Fréttablaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 20
Önnur viðskipti sem voru nefnd sem þau bestu n Margir álitsgjafar nefndu kaup Kviku banka á öllu hlutafé í GAMMA Capital Management sem viðskipti ársins. „Kaupin voru gerð á hárréttum tíma,“ segir einn úr dómnefndinni. „Þar kom berlega í ljós munurinn á Kviku og stóru bönkunum þremur. Þeir eru svifa­ seinir, seinheppnir og með ranga nálgun við markaðinn,“ segir hann. „Verðið sem Kvika greiðir fyrir GAMMA er lágt,“ nefnir einn álits­ gjafi. „Það er mikill mannauður í GAMMA, ekki síst í Agnari Tómasi Möller sjálfum en fáir á landinu hafa betri yfirsýn og þekkingu á skuldabréfamarkaðinum. Það var nauðsynlegt fyrir GAMMA að fá þessa „hreinsun“ eftir allt vesenið í kringum annan stofnandann.“ n Salan á The Icelandic Milk and Skyr Corporation, sem selur skyr undir vörumerkinu Siggi’s skyr, til franska mjólkurrisans Lactalis var nokkrum álitsgjöfum Markaðarins hugleikin. Félagið var stofnað af Sigurði Kjartani Hilmarssyni árið 2006. „Þetta er mögnuð þraut­ seigjusaga einstaks frumkvöðuls. Hann er næstfarsælasti jógúrt­ frumkvöðull heims á eftir Hamdi Ulukaya, stofnanda Chobani,“ nefnir einn álitsgjafi. n Salan á hugbúnaðar­ fyrirtækinu Bókun, sem var stofnað árið 2012, til bandarísku bókunar­ síðunnar TripAdvisor, var í sumum tilvikum nefnd í sömu andrá og salan á Siggi’s skyr. „Í báðum tilfellum stofna ungir frumkvöðlar fyrir­ tæki og með dugnaði, eljusemi og mörgum réttum ákvörðunum – og nokkrum röngum – tekst þeim að búa til alþjóðleg fyrirtæki sem freista stóru fyrirtækjarisanna,“ nefnir einn álitsgjafi. „Það eru fáir sem gera sér grein fyrir því hversu erfitt þetta er og hve mörgum öðrum hefur mis­ tekist það sem þessum ungu frum­ kvöðlum tókst,“ bætir hann við. n Nokkrir nefndu kaup N1 á Festi, næststærsta smásölufélagi landsins, sem bestu heppnuðu viðskipti ársins. „Mikil samlegðaráhrif munu hljótast af sameining­ unni og til verður öflugt og arðsamt fyrirtæki,“ segir einn. n Þá hlaut hlutafjárútboð og skráning Arion banka í kauphöll á Íslandi og í Svíþjóð nokkur atkvæði. „Frábær framkvæmd á tæknilega flókinni, tvöfaldri skráningu og risa­ stóru útboði. Umframáskrift bæði hér á landi og erlendis var marg­ föld,“ nefnir einn álitsgjafi. „Þrátt fyrir að gengi bankans hafi ekki verið merkilegt frá skráningu er það afrek að koma hlutabréfum hans á markað og þá er gríðarlega mikilvægt fyrir hag­ kerfið að fjármálafyrirtæki landsins séu á markaði,“ tók annar fram. n Önnur viðskipti sem voru nefnd voru meðal annars fyrirhuguð fjár­ festing Indigo Partners í WOW air, sala Stoða og íslenskra fjárfesta á hlut sínum í drykkjarframleiðand­ anum Refresco og kaup Samherja á fjórðungshlut í Eimskip. Þetta er falleg saga af alvöru frumkvöðlafyrir-tæki sem gekk í gegnum súrt og sætt, upp og niður, en allt endaði á besta veg,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins um viðskipti ársins að mati dómnefndar blaðs- ins, sölu íslenska tölvuleikjafram- leiðandans CCP til suðurkóreska leikjarisans Pearl Abyss. Söluverð félagsins, sem var stofnað árið 1997 og er hvað þekkt- ast fyrir fjölspilunarleikinn EVE Online, getur numið allt að 425 milljónum dala eða sem jafngildir um 50,6 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Salan er þannig stærsta sala á íslensku tæknifyrirtæki frá upphafi en verðmiðinn er um 10 milljónum dala hærri en verðmiði Decode þegar fyrirtækið var selt til banda- ríska lyfjaframleiðslufyrirtækisins Amgen árið 2012. Þess ber þó að geta að hluti sölu- verðs CCP er árangurstengdur til tveggja ára. „Það er ekki auðvelt að byggja upp alþjóðlegt fyrirtæki á Íslandi frá grunni og koma því í sölu erlendis,“ nefnir einn álitsgjafi Markaðarins. „En það tókst, þótt útlitið hafi verið tvísýnt á tímabili. Ávöxtun eigenda er góð og félagið virðist eiga að starfa nokkuð sjálfstætt innan Pearl Abyss, þar með talið með starfsstöð hér á landi,“ bætir hann við. Pearl Abyss, sem var stofnað árið 2010 og er skráð í kauphöll- ina í Suður-Kóreu, er verðmetið á jafnvirði um 320 milljarða króna. Suður kóreska félagið framleiðir meðal annars fjölspilunarleikinn vinsæla Black Desert Online. Annar álitsgjafi segir söluna frá- bæran endahnút á skemmtilegri vegferð tæknifyrirtækis. Hún blási mörgum kjark í brjóst. „Salan er engin tilviljun,“ segir hann. Mikil elja eigenda, stjórnenda og starfs- manna um árabil sé að skila sér í svona glæsilegum árangri. Sala CCP viðurkenning fyrir íslenskt hugvit Álitsgjafar Markaðarins segja söluna á CCP til Pearl Abyss fela í sér viðurkenn- ingu á því uppbyggingarstarfi sem hafi verið unnið innan fyrirtækisins. Salan sé engin tilviljun. Um er að ræða stærstu sölu á íslensku tæknifyrirtæki frá upphafi. Salan á Iberica skilaði margfaldri ávöxtun Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku banka. Hjalti Baldursson, forstjóri Bókunar. 2. Salan á Solo Seafood, eiganda spænska sölufyrirtækisins Icelandic Iberica, til íslenska sjávar­ útvegsfyrirtækisins Iceland Seafood International, sem gekk endanlega í gegn í september, hafnaði í öðru sæti í vali dómnefndar Markaðarins á viðskiptum ársins. „Ávöxtunin er svakaleg á átján mánuðum,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins og vísar til þess að selj­ endurnir hafi selt fyrirtækið á fjór­ falt hærra verði en þeir greiddu fyrir það í lok árs 2016. Að teknu tilliti til þess að ríflega 40 prósent af kaup­ verðinu var fjármagnað með lánsfé sjöfölduðu fyrrverandi eigendur Icelandic Iberica fjárfestingu sína. Sjávarsýn, fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar, Hjörleifur Ásgeirs­ son, framkvæmdastjóri Icelandic Iberica, og sjávarútvegsfyrirtækin Nesfiskur, Jakob Valgeir og FISK Seafood seldu Icelandic Iberica til Iceland Seafood en greitt var með 1.025 milljón nýjum hlutum í síðastnefnda félaginu, að virði 8,1 milljarðs króna, og peningagreiðslu upp á 64 milljónir króna. Seljendurnir eignuðust þannig samanlagt 44 prósenta hlut í Ice­ land Seafood en í kjölfar kaupanna var Bjarni kjörinn stjórnarformaður sjávarútvegsfélagsins. Til samanburðar keypti um­ ræddur fjárfestahópur Iberica af Iceland ic Group í desember 2016 fyrir ríflega 1,8 milljarða en síðar­ nefnda félagið var þá í eigu Fram­ takssjóðs Íslands. Kaupendurnir lögðu á þeim tíma sjálfir til tæplega 1,1 milljarð til kaupanna en það sem eftir stóð, um 700 milljónir króna, var fjármagnað með lánsfé. Verður álitsgjöfum Markaðarins tíðrætt um þá góðu ávöxtun sem fjárfestingin skilaði á einungis einu og hálfu ári. „Fjárfestahópnum tókst að kaupa félagið á góðu verði og marg­ falda virði fjárfestingarinnar þegar það var selt inn í Iceland Seafood. Þeir eru komnir með markaðs­ skráð bréf auk þess sem hópurinn er orðinn leiðandi í félaginu eftir sölu,“ nefnir einn álitsgjafi. Annar segir bæði kaupanda og seljendur hafa notið góðs af við­ skiptunum. „Seljendur innleystu góðan hagnað við söluna. Þá hefur gengi Iceland Seafood hækkað um nærri 30 prósent frá því að tilkynnt var um kaupin,“ tekur hann fram Markaðsvirði Iceland Seafood er ríflega 20 milljarðar króna og bendir einn úr dómnefndinni á að félagið sé orðið stærra en mörg félög á aðalmarkaði Kauphallarinnar. 3. Kaup Útgerðarfélags Reykja­víkur, áður Brims, á liðlega þriðjungshlut í HB Granda hlutu þriðja sætið í vali dómnefndar Markaðarins á viðskiptum ársins. Seljendur voru félögin Vogun og Fiskveiðahlutafélagið Venus, sem fóru með sölunni út úr hluthafa­ hópnum, og var verð hlutarins um 21,7 milljarðar króna. „Þetta eru djörfustu við­ skipti ársins,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins. Í kjölfar kaupanna gerði Útgerðar­ félag Reykjavíkur, sem er að mestu í eigu Guðmundar Kristjánssonar, öðrum hluthöfum í HB Granda yfir­ tökutilboð. Svo fór að fæstir hlut­ hafanna ákváðu að taka tilboðinu eða aðeins eigendur að samanlagt um þriggja prósenta hlut og fór eignarhlutur Útgerðarfélags Reykja­ víkur í félaginu því upp í 37 prósent. „Guðmundur náði að halda flestum stóru fjárfestunum inni, þar á meðal lífeyrissjóðunum, þrátt fyrir að vera umdeildur,“ nefnir einn af álitsgjöfunum. „Kannski segir það að peningar eru oftast blindir á persónur ef þeir sýna árangur. Að minnsta kosti þegar menn hætta sínum eigin peningum,“ bætir sá hinn sami við. Vogun er í eigu Hvals en stærsti hluthafi þess félags er Fiskveiða­ hlutafélagið Venus með um 43 pró­ senta hlut. Það félag er síðan aftur að stærstum hluta í eigu Kristjáns Loftssonar og fjölskyldu. „Það hlýtur að teljast afrek að hafa sannfært Kristján Loftsson um að selja sér,“ segir einn úr dóm­ nefndinni. Annar bendir á að um hafi verið að ræða risaviðskipti sem hafi í kjölfarið hleypt af stað keðju af öðrum áhugaverðum breyting­ um á eignarhaldi í sjávarútvegi. „Til að mynda losnaði um flækjuna í Vestmannaeyjum við söluna á hlut Brims í Vinnslustöð­ inni til Kaupfélags Skagfirðinga,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins en Guðmundur, sem minnihluta­ eigandi í Vinnslustöðinni, hafði um árabil staðið í hörðum deilum við meirihlutaeigendurna undir forystu Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar framkvæmdastjóra. Annar álitsgjafi nefnir að við­ skiptin hafi ekki verið síður góð frá sjónarhóli seljenda, Vog­ unar og Fiskveiðihlutafélagsins Venusar. „Kristján seldi bréfin á fimmtán prósentum yfir markaðsverði og í einum rykk. Það er ekki ónýtt að „cash­a“ út með þeim hætti,“ segir einn álitsgjafi Markaðarins. Kaupin í HB Granda djörfustu viðskiptin Björgólfur Thor Björgólfsson. „Svona hlutir gerast ekki af sjálfu sér og það má ekki vanmeta þá miklu vinnu sem fer í að rækta tengsl og búa til áhuga fjárfesta á fyrirtækinu. Það var ekki selt í net- verslun,“ bætir álitsgjafinn við. Enn einn álitsgjafinn segir söl- una fela í sér mikla viðurkenningu á því starfi sem hafi verið unnið innan CCP síðastliðna tvo áratugi. 51 milljarður króna er kaup- verð Pearl Abyss á CCP. Það er ekki auðvelt að byggja upp alþjóðlegt fyrirtæki á Íslandi frá grunni og koma því í sölu erlendis. Úr umsögn dómnefndar Bjarni Ármannsson. Guðmundur Kristjánsson. „Fleiri jákvæðar fréttir bárust af sölu á eignarhlutum í íslenskum nýsköp- unarfyrirtækjum á árinu en salan á CCP stendur upp úr hvað varðar stærð viðskipta,“ nefnir hann. Hilmari Veigari Péturssyni, sem hefur starfað hjá CCP í átján ár og stýrt félaginu í fjórtán ár, er hrósað sérstaklega fyrir að hafa leitt upp- byggingu tölvuleikjaframleiðand- ans, endurreist fyrirtækið og látið það í hendur Pearl Abyss fyrir mikla fjármuni. Hilmar Veigar átti um 6,5 pró- senta hlut í CCP en aðrir hluthafar voru til að mynda fjárfestinga- félagið Novator Partners, sem er meðal annars í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, og tengd félög með ríflega 43 prósenta hlut, bandaríski framtakssjóðurinn New Enterprise Associates með 23 prósenta hlut og bandaríski fjárfestingasjóðurinn General Catalyst Partners með rúman 21 prósents hlut. Aðrir minni hluthafar áttu samanlagt 5,7 prósent. Novator varð stærsti hluthafi CCP árið 2005 og ári síðar lagði General Catalyst Partners tölvuleikjafram- leiðandanum til fé. New Enterprise Associates fór í hluthafahópinn fyrir þremur árum þegar framtaks- sjóðurinn, sem er einn stærsti sinn- ar tegundar í heiminum, fjárfesti í félaginu fyrir um fjóra milljarða króna. Umræddir fjárfestar högnuðust ríkulega á fjárfestingu sinni. Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is 2 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R4 MARKAÐURINN 2 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 E 9 -5 5 D 4 2 1 E 9 -5 4 9 8 2 1 E 9 -5 3 5 C 2 1 E 9 -5 2 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 2 7 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.