Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 61

Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 61
Verkefnastjóri mannréttinda- og lýðræðismála Mannréttindaskrifstofa Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Laust er til umsóknar starf verkefnastjóra mannréttinda- og lýðræðismála á Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar. Mannréttindaskrifstofa er staðsett í Ráðhúsi Reykjavíkur og er hluti af miðlægri stjórnsýslu. Meginverkefni skrifstofunnar er að fylgja eftir mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og ákvörðunum mannréttinda- og lýðræðisráðs. Starfshlutfallið er 100% Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélag. Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Kristinsdóttir, í síma 411 4151 eða í gegnum tölvupóstfangið anna.kristinsdottir@reykjavik.is Umsóknarfrestur er til 28. janúar n.k. Umsóknir ásamt fylgiskjölum skulu berast í gegnum vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Helstu verkefni: • Vinna að lýðræðisverkefnum Reykjavíkurborgar. • Vinna að stefnumörkun og samráði á sviði íbúalýðræðis. • Vinna að verkefnum á sviði mannréttinda. • Þátttaka í fræðslu og ráðgjöf við starfsfólk Reykjavíkurborgar. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólagráða í félagsvísindum, lögfræði eða önnur sambærileg menntun. • Þekking og reynsla af mannréttinda- og lýðræðismálum æskileg. • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur. • Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti. • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð. • Hæfni í mannlegum samskiptum. VIÐ VILJUM KYNNAST ÞÉR BETUR ÞJÓNUSTURÁÐGJAFI Brennur þú fyrir þjónustuveitingu, ráðgjöf og samskiptum? Átt þú gott með að vinna í teymi starfsmanna sem sinna fjölbreyttum og ólíkum verkefnum frá degi til dags? Vörður leitar að öflugum liðsauka í teymi þeirra sem vinna í þjónustumiðju félagsins. Helstu verkefni hópsins snúa að vátryggingaráðgjöf til einstaklinga og minni fyrirtækja, þjónustu er varðar smærri tjón, samskiptum og þjónustu og þátttöku í verkefna- og/eða starfshópum innan félagsins. Við hvetjum jafnt konur sem karla til að sækja um en viðkomandi einstaklingur þarf að hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun og/eða reynslu af störfum við þjónustu og ráðgjöf. Umsóknarfrekstur er til 20. janúar 2019 Veistu hvað þú vilt? Tekið er á móti umsóknum á ráðningarvef félagsins inni á vordur.is þar sem nánari upplýsingar um starfið er að finna. Nánari upplýsingar veitir Linda Ingólfsdóttir, teymisstjóri þjónustumiðju, í netfanginu linda@vordur.is eða Harpa Víðisdóttir, mannauðsstjóri, í netfanginu harpa@vordur.is Vörður er lifandi og skemmtilegur vinnustaður með fjölskylduvæna og heilsueflandi mannauðsstefnu þar sem unnið er í anda jafnréttis. Vinnuumhverfi félagsins er nútímalegt, jákvætt og árangursmiðað. ADMINISTRATIVE ASSISTANT WITH CONSULAR SUPPORT The Embassy of Canada in Reykjavik is looking for an administrative assistant to support the Administrative and Consular section of the Embassy. Closing date for the application: 21 January 2019 Further details can be found at: www.canada.is under Job Opportunities Rafvirkjar óskast Frumherji hf. óskar eftir rafvirkjum í undirverktöku til útskipta á raforkusölumælum í heimahúsum og fyrirtækjum. Hæfniskröfur • Sveinspróf í rafvirkjun • A.m.k. þriggja ára reynsla við rafvirkjunarstörf • Góð þekking á tæknilegum tengiskilmálum raforkudreifingar • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Góð íslenskukunnátta • Skipulagsfærni og sveigjanleiki • Góð samskiptahæfni Umsóknir Hægt er að sækja um starfið á heimasíðu Frumherja hf. Einnig er hægt að senda umsóknir á Orra Hlöðversson framkvæmda- stjóra, orri@frumherji.is sem veitir frekari upplýsingar um starfið í síma: 8963399. Umsóknarfrestur er til og með 20. janúar 2019. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Frumherji hf. er leiðandi á sviði skoðana, prófana og tengdrar þjónustu á Íslandi. Fyrirtækið er með starfsemi um land allt og þjónustar viðskiptavini sína á 32 starfsstöðvum. Hjá fyrirtækinu vinna um 100 manns. Frumherji starfar sem fag- gild skoðunarstofa á fimm sviðum í samræmi við ISO staðla 17020 og 17025. Frumherji hf. | Þarabakki 3 | 109 Reykjavík | www.frumherji.is Reykjalundur, endurhæfingarmiðstöð SÍBS. Sími 585 2000 – www.reykjalundur.is Hjúkrunarfræðingur á offitusviði Laus er til umsóknar 60% staða hjúkrunarfræðings á offitu­ sviði. Staðan er laus nú þegar. Gerð er krafa um íslenskt hjúkrunarleyfi og þarf viðkomandi að búa yfir ríkri hæfni í mannlegum samskiptum og sjálf­ stæðis í starfi. Viðkomandi þarf einnig að vera töluglöggur og tölvulæs. Á offitusviði er unnið að endurhæfingu einstaklinga með al­ varlega offitu. Unnið er í þverfaglegu teymi fagfólks, þar sem góð samvinna, fagmennska og þekking er höfð að leiðarljósi. Lögð er áhersla á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn. Laun byggja á kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunar­ fræðinga og fjármálaráðherra auk stofnanasamnings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Reykjalundar. Upplýsingar um starfið veita Olga Björk Guðmundsdóttir hjúkrunarstjóri offitusviðs í síma 585­2059, netfang; olgabjork@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnars­ dóttir mannauðs stjóri í síma 585­2143, netfang; gudbjorg@reykjalundur.is Umsóknarfrestur er til 27. janúar 2019. Umsóknarform og upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðunni www.reykjalundur.is 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 0 2 -9 6 4 0 2 2 0 2 -9 5 0 4 2 2 0 2 -9 3 C 8 2 2 0 2 -9 2 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.