
fjárfestar og þá sérstaklega lífeyris-
sjóðir af værum blundi. Við þurfum
að verja hærra hlutfalli af eignum
lífeyrissjóða í slíkar fjárfestingar til
að skapa hér blómlegt og skemmti-
legt samfélag sem er eftirsóknarvert
að taka þátt í. Ef rétt er haldið á spil-
unum munu fjárfestar og samfélagið
njóta góðs af, eins og dæmin sanna.“
Hver er listin við að koma á fót
blómlegu nýsköpunarfyrirtæki á
Íslandi?
„Listin við nýsköpun er fyrst og
fremst þrautseigja. Þegar litið er til
farsælla nýsköpunarfyrirtækja sem
hafa orðið stór alþjóðlega, eins og
CCP, Össur og Marel, eiga þau þraut-
seigjuna sameiginlega. Það er ekkert
gefið í viðskiptum. Það þarf að berj-
ast fyrir öllu.“
Talandi um það, það hafa skipst á
skin og skúrir í rekstri CCP, stundum
gekk vel og stundum var róinn líf-
róður. Misstir þú aldrei trúna og hugs-
aðir: Úff. Nú er þetta búið?
„Ég missti aldrei trúna en það voru
Sannar að þetta „eitthvað annað“ er til
Framkvæmdastjóri CCP segir að þrautseigja sé listin við nýsköpun. Aldrei kom til greina að gefast upp. Hann lærði auðmýkt á tveggja
áratuga uppbyggingarstarfi. Óskilgreind afkvæmi CCP séu um allar jarðir. Lífeyrissjóðir komi meira að fjárfestingum í nýsköpun.
Ég missti aldrei
trúna en það voru
vissulega mörg tímabil þar
sem það var full ástæða til að
ætla að þetta væri einfaldlega
búið.
Hilmar Veigar Pétursson segir að mörg lönd hafi lagt mikla vinnu í að skapa aðstæður sem ýti undir nýsköpun.
vissulega mörg tímabil þar sem það
var full ástæða til að ætla að þetta
væri einfaldlega búið. En við fundum
alltaf einhverja leið, alveg sama hvað
dalirnir voru djúpir.“
Hvað gaf þér kraft þegar á móti
blés? Hvað hugsar maður?
„Afstaða okkar var, að við ætl-
uðum aldrei að gefast upp. Það kom
aldrei til greina að gefast upp og
koðna niður áður en allt var full-
reynt. Annaðhvort yrði fyrirtækið
að lokum selt eða gjaldþrota.“
Hvað hefur þú lært af tveggja ára-
tuga uppbyggingarstarfi?
„Auðmýkt. Á tímabili héldum við
að við gætum gert hvað sem var.
Það var vegna þess að okkur tókst
að framleiða EVE Online á Íslandi
og gera hann vinsælan erlendis.
Það var að mörgu leyti gersamlega
ómögulegt verkefni. Þá fórum við
að halda að við værum merkilegri
en við erum. En það hefur ýmislegt
gengið á hjá okkur, og þá lærir maður
auðmýkt, því þetta hefur á stundum
verið mjög erfitt. Við það verður
nálgunin eðlilegri og árangurinn
merkilegri.“
Spilaði það rullu í vel heppnaðri
sölu til alþjóðlegs fyrirtækis að hafa
vel tengda fjárfesta í hópi hluthafa,
þannig að þeir þekktu mann og annan
í alþjóðlegum tækniheimi?
„Það var gæfuspor fyrir fyrirtækið
að fá reynda og erlenda hluthafa í
hópinn árin 2005-2006. Þegar kom
að sölunni nutum við góðs af því
hvað það voru margir reyndir fjár-
festar í hópnum. En innan dyra hjá
okkur hafði sömuleiðis skapast dýr-
mæt reynsla enda er fyrirtækið orðið
21 árs. Hún nýttist einnig vel. Þetta er
ekki endapunktur í sögu CCP heldur
nýr kafli undir öðru eignarhaldi. Það
mun ekki hafa sérstakar breytingar
í för með sér, aðrar en að við erum
komin í lið með kóresku leikjafyrir-
tæki.“
Einn í dómnefndinni hafði einmitt
á orði hve gleðilegt það væri að CCP
yrði sjálfstæð eining innan samstæð-
unnar.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
„Það er tiltölulega algengt fyrir-
komulag hjá asískum fyrirtækjum.
Þetta er enn fremur yfirlýsing um að
við hjá CCP kunnum okkar fag.“
Er auðveldara núna að ná árangri
alþjóðlega með nýsköpun frá Íslandi
en fyrir 21 ári þegar CCP var stofnað?
„Það er að einhverju leyti auðveld-
ara og að einhverju leyti erfiðara. Nú
er til meiri þekking á að selja nýsköp-
un á alþjóðavísu en þegar við vorum
að stíga okkar fyrstu skref. Á þeim
tíma var hún af skornum skammti.
Það eru kannski ekki til reiðinnar
býsn af henni nú en hún er til staðar.
Þegar CCP var að stíga sín fyrstu
skref var internetið tiltölulega nýtt
af nálinni. Það skapast ávallt mikil
tækifæri þegar ný tækni er að finna
sér farveg. Nú á dögum er internetið
nokkuð þroskað og erfiðara að finna
glufur á markaðnum en þegar við
fórum af stað með EVE Online. En
það eru alls kyns tæknibyltingar um
þessar mundir, það þarf bara að hafa
augun opin fyrir tækifærum.
Núna er mun meiri samkeppni
á sviði nýsköpunar og mörg lönd
hafa lagt mikla vinnu í að skapa
aðstæður sem ýta undir nýsköpun.
Ísland hækkaði nýverið þak á endur-
greiðslur af rannsóknar- og þróunar-
starfi. Það var skynsamlegt skref en
ég hvet íslensk stjórnvöld til að taka
fleiri slík skref og afnema þakið, enda
er um að ræða alþjóðlega samkeppni
sem við megum ekki verða undir í.
Of mikið er undir.“
CCP er eins konar afsprengi OZ.
Eru miklar líkur á að fyrrverandi
starfsmenn CCP muni nýta sína
reynslu og stofna nokkurn fjölda fyrir-
tækja?
„Við lærðum margt þegar við
störfuðum hjá OZ sem eflaust gerði
það að verkum að við náðum lengra
en annars hefði verið raunin. Á 20
árum hafa þúsundir starfsmanna
unnið hjá CCP. Á undanförnum
áratug hafa fyrrverandi starfsmenn
stofnað fyrirtæki, bæði hér á Íslandi
og erlendis, ásamt því að margir eru
í lykilstöðum hjá erlendum leikja-
fyrirtækjum. Það eru óskilgreind
afkvæmi CCP um allar jarðir. Ég vona
að það haldi áfram.“
2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R2 MARKAÐURINN
2
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
9
-4
2
1
4
2
1
E
9
-4
0
D
8
2
1
E
9
-3
F
9
C
2
1
E
9
-3
E
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K