Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 12.01.2019, Blaðsíða 25
Frækinn sigur Þorleifs Ýmislegt annað er á seyði innan leikhúsheimsins. Á síðustu árum hafa markaðsdeildir stóru leikhús- anna komið sér upp þeim afleita sið að nota erlenda gagnrýni til að auglýsa komandi sýningar. Leik- sýningar á sviði eru ekki eins og kvikmyndir, miðillinn er lifandi og breytist eftir því hvar og hvernig leikverkið er sýnt. Ný sviðslistalög voru sömuleiðis umdeild enda var fagfólk innan sviðslistaheimsins varla með í ráðum þegar þau voru samin. Ekki er ennþá komin niðurstaða í það mál en von- andi verður skýr afstaða tekin með sviðslistafólki og fjármagn aukið til muna þar sem ríkisafskipti af íslenskum sviðslistum hafa staðnað á síðustu misserum. Kynningarmið- stöð fyrir íslenskar sviðslistir er fyrir löngu orðin tímabær. Íslenskt sviðslistafólk hefur líka verið að hasla sér völl erlendis. Þar ber helst að nefna frækinn sigur Þor- leifs Arnar Arnarssonar á Goethe- verðlaununum en hann var valinn besti leikstjóri Þýskalands fyrir vinnu sína við Die Edda eftir Mikael Torfason. Norræna danshátíðin Ice Hot, vettvangur fyrir norræna dans- menningu, var haldin í Tjarnarbíó og leidd af Ásu Richardsdóttur sem nýlega var ráðin aðalframkvæmda- stjóri IETM, alþjóðlegra tengslasam- taka fyrir samtímasviðslistir. Einnig var Ragnheiður Skúladóttir ráðin sem listrænn stjórnandi Artic Arts Festival í Noregi. Leiklestur Borgarleikhússins á samtali og sumbli þingmannanna á Klaustri var umdeildur en leikhús á að vera ögrandi og beintengt í sam- tímann. Greinilegt var á fjöldanum sem mætti á viðburðinn að áhug- inn var fyrir hendi og varð jafnvel til þess að einstaklingar sem stunda ekki leikhús reglulega létu sjá sig. Minna hefur farið fyrir NT Live sýningum í Bíó Paradís síðustu mánuði en oft áður. Vonandi hverfa þessir viðburðir ekki af sjónar- sviðinu enda mikilvæg viðbót við flóruna. Bestu sýningar síðustu mánaða (jólasýningarnar verða ræddar seinna í pistlinum) voru Allt sem er frábært í Borgarleikhúsinu, Ronja ræningjadóttir í Þjóðleikhúsinu og Leitin að tilgangi lífsins í boði 16 elskenda staðsett á gömlu Lækna- vaktinni við Smáratorg. Þessar sýningar eru kannski ólíkar en eiga það sameiginlegt að vera einlægar og virkilega vel skrifaðar. Öllu tjaldað til Fyrri helmingur leikársins endaði eins og hann byrjaði, með tveimur afar ólíkum sýningum í Þjóðleik- húsinu og Borgarleikhúsinu. Jóla- sýningarnar voru að þessu sinni Einræðisherrann eftir snillinginn Charlie Chaplin í nýrri danskri uppfærslu Nikolajs Cederholm og Ríkharður III eftir William Shake- speare í leikstjórn Brynhildar Guð- jónsdóttur. Öllu var tjaldað til hvað varðar leikhópa og uppsetningu. Einræðisherrann  er hressileg blanda af ærslafullum gamanleik og hádramatískum boðskap þar sem Sigurður Sigurjónsson sýnir hvers hann er megnugur sem leikari. Er ekki kominn tími til að hann fái að spreyta sig á bitastæðri dramatískri rullu? Engar efasemdir eru um að Rík- harður III  er langbesta sýning síðustu mánaða þar sem ótrúlegur texti Shakespeares var framreiddur af skynsemi og skýrleika. Hjörtur Jóhann Jónsson hefur verið áber- andi í smærri hlutverkum síðustu ár og fékk loksins að uppskera eftir alla þá vinnu sem hann hefur lagt til í gegnum tíðina. Túlkun hans á Rík- harði er hreint út sagt stórkostleg. En er þessum stóru sýningum gefið of mikið pláss þannig að þær yfirþyrmi aðrar í húsunum? Ekki svo að segja að sýningar á borð við Einræðisherrann og Ríkharð III eigi ekki sinn stað í íslensku leikhúsi, þvert á móti, enda eru báðar mjög eftirminnilegar. Spurningin er hvort þær komi niður á smærri sýningum í stóru húsunum. Drottning sjálfstæða sviðsins Hvað einstaka leikara varðar í öðrum sýningum þá er Sólveig Guðmundsdóttir ókrýnd drottning sjálfstæða sviðsins en hún bar af í sýningum á borð við Svartlyng og Rejúníón. Í þessu samhengi er einn- ig vert að nefna Val Frey Einarsson sem virðist ekki geta skrikað fótur á leiksviðinu og kvenaldan í Ríkharði III er óviðjafnanleg. Þar ber sérstak- lega að nefna endurkomu Krist- bjargar Kjeld og er kærkomið að sjá leikara af eldri kynslóðinni sýna að þeir hafa engu gleymt. Gleðilegt nýtt ár og megi næstu mánuðir bera með sér endurnýjaða orku á íslensk leiksvið. Sigríður Jónsdóttir AFTUR Á MÓTI ER ENN ÁSTÆÐA TIL AÐ MINNA ÁHORFENDUR Á AÐ KAUPA MIÐA OG MÆTA Á NÝ ÍSLENSK VERK, SÉRSTAK- LEGA EFTIR HÖFUNDA SEM ERU AÐ STÍGA SÍN FYRSTU SKREF. Skil á upplýsingum vegna skattframtals Skila skal eftirtöldum upplýsingum vegna ársins 2018 á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is Skilafrestur er til 20. janúar Launa- og verktaka upplýsingar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.). Einnig allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota. Hlutafjárupplýsingar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og sparisjóðir. Stofnsjóðsupplýsingar Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Viðskipti með hlutabréf/afleiður og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf. Innstæður Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar, eða hafa milligöngu um ávöxtun, vörslu eða aðra ráðstöfun fjármuna. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttar samninga. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Lánaupp lýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstakl inga og lögaðila. Greiðslur fyrir leigu eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum. Einnig þeir sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu. Fjármagnstekjur Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og tilgreina sundurliðun á móttakendur og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtu aðila, t.d. lögmannsstofur. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur) Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003. 2019 Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 rsk@rsk.is Sjá nánar auglýsingu ríkisskattstjóra nr. 1146/2018 í B-deild Stjórnartíðinda. H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 25L A U G A R D A G U R 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 0 2 -5 F F 0 2 2 0 2 -5 E B 4 2 2 0 2 -5 D 7 8 2 2 0 2 -5 C 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.