Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 44
Sérfræðingur í eignastýringu
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskóla-
menntaða. Allir sem lokið hafa grunnnámi á
háskólastigi geta sótt um aðild að sjóðnum.
Lífsverk var fyrsti lífeyrissjóðurinn sem
byggði á aldurstengdum réttindum, tók upp
sjóðfélagalýðræði og rafrænt stjórnarkjör.
Sérstaða Lífsverks er m.a. hár ávinningur
réttinda og val um leiðir fyrir skyldusparnað.
Sjóðurinn er ört vaxandi og nemur hrein
eign í árslok um 85 milljörðum króna.
Gildi sjóðsins eru:
Heilindi – jákvæðni – ábyrgð
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á
www.lifsverk.is
Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma 511 1225.
Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2019. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar fyrirspurnir
og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf og þarf
umsækjandi að geta sýnt fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus.
Reynsla, menntun og hæfni/kostir:
• Háskólapróf í viðskiptafræði, verkfræði eða
sambærileg menntun. Meistarapróf er kostur
• Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur
• Sjálfstæði, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
• Haldgóð starfsreynsla í eignastýringu eða á
fjármálamarkaði
• Greiningarhæfni og hæfni til að setja fram efni
og niðurstöður í tölum og texta
• Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
• Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Samskipti við innlenda og erlenda aðila á
fjármálamörkuðum
• Eftirfylgni með fjárfestingum
• Skýrslugerð og upplýsingagjöf til stjórnar
• Framkvæmd viðskipta með verðbréf í
samræmi við fjárfestingarstefnu sjóðsins
• Greining markaða og fjárfestingatækifæra
með áherslu á innlendan skulda- og
hlutabréfamarkað
• Sækja upplýsinga- og kynningarfundi tengda
starfinu
Lífsverk lífeyrissjóður óskar eftir að ráða sérfræðing í eignastýringu. Eignastýring Lífsverks
er tveggja manna teymi sem annast stýringu og eftirlit með eignum sjóðsins.
Intellecta Síðumúli 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Skipaskoðun / löggildingar
mælitækja
Frumherji hf. leitar eftir starfsmanni til starfa
við skipaskoðanir og löggildingu mælitækja.
Í boði er fjölbreytt starf hjá traustu fyrirtæki með
góðan starfsanda.
Starfið er tvíþætt:
- Lögbundin skoðun skipa/báta allt að 400 brúttótonn
að stærð.
- Löggilding á vogum og öðrum mælitækjum.
Viðskiptavinir Frumherja eru staðsettir um allt land og starf-
inu fylgja talsverð ferðalög.
Starfsmaður mun hljóta góða tæknilega þjálfun í skoðunum
og löggildingum í upphafi starfs.
Hæfniskröfur
Þarf að uppfylla a.m.k. eitt af eftirtöldum skilyrðum:
• Atvinnuskírteini yfirvélstjóra sem heimilar honum að taka
að sér starf um borð í skipi þar sem afl aðalvélbúnaðar
er 3.000 kW eða meira (sbr. STCW-regla III/2) og hafa
starfað til sjós í fimm ár að minnsta kosti sem yfirmaður í
vélarúmi.
• Iðnmenntun og meistararéttindi á viðkomandi sviði (svo
sem: vélvirkjun, skipasmíði, plötusmíði, rafvirkjun eða
sambærileg menntun) og unnið sem slíkur í fimm ár að
minnsta kosti.
• Atvinnuskírteini skipstjóra sem heimilar honum að stjórna
skipi sem er 1.600 brúttótonn að stærð eða meira (sbr. ST-
CW-regla II/2) og hafa starfað til sjós í fimm ár að minnsta
kosti sem yfirmaður á þilfari.
Aðrar kröfur
• Ökupróf er skilyrði, meirapróf er kostur.
• Rík þjónustulund og jákvæðni í starfi.
• Nákvæmni í vinnubrögðum og sjálfstæði í starfi.
• Almenn tölvukunnátta.
• Færni í rituðu máli.
Umsóknir
Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Frumherja hf.
Einnig er hægt að senda umsóknir á Hallgrím Hallgrímsson
tæknistjóra Prófunarstofu, hallgrimur@frumherji.is sem
veitir frekari upplýsingar um starfið í síma: 570 9264.
Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2019.
Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem
trúnaðarmál.
Frumherji hf. er leiðandi á sviði skoðana, prófana og tengdrar þjónustu á Íslandi.
Fyrirtækið er með starfsemi um land allt og þjónustar viðskiptavini sína á 32
starfsstöðvum. Hjá fyrirtækinu vinna um 100 manns. Frumherji starfar sem fag-
gild skoðunarstofa á fimm sviðum í samræmi við ISO staðla 17020 og 17025.
Frumherji hf. | Þarabakki 3 | 109 Reykjavík | www.frumherji.is
www.vedur.is
522 6000
Sérfræðingur á sviði
vatnafræði og flóðavár
Umsóknarfrestur er til og með
28. janúar nk.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um
að sækja um störfin á www.starfatorg.is.
Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðan
leiki, framsækni og samvinna. Ráðningar
hjá stofnuninni munu taka mið af þessum
gildum.
Veðurstofa Íslands er opinber stofnun
sem heyrir undir umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytið. Hjá stofnuninni starfa um 140
manns með fjölbreytta menntun og starfs-
reynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk
þess starfa um 70 manns við athugana- og
eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Hlut verk
stofn un ar innar er öflun, varðveisla og
úrvinnsla gagna, sem og miðlun upp lýs-
inga á helstu eðlisþáttum jarðarinnar,
þ.e. lofti, vatni, jörð, snjó, jöklum og
hafi. Starfsemin fer fram á fimm sviðum:
Eftirlits- og spásviði, Fjármála- og
rekstrarsviði, Athugana- og tæknisviði,
Úrvinnslu- og rannsóknasviði
og Upplýsingatæknisviði.
Nánari upplýsingar um stofnunina má
finna á heimasíðu hennar www.vedur.is
Veðurstofa Íslands annast kerfisbundnar
vatnamælingar í ám, stöðuvötnum og
grunn vatni, þ.m.t. mælingar á rennsli, vatns-
hæð, vatnshita, aurburði og öðrum eðlis- og
efnafræðilegum eiginleikum vatns.
Veðurstofa Íslands auglýsir eftir sérfræðingi
á sviði vatnafræði og flóðavár í fullt starf
á Úrvinnsluog rannsóknarsviði. Á sviðinu
starfa um 50 manns við ýmis spennandi
þróunar- og rannsóknarverkefni er tengjast
veður- og lofts lags rannsóknum, jökla-,
vatna- og haf ræði, jarðskorpuhreyfingum,
eld gosum og ofan flóðum. Starfið fellur undir
fag svið vatns og jökla þar sem 15 manna
sam hentur hópur vinnur sam eiginlega að
marg víslegum verk efnum er varða m.a.
vatna fræði- og straum fræði lega líkan gerð,
auk þess sem unnið er að þróun flóðagrein-
inga og flóða spáa, rann sóknum á grunnvatni
og kort lagn ingu vatns auðlindarinnar. Unnið
er að sam þættingu ofangreindra líkana við
veður-, jökla- og haflíkön eftir því sem við á.
Veður stofa Íslands er leiðandi stofnun í vinnu
við áhættu mat í tengslum við náttúruvá og
er vinna við áhættumat tengdum flóðum,
ofan flóðum og eldgosum sífellt stærri hluti af
verk efnum sviðsins.
Helstu verkefni
Sérfræðivinna við úrvinnslu vatnafræðigagna
og vatnafræði- og straumfræðilega líkangerð,
bæði hvað varðar aðferðafræði, úrvinnslu og
tengingu líkana við aðrar afurðir. Vinna við
áhættumat flóða og jökulhlaupa. Leiðandi
hlut verk í flóðagreiningu og áhættumati í
stærri náttúruváratburðum. Ritun skýrslna
og greina og þátttaka í kynningum verkefna
innan lands og erlendis. Mótun og þátttaka
í rann sókna verkefnum á sviði vatna-,
straum fræði og áhættumats. Verkefnisstjórn
til greindra verkefna eftir atvikum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf og framhaldsmenntun á sviði
raunvísinda og/eða verkfræði
Farsæl reynsla í vatna- og/eða
straumfræðirannsóknum er nauðsynleg
Þekking á áhættumatsferlum tengdum
náttúruvá er kostur
Góð kunnátta í landupplýsingakerfum
(LUK) er kostur
Góð tölvukunnátta, þ.á m. forritunar-
kunnátta nauðsynleg
Góð tungumálafærni í íslensku og ensku
nauðsynleg
Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í
teymisvinnu. Reynsla í verkefnastjórnun er
kostur.
Færni í samskiptum og geta til að miðla
niðurstöðum innan teymis og út á við
Að viðkomandi sé skipulagður, sýni frum-
kvæði í starfi og hafi faglegan metnað
Nánari upplýsingar um starfið veita Jórunn
Harðardóttir, framkvæmdastjóri Úrvinnslu-
og rannsóknarsviðs (jorunn@vedur.is),
Matthew J. Roberts, hópstjóri vatns og
jökla (matthew@vedur.is) og Borgar Ævar
Axelsson, mannauðsstjóri (borgar@vedur.is),
í síma 522 6000.
Um er að ræða fullt starf og taka laun mið
af kjarasamningum ríkisins og viðeigandi
stéttarfélags.
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-6
4
E
0
2
2
0
2
-6
3
A
4
2
2
0
2
-6
2
6
8
2
2
0
2
-6
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K