Fréttablaðið - 12.01.2019, Qupperneq 38
Magnús Frið
bergsson mælir
með sæbjúgna
hylkjum frá
Arctic Star en
hann finnur
mun á sér eftir
að hann fór að
nota þau. Sæ
bjúgu innihalda
fimmtíu tegund
ir af næringar
efnum.
Í Kína eru sæbjúgu þekkt sem heilsubótarfæði og notuð til bóta við hinum ýmsu
meinum. Kínverjar kalla
sæbjúgu gjarnan „ginseng
hafsins“ og til eru sagnir um
notkun sæbjúgna þar fyrir
meira en þúsund árum.
Arctic Star sæbjúgnahylk-
in innihalda yfir fimmtíu
tegundir af næringarefnum
sem geta haft jákvæð áhrif
á lífeðlisfræðilega starfsemi
mannslíkamans, til dæmis
er mikið kollagen í þeim en
það er eitt helsta uppbygg-
ingarprótein líkamans.
Finnur mikinn
mun á sér
Á síðustu árum hefur Arctic
Star sérhæft sig í þróun
á fæðubótarefnum, svo
sem framleiðslu, markaðs-
setningu og sölu á hágæða
sæbjúgnahylkjum. Hylkin eru
framleidd úr íslenskum, hágæða,
villtum sæbjúgum sem eru veidd í
Atlantshafinu.
Magnús Friðbergsson, verkefna-
stjóri hjá Landspítala, hefur tekið
sæbjúgnahylkin frá Arctic Star
undanfarin tvö ár. „Vinur minn
kynnti mig fyrir sæbjúgnahylkjun-
um og þar sem ég hafði lengi verið
slæmur í hnjám, með liðverki og
lítið getað beitt mér, ákvað ég að
prófa. Tveimur til þremur vikum
seinna fann ég mikinn mun. Nú
hef ég tekið sæbjúgnahylkin í
tvö ár og fer allra minna ferða án
óþæginda. Það er algjör bylting frá
því sem áður var. Nú get ég gert
hluti eins og að fara í langar göngu-
ferðir, sem ég gat varla gert áður.
Að minnsta kosti gerði ég það
ekki með bros á vör og það tók
mig langan tíma að jafna mig eftir
álag,“ útskýrir hann.
Magnús, sem er 69 ára gamall í
dag, hafði fengið að heyra frá lækni
að mikið slit væri í hnjám hans
og ekki væri von á að það gengi
til baka. „Hann sagði mér að kíkja
á fæðingardaginn minn og að ég
gæti ekki búist við að fara aftur
í tíma. Mér fannst vont að heyra
þetta og var því tilbúinn að prófa
ýmislegt sem gæti mögulega lagað
þetta. Sæbjúgnahylkin frá Arctic
Star virka mjög vel á mig og ég
mæli með að fólk prófi þau.“
Framleiðandi sæbjúgna er Arctic
Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á arcticstar.is. Arctic Star
sæbjúgnahylki fást í flestum apó
tekum og heilsubúðum og í Hag
kaupum.
Sæbjúgnahylkin eru bylting
Magnús er betri í hnjám og finnur
minna fyrir liðverkjum eftir að hann
fór að taka sæbjúgna hylkin. MYND/GVA
Ungt fólk er
ekki einungis
upptekið í sím
un um sínum
og tölvum.
Það hefur ekki
lengur áhuga á
hjónabandi og
barneignum. Nú
er svo komið að í
sumum löndum
er lítil frjósemi
orðið mikið
áhyggjuefni.
Fólksfjölgun er minnst í Suður-Kóreu af öllum heiminum. Það er verulegt áhyggjuefni
þar í landi hversu lítinn áhuga ungt
fólk hefur á ástarsamböndum.
Frami á vinnumarkaði þykir
eftirsóknarverðastur hjá ungu
kynslóðinni sem hefur ekki hug á
að stofna fjölskyldu og hlaða niður
börnum. Settar hafa verið af stað
dýrar herferðir til að hvetja ungar
konur til að eignast börn. Á meðan
þjóðin fjölgar sér ekki eldist hún.
Ungar konur vilja mennta sig,
fá góða vinnu og vera vel stæðar
peningalega. Sama vandamál hefur
verið í Japan undanfarin ár sem
þýðir að þjóðin eldist stöðugt. Nú
er Suður-Kórea að ná Japan að
þessu leyti. „Það er ákaflega erfitt
ef ekki ómögulegt að byggja upp
góðan starfsferil og ala upp börn
á sama tíma,“ segir Chung Hyun,
fyrrverandi prófessor við Seoul-
háskóla og núverandi ráðherra, við
blaðið Japan Times og bendir á að
kvenkyns prófessorar um fimm-
tugt séu allir einhleypir.
Mikill hagvöxtur hefur verið í
Suður-Kóreu á undanförnum árum
á meðan fæðingartíðni hrapar og
frjósemishlutfall er nú það lægsta
sem gerist í heiminum. Aldrei hafa
færri börn fæðst í landinu en árið
2017. Sérfræðingar vilja kenna
um mjög háu íbúðaverði, miklum
kostnaði við að ala upp börn og
að konur óttist að missa vinnuna
verði þær barnshafandi. Talið er að
árið 2050 muni íbúatala landsins
hafa hrunið. Chung segir að stjórn-
völd hafi ekki tekið eftir hver hinn
raunverulegu sökudólgur sé, það er
kynjamismunun og ómannúðlega
langir vinnudagar.
Suður-Kórea hefur næstlengsta
vinnutíma í OECD en engu að
síður er gert ráð fyrir að konur
annist börn sín, hvort sem þær
vinna úti eða ekki. Mörg fyrir-
tæki kjósa að segja upp ófrískum
konum í stað þess að borga þeim
fæðingarorlof. Þá hefur borið á
að ef kona eignast barn og kemur
aftur til starfa er búið að breyta
starfssviði hennar. „Undir þessum
kringumstæðum velja konur frekar
starfsferil í stað hjónabands og
barneigna,“ segir Chung. Fyrir-
bærið hefur verið kallað „fæðingar-
verkfall“. Ef ekki verður tekið á
þessu vandamáli verður framtíð
Suður-Kóreu skelfileg,“ segir hún.
Í grein á vefsíðunni forskning.
no er skrifað um minnkandi
barneignir í Noregi. Þar í landi
hafa konur úti á landi verið dug-
legastar að fjölga mannkyninu
en nú virðast þær einnig fækka
barneignum. Fæðingartíðni lækkar
jafnt og þétt í þorpum og sveitum
landsins. Í Ósló hefur frjósemin
verið minnst en landsbyggðin
nálgast nú borgina í þeim efnum.
„Fæðingartíðni hefur lækkað í
öllum sýslum og sveitarfélögum,“
segir öldrunarfræðingurinn Astri
Syse. „Þá hefur fæðingaraldur
hækkað mikið. Skýringin er að
hluta til talin liggja í aukinni
menntun kvenna. „Fólk fjár-
festir frekar í lengri menntun til að
komast í góða vinnu. Margir seinka
barneignum og það er algengara
en áður hefur verið að fólk kýs að
vera barnlaust. Börn passa ekki inn
í nútíma lífsmynstur.“
Vilja ekki eignast börn
Þau eru yndis-
leg litlu krílin
en svo virðist
sem fólk hafi
ekki tíma fyrir
þau lengur.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Vilt þú geta dansað?
Við getum kennt þér.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 2 . JA N ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-9
1
5
0
2
2
0
2
-9
0
1
4
2
2
0
2
-8
E
D
8
2
2
0
2
-8
D
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K