Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 18
14.30 Rússland - Kórea A-riðill
17.15 Þýskaland - Brasilía A-riðill
19.30 Frakkland - Serbía A-riðill
14.30 Austurríki - Síle C-riðill
17.15 Noregur - Sádi-Arabía C-riðill
19.30 Danmörk - Túnis C-riðill
HM í handbolta
HM dagskráin í dag
Hættulegustu mennirnir
Mörk + stoðsendingar 14
2 Lína
2
8 3
5
Vítaköst
2 Víti
Hraðaupphlaup
4
Markvarsla
10/41
Mörk úr leikstöðum
4 3Aron Pálmarsson 7+7
Elvar Örn Jónsson 5+3
Arnór Þór Gunnarsson 5+0
Bjarki Már Elísson 4+0
Ómar Ingi Magnússon 3+0
Arnar Freyr Arnarsson 2+0
Maður leiksins
Aron Pálmarsson
var virkilega góður
í þessum leik. Hann
va r m a r k a h æ s t i
leikmaður íslenska
liðsins með sjö mörk
og skapaði einnig
níu færi fyrir sam-
herja sína og átti
sjö stoðsendingar.
ÍSLAND - KRÓATÍA
0 Arnór Þór Gunnarsson brenndi ekki af neinu skoti sínu.
5 Björgvin Páll og Ágúst Elí vörðu fimm skot hvor í þessum leik.
Aron Pálmarsson kom að 14
mörkum íslenska liðsins í leiknum.
27 31
B-riðill
Ísland - Króatía 27-31
Mörk Íslands (Skot): Aron Pálmarsson 7
(10), Elvar Örn Jónsson 5 (11), Arnór Þór
Gunnarsson 5 (5) þar af 2 úr vítum, Bjarki
Már Elísson 4 (6), Ómar Ingi Magnússon 3
(5), Arnar Freyr Arnarsson 2 (4), Ólafur Guð-
mundsson 1 (2).
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 5/1
(27/4, 18,5%), Ágúst Elí Björgvinsson 5 (14,
35,7%).
Mörk Króatíu: Luka Stepancic 8, Luka Cindr-
ic 6, Zlatko Horvat 5, Domagoj Duvnjak 4,
Igor Karacic 2, Marin Zipic 2, Zeljko Musa 2,
David Mandic 1, Manuel Strlek 1.
Makedónía - Japan 38-29
Spánn - Barein 33-23
Stig þjóða: Makedónía 2, Króatía 2, Spánn
2, Barein 0, Ísland 0, Japan 0.
A-riðill
Serbía - Rússland 30-30
Frakkland - Brasilía 24-22
Stig þjóða: Þýskaland 2, Frakkland 2, Rúss-
land 1, Serbía 1, Brasilía 0, Kórea 0.
C-riðill
Austurríki - Sádi-Arabía 29-22
Noregur - Túnis 34-24
Stig þjóða: Danmörk 2, Noregur 2, Austur-
ríki 2, Sádi-Arabía 0, Túnis 0, Síle 0.
D-riðill
Angóla - Katar 24-23
Argentína - Ungverjaland 25-25
Svíþjóð - Egyptaland 27-24
Stig þjóða: Svíþjóð 2, Angóla 2, Argentína 1,
Ungverjaland 1 Katar 0 og Egyptaland 0.
Austurríki sem
leikur undir
stjórn Pat-
reks Jóhann-
e s s o n a r
vann sann-
færandi sjö
m a r ka s i g u r
þegar liðið mætti
Sádi-Arabíu í C-riðli mótsins.
Austurríki mætir síðan Síle í ann-
arri umferð C-riðilsins á morgun.
Kristján Andrésson heldur svo
um stjórnartaumana hjá sænska
liðinu, en Svíþjóð vann nauman
þriggja marka sigur á Egyptalandi í
leik liðanna í gær. Svíar og Egyptar
leika í D-riðli mótsins, en ekki er
leikið í þeim riðli á morgun. Svíþjóð
mætir svo Argentínu á sunnudaginn
kemur.
Lærisveinar Dags Sigurðssonar
töpuðu með níu marka mun fyrir
Makedóníu og Barein sem Aron
Kristjánsson stýrir laut síðan í lægra
haldi fyrir Spáni með tíu marka
mun. Japan og Barein eru í B-riðli
mótsins líkt og Ísland. – hó
HANDBOLTI Ísland laut í lægra haldi
með fjórum mörkum þegar liðið
mætti Króatíu í fyrstu umferð í
B-riðli heimsmeistaramótsins í
handbolta karla í gær. Frammistaða
íslenska liðsins í leiknum var heilt
yfir mjög góð, en tveir slæmir kaflar
í lok beggja hálfleikjanna gerðu það
að verkum að Króatar fóru með
sigur af hólmi í leiknum.
Sóknarleikur íslenska liðsins
var vel skipulagður og einkar vel
útfærður lungann úr leiknum. Þar
fór Aron Pálmarsson gjörsamlega
á kostnum, en hann skoraði sjö
mörk í leiknum og átti þar að auki
sjö stoðsendingar á samherja sína.
Aron gaf tóninn með fyrstu tveimur
mörkum leiksins og átti sinn besta
landsleik í langan tíma.
Það var svo ekki að sjá að Elvar
Örn Jónsson væri að spila á sínu
fyrsta stórmóti, en hann var næst-
markahæstur í íslenska liðinu
með fimm mörk. Elvar Örn var
bæði áræðinn og öruggur í sínum
aðgerðum og gaman að sjá hversu
langt hann er kominn í þróun sinni
sem handboltamaður.
Ísland hafði forystu, 26-25, þegar
tæpar tíu mínútur voru eftir af
leiknum, en lokakafli leiksins fór
7-1 Króatíu í vil og því fór sem fór.
Króatíska liðið skoraði sömuleiðis
fimm síðustu mörk fyrri hálfleiks-
ins og því voru það lokakaflar hálf-
leikjanna sem urðu íslenska liðinu
að falli líkt og áður sagði.
Stefán Árnason, álitsgjafi Frétta-
blaðsins, var virkilega ánægður
með spilamennsku íslenska liðsins í
leiknum, en telur að slæmur varnar-
leikur og tapaðir boltar þegar mest á
reyndi hafi reynst liðinu dýrkeyptir.
„Mér finnst fyrst og fremst unun
að sjá hversu vel undirbúið íslenska
liðið mætti til leiks. Það var auð-
sjáan legt að Guðmundur Þórður
Guðmundsson hafði kortlagt Króat-
ana gríðarlega vel og sömuleiðis
sett sóknarleikinn vel upp. Það var
líka frábært að sjá hversu vel Aron
Pálmarsson spilaði í leiknum og
það er langt síðan maður sá hann í
þessum ham með landsliðinu. Það
er greinilegt að Guðmundur er að ná
því besta fram í Aroni,“ sagði Stefán
um leikinn í gær.
„Það gladdi mig svo mikið að
sjá hversu vel Elvar Örn kom inn
í leikinn. Hann var skynsamur í
sínum aðgerðum, aðgangsharður
og kláraði færin sín vel. Ég vissi vel
hvað býr í honum þar sem hann
hefur sýnt það áður bæði með
yngri landsliðunum og Selfossi. Það
var hins vegar ánægjulegt að sjá að
hann gæti verulega látið til sín taka
á stærsta sviðinu,“ sagði hann enn
fremur.
„Ómar Ingi Magnússon átti svo
góða spretti í leiknum og skoraði
mörk á mikilvægum augnablikum
í leiknum. Ágúst Elí Björgvinsson
kom með góða innkomu í markið
í seinni hálfleiknum. Markvarslan
heilt yfir í leiknum var hins vegar
ekki nógu góð. Það verður hins
vegar að taka það fram þeim til
varnar að mér fannst við ekki ná
okkur nægilega vel á strik í varnar-
leiknum nema á stuttum köflum í
hvorum hálfleik. Það var svo sem
vitað að það yrði erfitt að ráða við
leikmenn eins og Luka Stepancic,
Luka Cindric og Domagoj Duvnjak.
Við vorum ekki nógu sterkir maður
á móti manni á móti þeim sem er
reyndar mjög eðlilegt þar sem þetta
eru leikmenn í hæsta gæðaflokki,“
sagði Stefán.
„Mér fannst þessi leikur hins
vegar gefa jákvæð fyrirheit fyrir
framhaldið, en næsti leikur sem er
gegn Spáni verður hins vegar gríðar-
lega erfiður þar sem Spánverjar eru
með sterkara lið en Króatía að mínu
mati. Þessi leikur sýndi hins vegar
hversu langt okkar lið er komið
og það er ekkert langt í bestu lið
heims,“ sagði hann um framhaldið
hjá íslenska liðinu.
hjorvaro@frettabladid.is
Króatar sterkari á ögurstundu
Frammistaða íslenska karlalandsliðsins í handbolta í fyrsta leik sínum á heimsmeistaramótinu lofaði góðu.
Íslenska liðið lék heilt yfir vel í leikum, það voru smáatriði sem réðu því að Króatar höfðu að lokum betur.
Elvar Örn Jónsson átti afar góðan leik þegar íslenska liðið mætti Króatíu. Hann skoraði fimm marka Íslands og gaf þrjár stoðsendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Mér fannst þessi
leikur gefa jávkæð
fyrirheit fyrir framhaldið, en
næsti leikur gegn Spáni
verður hins vegar gríðarlega
erfiður þar sem Spánverjar
eru með sterkara lið en
Króatía að mínu mati.
Stefán Árnason
Misjafnt gengi
hjá íslensku
þjálfurunum
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-2
4
B
0
2
2
0
2
-2
3
7
4
2
2
0
2
-2
2
3
8
2
2
0
2
-2
0
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K