Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins
smíðar nú frum
varp um opnari
háskóla, þar
sem reynsla úr
atvinnulífinu og
fjölbreytt þekking
yrði metin til inngöngu.
Atli Freyr
Ágústsson
sem er 11 ára
var þangað til á
síðasta ári með
hár niður á rass.
Hann ákvað þá
að láta klippa
sig og gefa hárið til
samtaka sem búa til hárkollur fyrir
börn sem glíma við krabbamein.
Lítil bandarísk stúlka fékk kollu úr
hárinu hans.
Kári Stefánsson
forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar
sagði í grein í
Fréttablaðinu
að félagshyggju
flokkarnir væru
ekki lengur mál
svarar verkalýðsins
á Íslandi.
Þrjú í fréttum
Háskólar,
hárkolla og
kjaramál
ÁRA5ÁBYRGÐ FIAT ATVINNUBÍLAR
FIAT DUCATO
Verð frá 3.943.548 án vsk.
4.890.000 m/vsk.
FIAT TALENTO L2H1
Verð frá 3.298.387 án vsk.
4.090.000 m/vsk.
FIAT DOBLO
Verð frá 2.225.806 án vsk.
2.760.000 m/vsk.
FIAT FIORINO
Verð frá 1.854.032 án vsk.
2.299.000 m/vsk.
ÁRA5ÁBYRGÐUMBOÐSAÐILI FIAT • ÞVERHOLTI 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 • WWW.FIATPROFESSIONAL.IS WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
TÖLUR VIKUNNAR 06.01.2019 – 12.01.2019
21% fólksfjölgun hefur orðið í Árborg á síðustu fimm
árum. Á síðasta ári einu fjölgaði
íbúum um nærri 500 og eru þeir nú
9.486 talsins.
6
milljónir tonna á ári
éta hvalir við Ís-
landsstrendur
að mati Haf-
rannsókna-
stofnunar.18.922voru íbúar
Reykjanesbæjar
1. janúar. Haldist þróunin óbreytt
mun Reykjanesbær að öllum
líkindum verða fjórða fjölmennasta
sveitarfélag landsins í lok mánaðar.
806
útköll fóru sjúkraflugvélar
Mýflugs í með 882 sjúklinga á
síðasta ári. Árið 2017 voru út-
köllin 796 en 670 árið 2016.
10 þúsund km tæpa munu
tveir hvalir ferðast frá Kína til
Vestmannaeyja í vor. Flugfélagið
Cargolux ætlar að kosta ferð Boeing
747 flutningavélar, svokallaðrar
júmbóþotu, með hvalina.
536
einstaklingar
biðu afplánun-
ar um áramót-
in. Rétt tæplega
fjórðungur
afplánunar-
fanga afplánaði
dóma utan
fangelsa í fyrra.
STJÓRNSÝSLA „Ég er ekki búinn að
fá neitt. Hef ekkert bréf fengið eða
neitt. Er ég bara ekki á listanum?“
segir Einar Kára son rit höfundur
við frettabladid.is að spurður um
við brögð sín við að hafa ekki fengið
út hlutað úr launa sjóði lista manna.
Kunngert var í gær hverjir fengju
listamannalaun úr ríkissjóði sam
kvæmt ákvörðunum úthlutunar
nefnda Launasjóðs listamanna. Alls
bárust 890 umsóknir um starfslaun
frá einstaklingum og hópum. Starfs
laun listamanna eru 392.498 krónur
á mánuði samkvæmt fjárlögum.
Meðal þjóðþekktra rithöfunda
sem ekki fá listamannalaun eru
Einar Kárason, Hallgrímur Helga
son og Auður Ava Ólafsdóttir. Hall
grímur kveðst hafa dregið umsókn
sína til baka þar sem hann seldi vel
fyrir jólin og Auður Ava Ólafsdóttir
gerði slíkt hið sama eftir að hafa
unnið til bókmenntaverðlauna
Norðurlandanna.
Öðru máli gegnir um Einar Kára
son sem sækir um ár lega. Hann fékk
laun til sex mánaða á síðasta ári og
níu mánuði þar á undan.
„Ég á ekki til orð. Hvaða djöfulsins
rugl er þetta,“ segir Einar. „Þetta er
bara mjög skrítið. Í rauninni finnst
mér að í öllum öðrum starfs greinum
hefði mönnum nú bara verið boð
inn starfs loka samningur eða eitt
hvað. Ég er búinn að hafa at vinnu
af þessu í fjöru tíu ár, og þetta er það
eina sem ég lifi á. Þetta er furðu legt,“
segir hann.
Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
upplýsti á Facebook í gær að hún
fengi listamannalaun í níu mánuði
að þessu sinni en ekki tólf „eins og
venjulega“, og veltir fyrir sér hvort
verið sé að refsa henni fyrir góða
sölu. Þessi niðurstaða ýti henni yfir
í fræðimennsku hluta úr árinu svo
hún megi sækja þá þrjá mánuði sem
upp á vantar í slíka sjóði.
Valur Gunnarsson fer bónleiður
til búðar eina ferðina enn og sagði á
Facebook: „Engin ritlaun í ár heldur.
Spariféð þurrkaðist út í gengishruni
haustsins. Ef LÍN bregst mér endan
lega fer ástandið að verða ansi tví
sýnt.“
Halldór Halldórsson, betur
þekktur sem Dóri DNA, var einn
ig dapur í bragði á Twitter þar sem
hann sagðist vera í vinnu núna en ef
hann efist um sjálfan sig muni allt
hrynja. „Því var ekki gaman að láta
synja sér um ritlaun,“ tísti hann.
Það eru ekki aðeins rithöfundar
sem fá listamannalaun. Þau eru
einnig veitt myndlistarmönnum,
tónskáldum, tónlistarflytjendum,
hönnuðum og sviðslistafólki og
hópum. Listamannalaun eru veitt
frá einum mánuði upp í allt að átján
í tilviki Hrafnhildar Arnardóttur
myndlistarmanns.
Alls voru umsækjendur 1.543 og
sóttu um samtals sextán hundruð
mánaðarlaun. Af þeim fengu 358
listamannalaun. Heildarlista yfir
úthlutunina og nánari umfjöllun er
að finna á frettabladid.is.
sunnak@frettabladid.is
thorarinn@frettabladid.is
Einar Kárason úti í kuldanum
við úthlutun listamannalauna
Opinberað var í gær
hverjir hljóta lista-
mannalaun á þessu ári.
Úthlutað var samtals
1.600 mánaðarlaunum.
Umsækjendur voru
1.543 en úthlutun fá 358
listamenn. Margir sitja
því eftir með sárt ennið.
Einar Kárason á að baki 40 ára farsælan rithöfundarferil en fær ekki krónu í listamannalaun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Ég á ekki til orð.
Hvaða djöfulsins
rugl er þetta?
Einar Kárson rithöfundur
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-2
E
9
0
2
2
0
2
-2
D
5
4
2
2
0
2
-2
C
1
8
2
2
0
2
-2
A
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K