Fréttablaðið - 12.01.2019, Side 84
Þó að skáldið Sigurður Pálsson haf i látist í september 2017 er margt sem minnir enn á hann á heimili hans og Kristínar Jóhannes-
dóttur, konu hans. Nafnið hans er
til dæmis enn á bjöllunni. „Ég ætla
að hafa Sigurð með mér hér áfram,
þangað til ég veit ekki hvenær,“
segir hún ofureðlilega. „Það var ein-
hver að minnast á það við mig um
daginn, varfærnislega, að röddin
hans væri enn í símsvaranum hér
heima, hélt þetta væri eitthvað sem
ég hefði ekki athugað. En ég geri það
stundum bara sjálf að hringja heim
og þá heyri ég röddina hans … ljóð
muna rödd, segir einhvers staðar!“
Við Kristín tyllum okkur í hvítu
húsgögnin, sem hún segir vera það
eina sem þau hjónin hafi f lutt með
sér frá Frakklandi. Nýja bókin, Ljóð
muna ferð, með úrvali af ljóðum
Sigurðar, liggur á stofuborðinu.
Þið fylgdust lengi að … segi ég. „Já,
já, við kynntumst í MR og urðum
strax svolítið skotin hvort í öðru.
Uppátæki hans voru ótrúleg og
ég fylltist af fögnuði í hvert skipti.
Hann var líka einn af örfáum sem
töluðu við mig sem jafningja. Það
hitti í mark. En okkar tími rann ekki
upp fyrr en seinna, úti í París.
Auðvitað er þetta mikil breyting
á mínum högum, samt læt ég þetta
bara ganga af því að það verður að
gera það, hann er þarna og hann er
hérna og bara úti um allt, ég spyr
hann og hann svarar mér í ljóðum,
það er ótrúlega góð staða að hafa
þennan djúphugsaða og heilandi
skáldskap frá honum. Hann var
gefandi og örlátur maður.“
Nafns sonarins, Jóhannesar Páls
Sigurðssonar, er líka á útidyra-
bjöllunni þó að hann sé f luttur að
heiman, markaðsfræðingur. Ég spyr
Kristínu hvort hún eigi barnabörn.
„Nei, við vorum náttúrlega orðin 38
ára þegar við eignuðumst drenginn
og hann hótar því að verða ekki
fyrr á ferðinni með afkomanda, við
sjáum bara til! Stundum er auðvitað
of boðslega tómlegt að vera ein en
ég hef haft mikið að gera og það er
kannski það sem bjargar mér, ég á
erindi út úr húsi og er svo lánsöm
að vera í starfi þar sem samvinna er
grundvöllurinn, þá kemur upp hinn
ágæti málsháttur: maður er manns
gaman.
Kristín hefur verið önnum kafin
við að setja upp sýningu í Borgar-
leikhúsinu sem heitir Núna og var
frumsýnd í gærkvöldi. Í henni eru
þrjú stutt leikverk, frumraun jafn-
margra höfunda í leikritaskrifum.
„Þetta er ungviði, mjög skemmti-
legt, með nýstárlegar og frjálsar
hugmyndir, þess vegna þótti við
hæfi að hafa einhverja aldraða og
reynda manneskju með en stundum
finnst mér ég vera yngst í hópnum,“
segir Kristín glaðlega. „Ég hef alltaf
verið ungliði þó að árin líði, yngist
hvað það varðar, frekar en hitt, og
að vera alltaf í stanslausri sköpun er
mjög gefandi, örvandi og heilandi
líka, ég er alveg sannfærð um það.
Sviðsetning er reyndar mikil
ábyrgð. Það gildir að finna kjarna
merkingar, form, leiðir og afstöðu
til leikrita nýrra höfunda. Þar hefst
nýtt höfundarverk sem er leik-
stjórans. Ég hef reyndar með mér
leikhóp sem í eru snillingar, hver
um annan þveran.“
Hverjir sömdu þessi verk? spyr
ég. „Þetta eru Matthías Tryggvi
Haraldsson, Hildur Selma Sigberts-
dóttir og Þórdís Helgadóttir. Þau
eru af kynslóð sem er með mjög
skýr tengsl við umheiminn og hafa
verulegar áhyggjur – það eru alvöru
áhyggjur – en líka góðan húmor.
Verkin fjalla um þetta ástand sem
ríkir í náttúrunni og stefnir í heims-
voða. Svo er það kynjasviðið, þar
hefur orðið ótrúleg uppstokkun,
karlarnir vita ekki lengur hvert
þeirra hlutskipti er, konurnar eru
smám saman að taka yfir svið sem
karlar héldu að þeir ættu. Það sem
er svo skemmtilegt við þetta unga
fólk er að það er ekki í neinum pre-
dikunarstellingum, heldur hefur
fjarvídd á hlutina og henni fylgir
húmor. Ég held einmitt að það sem
helst geti vakið fólk til vitundar sé
svona nálgun.“
Kristín kveðst hafa óbilandi trú
á mannsandanum, sérstaklega ef
litið sé til lista, einkum og sér í lagi
ljóðlistar. „Sigurður hélt því fram að
fegurðin væri kjarni lífsins og ljóð-
listin lífsnauðsyn. Ég er algerlega
sammála honum. Standandi sjálf
frammi fyrir þeirri ógn sem ég gerði
fyrir nokkrum árum og síðan missi
og sorg og því ferli sem allir lenda í,
fyrr eða síðar, í einhverju formi, fór
ég að íhuga hvernig ég gæti brugðist
við, sá ekki að ég kæmist í gegnum
þennan skafl og þetta svartnætti.
Áttaði mig svo á því að það þyrfti
að virkja skæruliða andans, hann
er nefnilega mjög máttugur, hann
beislar og leiðir hugann og leitar
að hjáleið til þess að komast í gegn.
Svona eins og Virgill sem leiddi
Dante niður til vítis til þess að hann
kæmist á endanum upp til himna-
ríkis að finna Beatrice sína. Það er
alltaf til leið.
Góður leiðsögumaður er málið
Sumir hafa ekki uppgötvað skæru-
liða andans og lent á vegg. En hann
er þarna, geymir ljósið og leiðir
okkur í myrkrinu. Ég les ljóð eftir
Sigurð á hverjum einasta degi, eitt
ljóð – oft fylgja f leiri. Þar er stöðug
uppljómun og vísbending um hjálp
við að eyða myrkrinu og ógninni
með einhvers konar ljósi. Sú hjálp
er ekki ætluð mér einni, hún er fyrir
alla, það er vissa mín.“
Kristín segir grundvallaratriði að
hafa viðfangsefni. „Þó að það sé erf-
itt og mikil ábyrgð að setja upp leik-
verk og gera bíómyndir þá er það
líka gefandi. Maður eyðir löngum
tíma í að láta hugmyndir vinnast,
en þá kemur eitthvað gott til baka
og úr verður hringrás af orku.“
Fram undan hjá Kristínu er að
stýra útvarpsleikriti eftir Sölku
Guðmundsdóttur sem útskriftar-
hópurinn úr leiklistardeild Lista-
háskólans ætlar að f lytja. „Ég hef
óskaplega gaman af útvarpsleik-
húsi og hlakka til að takast á við það
verkefni,“ segir hún brosandi.
Kristín hafði í nokkur ár gert
rannsóknir fyrir doktorsgráðu í
kvikmyndafræði frá París, þegar
hún varð altekin af hugmynd fyrir
kvikmynd, Á hjara veraldar, fór
heim og gerði hana að veruleika í
félagi við Sigurð. „Ég hafði rann-
sakað þátt og myndmál kvenna í
kvikmyndasögunni og þar kom
margt fróðlegt fram. Fór svo úr
fræðunum í að gera kvikmyndir,
það var reyndar ákvörðun sem
ég tók áður en ég fór út í nám, að
ég ætlaði að gera myndir, þeir fáu
sem ég trúði fyrir því horfðu á mig
eins og ég væri vitskert. Svo fór ég í
tækninám sem ég, að gefnu tilefni,
held fram að sé miklu minna mikil-
vægt en að greina tungumál kvik-
myndanna og sjá hvert það getur
farið með okkur. Sumir eru í sama
fari og allir hinir, aðrir reyna að
endurnýja tungumálið, þar á meðal
eru margar konur. Þær hafa mjög
oft annað sjónarhorn á myndmál
en karlar og nota annað tungutak.“
Finnst þér þú hafa fengið næg
tækifæri til að leikstýra kvikmynd-
um?
„Ég vissi fyrirfram að ég yrði
ekki í kvikmyndagerð sem fylgdi
meginstraumum og gerði aldrei ráð
fyrir að verða þaulsætin sem kvik-
myndaleikstjóri við borðið, samt
sem áður liggja eftir mig miklu færri
myndir en ég hefði viljað. Það er sagt
að til að verða meistari þurfi sam-
fellda iðkun, það þýðir að maður
nær ekki langt þegar áratugir líða
á milli verkefna, sama í hvaða fagi
það er. En þetta er óhuggulega dýr
miðill, maður er ekkert í atvinnu-
mennsku nema að gera mynd fyrir
150-200 milljónir, þá þarf maður
styrki og meðframleiðendur og fer
í gegnum óskaplega síu. Það er ekki
hlaupið að þessu.“
Þegar önnur áhugamál ber á
góma tekur Kristín fram að hún
hvorki spili golf, né fari í sund eða
líkamsræktarstöðvar en hún fer
í gönguferðir, stuttar. „En ég hef
mikinn áhuga á mennskunni og
öllu sem viðkemur henni. Það er
ansi víðáttumikið svið. Sumir koma
ofboðslega miklu í verk, ég hef aldr-
ei getað skilið hvað sumu fólki tekst
vel að skipuleggja tímann sinn. Ég
á það til að setjast niður með bók
og svo þegar ég lít upp er dagurinn
búinn. Stundum læt ég dálítið renna
saman veruleika og draum, ytra og
innra líf. Þar fæðast líka dásamlegar
hugmyndir.“
Les ljóð eftir Sigurð
á hverjum degi
Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði frumsýningu í Borgarleikhúsinu
í gær á þremur verkum eftir jafnmarga höfunda. Hún hefur virkjað
skæruliða andans til að komast í gegnum brimskafla í eigin lífi.
„Ég hef mikinn áhuga á mennskunni og öllu sem viðkemur henni. Það er ansi víðáttumikið svið,“ segir Kristín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
ÉG Á ERINDI ÚT ÚR HÚSI OG
ER SVO LÁNSÖM AÐ VERA Í
STARFI ÞAR SEM SAMVINNA
ER GRUNDVÖLLURINN,
ÞÁ KEMUR UPP HINN
ÁGÆTI MÁLSHÁTTUR:
MAÐUR ER MANNS GAMAN.
M18 FUEL™ skilar ai til að
saga á við bestu bensínknúnu
keðjusagirnar.
POWESTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yrálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðuker
sem virkar með öllum
Milwaukee ® M12™ rafhlöðum.
M18 FCHS
Alvöru keðjusög
frá Milwaukee
vfs.is
1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
0
2
-3
8
7
0
2
2
0
2
-3
7
3
4
2
2
0
2
-3
5
F
8
2
2
0
2
-3
4
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K