Fréttablaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 24
Eftir kaupin á kjölfestuhlut í HB Granda er hann kominn með tögl og hagldir í íslenskum sjávarútvegi,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins
um viðskiptamann ársins 2018, að
mati dómnefndar blaðsins, Guð
mund Kristjánsson, aðaleiganda og
forstjóra HB Granda.
„Hann hefur komið að öllum
stærstu viðskiptum ársins í sjávar
útvegi og er kominn með lykilstöðu
í HB Granda,“ nefnir annar úr dóm
nefnd Markaðarins og undir það
taka fleiri dómnefndarmenn sem
segja Guðmund jafnframt hafa leitt
tæknivæðingu og hagræðingu í
íslenskum sjávarútvegi undanfarin
ár.
„Viðskiptin eru framsýn,“ segir
einn álitsgjafi um kaup Útgerðar
félags Reykjavíkur, sem er að mestu
í eigu Guðmundar, á ríflega 34 pró
senta hlut í HB Granda fyrir 21,7
milljarða króna í apríl á þessu ári
og bætir við: „Guðmundur er orðinn
forstjóri HB Granda og er þannig
kominn í lykilstöðu í einu öflugasta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins og
því eina sem er skráð í kauphöll.“
Guðmundur kom sem storm
sveipur inn í félagið í kjölfar kaup
anna og ekki liðu nema tveir mán
uðir þar til forstjórinn Vilhjálmur
Vilhjálmsson fór frá borði og Guð
mundur settist í forstjórastólinn í
hans stað. Síðar um sumarið var svo
tilkynnt um að HB Grandi hefði fest
kaup á öllu hlutafé útgerðarfélags
ins Ögurvíkur fyrir 12,3 milljarða
króna. Seljandinn var Útgerðarfélag
Reykjavíkur, áður Brim.
Útgerðarfélag Reykjavíkur seldi
einnig þriðjungshlut sinn í Vinnslu
stöðinni til FISK Seafood fyrir um
9,4 milljarða króna en Guðmundur
hefur lengi átt í hatrömmum deilum
við meirihlutaeigendur í útgerðinni
í Vestmannaeyjum.
„Sumir segja að þetta hafi verið
úthugsað hjá honum og aðrir ekki,“
nefnir einn úr dómnefnd Markað
arins um kaupin í HB Granda, „en
þetta voru flott viðskipti hjá honum
og ég hef bullandi trú á þessu.“
„Margir héldu að með yfir
tökuskyldunni yrðu kaupin í HB
Granda of stór biti fyrir Guðmund,“
segir annar álitsgjafi, „en með sölu
á þriðjungshlut í Vinnslustöðinni
og sölunni á Ögurvík náði hann að
klára kapalinn sem hann lagði við
kaupin.
Hann þaggaði jafnframt niður í
þeim efasemdaröddum sem heyrð
ust um kaup HB Granda á Ögurvík
af Brim eftir að Kvika banki komst
að þeirri niðurstöðu að kaupin
væru hagfelld og að kaupverðið væri
lægra en markaðsvirði eigna Ögur
víkur,“ bætir hann við.
Með tögl og hagldir í
íslenskum sjávarútvegi
Álitsgjafar Markaðarins segja að með kaupum á ríflega þriðjungshlut í HB
Granda hafi Guðmundur Kristjánsson, viðskiptamaður ársins, komið sér í lykil-
stöðu í einu öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins. Kapallinn hafi gengið upp.
3. Árni Oddur Þórðarson, for-stjóri Marels, var mörgum
dómnefndarmönnum Markaðarins
ofarlega í huga við val á viðskipta-
manni ársins.
„Þessi náungi er að spila í allt
annarri deild en aðrir viðskipta-
menn á Íslandi og er á toppi
deildarinnar,“ segir einn álitsgjafi
um forstjórann.
„Góður undirbúningur og traust-
ari fjármögnun sem Árni Oddur
náði sjálfur að tryggja á krítískum
tímapunkti hefur lagt grunninn
að þeirri siglingu sem Marel hefur
verið á á árinu 2018,“ nefnir annar.
„Flest mælaborð í rekstrinum
virðast vera í lagi og þrautseigjan
er að skila þessu öðru veltumesta
félagi á Íslandi á beina braut. Undir-
búningur fyrir skráningu virðist vera
það langt komin að fátt ætti að
koma í veg fyrir hana,“ bætir hann
við og á þar við fyrirhugaða tvíhliða
skráningu hlutabréfa félagsins.
Til viðbótar við núverandi
skráningu í íslensku kauphöllinni
kemur til greina að skrá bréfin í
Amsterdam, Kaupmannahöfn og
Lundúnum. Um leið verður hlutafé
félagsins aukið um að allt að 15
prósent.
„Árni Oddur er búinn að leiða
Marel sem var eitt sinn lágstemmt
verkfræðifyrirtæki með lausn fyrir
sjávarútveg en er nú leiðandi fyrir-
tæki í matvælavinnslu á alþjóða-
vettvangi,“ segir í rökstuðningi eins
álitsgjafa.
„Árni hefur sterka framtíðarsýn
og er gríðarlega duglegur. Hann
leiddi kaup á Maja á árinu og er að
vinna statt og stöðugt að tvískrán-
ingu. Við erum ekki enn búin að sjá
hápunktinn hjá Marel og það er víst
að risar úti í hinum stóra heimi hafa
komið auga á þetta framsækna og
flotta fyrirtæki sem blómstrar undir
stjórn Árna,“ nefnir hann.
„Að fyrirtæki, sem er löngu orðið
leiðandi á heimsvísu í hátækni-
lausnum fyrir matvælaiðnaðinn,
nái 14 prósenta tekjuvexti og 25
prósenta vexti í hagnaði á hlut á
fyrstu níu mánuðum þessa árs er
magnaður árangur,“ segir einn úr
dómnefnd Markaðarins og bætir
við:
„Fátt bendir til annars en að þessi
velgengni muni halda áfram enda
leggur fyrirtækið að jafnaði fimm
til sex prósent af veltu í rannsóknir
og þróun, hæsta hlutfall sem fyrir-
finnst í greininni.“
Marel blómstrar undir
stjórn Árna Odds
2. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, varð í öðru
sæti í vali dómnefndar Markaðarins
á viðskiptamanni ársins. „Hann
gjörsigraði Seðlabankann, keypti
ráðandi hlut í Eimskip á mjög
hagstæðu verði og er orðinn einn
öflugasti fjárfestirinn í Högum. Allt
á einu ári,“ segir einn álitsgjafi um
afrek Þorsteins Más á árinu sem
senn er á enda.
„Hann hefur byggt upp stór-
fyrirtæki á farsælan hátt og alltaf
staðið á sínu. Hann er með allt sitt á
hreinu og sýndi það þegar Seðla-
bankinn var lagður,“ nefnir annar úr
dómnefnd Markaðarins.
„Góður rekstrarmaður, seigur og
úthaldsgóður,“ segir í rökstuðningi
annars dómnefndarmanns.
„Kóngur ársins,“ segir sá þriðji.
Árið var ansi viðburðaríkt hjá út-
gerðarrisanum sem Þorsteinn Már
stýrir. Systurfélag Samherja keypti
sem dæmi fjórðungshlut banda-
ríska fjárfestingarsjóðsins Yucaipa í
Eimskip fyrir um 11 milljarða króna
um miðjan júlí. Tæpum tveimur
mánuðum síðar var Baldvin Þor-
steinsson, framkvæmdastjóri við-
skiptaþróunar Samherja og sonur
Þorsteins Más, kjörinn stjórnarfor-
maður flutningafélagsins.
Einn álitsgjafi segir Samherja
hafa náð að tryggja sér afgerandi
hlut í Eimskip á „áhugaverðu verði“.
„Margir telja að umtalsverð tæki-
færi séu til að skerpa á starfseminni
og auka verðmæti félagsins. Þá
þykir Samherji vera rétti eigandinn
til að ná slíku fram,“ nefnir hann.
Í kjölfar kaupa Haga á Olís
eignaðist Samherji jafnframt 5,1
prósents hlut í Högum en auk
þess hefur útgerðin gert framvirka
samninga um kaup á 4,1 prósents
hlut til viðbótar.
Í nóvember staðfesti Hæstiréttur
síðan dóm héraðsdóms sem hafði
fellt úr gildi sekt sem Seðlabanki
Íslands lagði á Samherja fyrir brot
á gjaldeyrislögum. Lauk þar með
málarekstri Seðlabankans gegn út-
gerðinni sem stóð yfir í tæp sjö ár.
Einn álitsgjafi Markaðarins nefnir
að fyrir utan áframhaldandi lygilega
arðsemi í rekstri Samherja séu for-
svarsmenn félagsins orðnir „stórir
þátttakendur vítt og breitt í íslensku
atvinnulífi og á hlutabréfamarkað-
inum með kaupum á lykilhlut í Eim-
skip af Yuicaipa. Samherjamenn eru
sömuleiðis orðnir stórir hluthafar í
Högum eftir bæði kaup á markaði
og einnig í gegnum söluna á Olís,“
Þorsteinn Már í Sam-
herja lét til sín taka
Aðrir sem voru nefndir sem viðskiptamenn ársins
Jón Sigurðsson
stjórnarformaður Stoða
n „Salan á Refresco skilaði gríðar-
legum hagnaði og einnig gegndi
hann lykilhlutverki í sameiningu
N1 og Festar.“
Liv Bergþórsdóttir
fyrrverandi forstjóri Nova
n „Byggði upp frábært félag og
gengur nú frá vel unnu dags-
verki.“
Sigurður Kjartan Hilmarsson
stofnandi Siggi’s skyr
n „Sigurður virðist hafa gert
mjög vel í uppbyggingu
Siggi’s skyr yfir margra
ára skeið og fjárfesting
hluthafa reyndist
happadrjúg.“
Ingibjörg Pálmadóttir
og Jón Ásgeir
Jóhannesson
fjárfestar
n „Eftir að hafa selt helstu eignir
365 miðla inn í Sýn seldu þau
eignarhlut sinn í félaginu og fjár-
festu í Högum. Gengi hlutabréfa
Sýnar og Haga hefur frá þeim
tíma þróast með gjörólíkum
hætti.“
Kristján Loftsson
forstjóri Hvals
n „Frábær sala á HB Granda, auk
þess sem hann tryggði stöðu
sína í Hval.“
Skúli Mogensen
forstjóri WOW air
n „Hefur haldið við-
skiptalífinu í gíslingu
í fleiri mánuði. Hann
gengur lengra en að
standa á bjarg-
brúninni og von-
ast eftir
að það
komi
ekki
vindhviða og feyki honum fram
af. Hann stendur á brúninni og
hallar sér fram og treystir á að
það haldi áfram að blása á móti.“
Pétur Már Halldórsson
framkvæmdastjóri Nox Medical
n „Fyrirtækið er orðið leiðandi á
heimsvísu í þróun og framleiðslu
á búnaði til svefnrannsókna og
er á meðal þeirra nýsköpunar-
fyrirtækja í Evrópu sem hafa
vaxið hraðast á undanförnum
árum.“
Georg Lúðvíksson
forstjóri Meniga
n „Fyrirtækið er að
uppskera árangur eftir
markvisst uppbygg-
ingarstarf á síðustu
árum.“
Hreggviður Jónsson
stjórnarformaður Veritas
n „Leiddi fjárfestahópinn sem
kom að uppbyggingu Festar og
sölunnar til N1. Nær þrefaldaði
fjárfestinguna á jafnmörgum
árum.“
Hilmar Veigar Pétursson
forstjóri CCP
n „Endurreisti CCP og seldi fyrir
háa fjármuni.“
Grímur Sæmundsen
forstjóri Bláa lónsins
n „Enginn hefur betur unnið
úr sínu konsepti. Hefur
náð að selja á háu verði
mikla upplifun og haldið
sérstöðu sinni og eftir-
spurn.“
Róbert Wessman
forstjóri Alvogen
n „Hefur leitt systurfyrirtækin
Alvogen og Alvotech til mikillar
sóknar á krefjandi mörkuðum og
laðað að nýja fjárfesta í spenn-
andi áhættuverkefni.“
Bjarni Ármannsson
stjórnarformaður Iceland Seafood
International
n „Búið að ganga mjög vel eftir
yfirtökuna, sterkir bakhjarlar
og færa sig á aðallistann, orðnir
stærri en mörg fyrirtækin þar.“
Ingólfur Árnason
forstjóri Skagans 3X
n „Uppbyggingarstarf
hans er algerlega undir
radarnum hér heima.“
„Hann hefur komið að öllum stærstu viðskiptum ársins í sjávarútvegi og er kominn með lykilstöðu í HB Granda,“
nefnir einn álitsgjafi Markaðarins um Guðmund Kristjánsson, forstjóra HB Granda. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Með sölu á þriðj-
ungshlut í Vinnslu-
stöðinni og sölunni á Ögur-
vík náði hann að klára
kapalinn sem hann lagði við
kaupin.
Úr umsögn dómnefndar
Kristinn
Ingi Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
Þorsteinn Már
Baldvinsson.
Árni Oddur
Þórðarson.
nefnir hann. – kij
Sigurður Kjartan
Hilmarsson
Skúli
Mogensen
Hreggviður
Jónsson
Liv
Bergþórsdóttir
2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R8 MARKAÐURINN
2
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
3
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
E
9
-6
4
A
4
2
1
E
9
-6
3
6
8
2
1
E
9
-6
2
2
C
2
1
E
9
-6
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K