Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 16
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir Með líku lagi liggur stór- yrtur sósíal- istaforingi, sem altalað er að hafi stundum snuðað starfsfólk sitt í fyrra lífi – lífi atvinnurek- andans, vel við höggi. Um síðustu helgi birtist aðsend grein í Morgun­blaðinu eftir Hall Hallsson fjölmiðlamann sem valdið hefur fjaðrafoki. Í greininni fjallar Hallur um meint samsæri George Soros og annarra „glóbal­ ista“ gegn vestrænni siðmenningu. „Til þess að breyta lýðsamsetningu hafa milljónir ólöglegra karla streymt til Vesturlanda í nafni opinna landamæra,“ segir Hallur. Sama dag og grein Halls birtist í Morgunblaðinu var frumfluttur heimildarþáttur á útvarpsstöð BBC þar sem meðal annars var fjallað um það sem kalla má eitt fyrsta framlag okkar Íslendinga til hins þokukennda samfélagsmeins sem Hallur kallar glóbalisma. Í þættinum, „History hour“, eða Sögustund, var rifjað upp atvik sem sagt var hafa „snúið á haus hvaða augum við lítum færni mannsins til ferðalaga og ævintýra­ mennsku“. Árið 1926 ákvað ungur Norðmaður, Helge Ingstad að nafni, að selja lögfræðiskrifstofuna sína, leggjast í ferðalög og skrifa bækur um það sem bar fyrir augu. Einn daginn fékk Helge aðdáendabréf frá lesanda. Lesandinn hét Anne Stine Moe og þau Helge gerðust fyrst pennavinir og svo par. Anne Stine var fornleifa­ fræðingur og þegar þau Helge giftu sig árið 1941 urðu þau ekki aðeins hjón heldur líka samstarfsfélagar. Helge hafði lengi haft áhuga á Íslendingasögunum. Eiríks saga rauða var í sérstöku uppáhaldi, einkum frásögnin af Leifi, syni Eiríks, sem fann land vestan við Grænland sem hann kallaði Vínland. Marga dreymdi um að það sem stóð í Eiríks sögu rauða væri satt, að norrænir menn hefðu fundið Ameríku á undan Kristó­ fer Kólumbusi. En enginn gat sýnt fram á það. Helge ákvað að kanna málið. Árið 1960 héldu Helge og Anne Stine til L’Anse aux Meadows, sjávarþorps á norðurodda Nýfundnalands. Þar hittu þau fyrir sjálfskipaðan forystumann þorps­ búa, George Decker, sem vísaði þeim á grasi vaxnar rústir. Anne Stine sagði tóftirnar norrænar í útliti. Næstu átta ár gróf Anne Stine upp fornminjarnar með dyggri aðstoð þorpsbúa. Minjarnar staðfestu loks frásagnir um að norrænir menn fundu og fluttu til Ameríku í kringum árið 1000. Í útvarpsþættinum var rætt við sérfræðing sem starfar á fornminjasvæðinu í L’Anse aux Meadows, Lorette Decker sem einnig er barnabarn George Decker, þess sama og kom Ingstad­hjónunum á sporið. Um ferðalög norrænna manna til Ameríku sagði Loretta: „Það skiptir ekki máli frá hvaða landi fólk kemur, saga mannsins snýst alltaf um sama hlutinn; að lifa, lifa af og sjá fjölskyldu sinni farborða.“ Lokaðir pappakassar Fólksflutningar og ferðalög með tilheyrandi útbreiðslu hugmynda, þekkingar, tækni og menningar eiga sér árþúsunda sögu. Eins og fornleifauppgröfturinn í L’Anse aux Meadows sýnir hófst streymi fólks milli heimsálfa töluvert áður en George Soros fæddist. Hallur Hallsson virðist aðhyllast þá söguskýringu að fyrri kynslóðir hafi alið aldur sinn í veröld sem byggð var úr kirfilega lokuðum pappakössum þar sem hver hópur dvaldi prúður í því boxi sem örlögin höfðu náðarsam­ legast úthlutað honum; enginn fór út, enginn kom inn, enginn kom neins staðar frá og enginn fór fet, allt var í röð og reglu uns George Soros kom til sögunnar og fólk, hugmyndir, fjármagn og ókunnugir menningarheimar tóku að troða sér ofan í pappakassann hans Halls. En veröldin hefur aldrei verið samansafn lokaðra pappakassa. Sumir segja að íslenska lopapeysan eigi rætur að rekja til Grænlands, aðrir til Svíþjóðar. Einu sinni voru Íslendingar heiðnir. Íslensk tunga á rætur sínar að rekja til frumgermönsku, sömu móðurtungu og danska, enska, þýska og önnur germönsk mál. Fimmtán þúsund vesturfarar fluttu frá Íslandi til Ameríku á síðari hluta 19. aldar, eða 20 prósent þjóðarinnar. Öll erum við einhvers staðar frá – líka Hallur Hallsson – og enginn veit hvert leið okkar liggur á morgun. Það er ekkert samsæri; það er bara fólk „að lifa, lifa af og sjá fjöl­ skyldu sinni farborða“. Samfélagsumræðan væri frjórri ef sum net­tröllin og einstaka stjórnmálamenn temdu sér meiri auðmýkt og segðu oftar: Ég bara veit það ekki. Fólk sem dag hvern tjáir einarða afstöðu og þykist hafa allt á hreinu, er sjaldan trúverðugt. Enda fellur það æ ofan í æ á próf­ inu ef rýnt er í málflutninginn. Karl Th. Birgisson, blaðamaður og rithöfundur, fjallaði nýlega um einstaklinga sem fylla þennan flokk. Hann segir á Facebook: „Kominn heim að loknum löngum degi og skrolla yfir facebook. Að vanda skammta Gunnar Smári og Hannes Hólmsteinn okkur hæfilegt skrum og stað­ reyndavillur, annar æstari en hinn, sem hefur áratuga­ langa þjálfun í orðskrúði á kostnað skattgreiðenda. Svartsýni púkinn á hægri öxlinni segir: „Svaraðu þeim með meitlaðri grein.“ Jákvæði púkinn á vinstri öxlinni segir: „Þetta líður hjá. Eins og Trump. Og flensan.“ – Reynslan segir að hyggilegast sé að sofa á þessu, en Smári og Hannes eru samt eins og fjölónæmar bakt­ eríur. Þeir hætta aldrei að valda okkur óumbeðinni vitsmunalegri kvefpest.“ Oft tekst afkastamiklum oflátungum að eigna sér prýðisgóðan málstað, gerast sjálfskipuð brjóstvörn hans og vinna honum tjón frekar en gagn. Stundum eina hugsjón í dag og aðra á morgun. Ekki ber að lasta fólk fyrir að skipta um skoðun. En þá þarf að kannast við fyrri skoðanir. Ekki síst þegar sjálfsagðar gjörðir fyrra lífs verða ljótar misgjörðir eftir skoðanaskiptin. Furðu sætir að fjöldahreyfingar, sem lúta reglum lýðræðis og kjósa sér forystu, hirða lítið um að hrista af sér slíka talsmenn. Einstaklingar eru misvel í stakk búnir til að messa yfir fólki. Fortíðin skiptir máli. Ef marga snögga bletti er að finna á viðkomandi miðað við það sem hann boðar getur verið betra, málstaðarins vegna, að hafa hægt um sig. Frjálshyggjumaður sem gerir út á kerfið í skjóli ráðamanna, sem útdeila skattfé, er skotmark. Með líku lagi liggur stóryrtur sósíalistaforingi, sem altalað er að hafi stundum snuðað starfsfólk sitt í fyrra lífi – lífi atvinnurekandans, vel við höggi. Þeir eru á báti með þingmanninum sem ekur hring eftir hring á okkar kostnað án þess að takast að sann­ færa nokkurn mann um lögmætt erindi bíltúrsins. Hann varð sjálfkrafa skotspónn sem drepur heil­ brigðri stjórnmálaumræðu á dreif. Sexmenningarnir á barnum Klaustri eru sama marki brenndir. Þetta snýst um réttmætar tilfinningar fólks. Í nálægum löndum er virðing borin fyrir slíku. Fólk í trúnaðarstörfum dregur sig í hlé þegar það verður of umdeilt fyrir annað en málefnin sem tekist er á um. Sé starfsfriði ógnað af þeirra völdum finnur það á eigin skinni að það þjóni málstaðnum best að hverfa á braut í von um að endalaust rausið fjari út. Þau skynja að þau sjálf eru tilefnið. Með slíku raunsæi má endurvinna traust. Regla hópíþróttanna – enginn einstaklingur er stærri en liðið – er góð viðmiðun. Svo má leitast við að gera hreint fyrir sínum dyrum og stíga inn á völlinn á ný. Endalaust raus 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN Að lifa og lifa af 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 0 2 -1 5 E 0 2 2 0 2 -1 4 A 4 2 2 0 2 -1 3 6 8 2 2 0 2 -1 2 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.