Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 84

Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 84
Þó að skáldið Sigurður Pálsson haf i látist í september 2017 er margt sem minnir enn á hann á heimili hans og Kristínar Jóhannes- dóttur, konu hans. Nafnið hans er til dæmis enn á bjöllunni. „Ég ætla að hafa Sigurð með mér hér áfram, þangað til ég veit ekki hvenær,“ segir hún ofureðlilega. „Það var ein- hver að minnast á það við mig um daginn, varfærnislega, að röddin hans væri enn í símsvaranum hér heima, hélt þetta væri eitthvað sem ég hefði ekki athugað. En ég geri það stundum bara sjálf að hringja heim og þá heyri ég röddina hans … ljóð muna rödd, segir einhvers staðar!“ Við Kristín tyllum okkur í hvítu húsgögnin, sem hún segir vera það eina sem þau hjónin hafi f lutt með sér frá Frakklandi. Nýja bókin, Ljóð muna ferð, með úrvali af ljóðum Sigurðar, liggur á stofuborðinu. Þið fylgdust lengi að … segi ég. „Já, já, við kynntumst í MR og urðum strax svolítið skotin hvort í öðru. Uppátæki hans voru ótrúleg og ég fylltist af fögnuði í hvert skipti. Hann var líka einn af örfáum sem töluðu við mig sem jafningja. Það hitti í mark. En okkar tími rann ekki upp fyrr en seinna, úti í París. Auðvitað er þetta mikil breyting á mínum högum, samt læt ég þetta bara ganga af því að það verður að gera það, hann er þarna og hann er hérna og bara úti um allt, ég spyr hann og hann svarar mér í ljóðum, það er ótrúlega góð staða að hafa þennan djúphugsaða og heilandi skáldskap frá honum. Hann var gefandi og örlátur maður.“ Nafns sonarins, Jóhannesar Páls Sigurðssonar, er líka á útidyra- bjöllunni þó að hann sé f luttur að heiman, markaðsfræðingur. Ég spyr Kristínu hvort hún eigi barnabörn. „Nei, við vorum náttúrlega orðin 38 ára þegar við eignuðumst drenginn og hann hótar því að verða ekki fyrr á ferðinni með afkomanda, við sjáum bara til! Stundum er auðvitað of boðslega tómlegt að vera ein en ég hef haft mikið að gera og það er kannski það sem bjargar mér, ég á erindi út úr húsi og er svo lánsöm að vera í starfi þar sem samvinna er grundvöllurinn, þá kemur upp hinn ágæti málsháttur: maður er manns gaman. Kristín hefur verið önnum kafin við að setja upp sýningu í Borgar- leikhúsinu sem heitir Núna og var frumsýnd í gærkvöldi. Í henni eru þrjú stutt leikverk, frumraun jafn- margra höfunda í leikritaskrifum. „Þetta er ungviði, mjög skemmti- legt, með nýstárlegar og frjálsar hugmyndir, þess vegna þótti við hæfi að hafa einhverja aldraða og reynda manneskju með en stundum finnst mér ég vera yngst í hópnum,“ segir Kristín glaðlega. „Ég hef alltaf verið ungliði þó að árin líði, yngist hvað það varðar, frekar en hitt, og að vera alltaf í stanslausri sköpun er mjög gefandi, örvandi og heilandi líka, ég er alveg sannfærð um það. Sviðsetning er reyndar mikil ábyrgð. Það gildir að finna kjarna merkingar, form, leiðir og afstöðu til leikrita nýrra höfunda. Þar hefst nýtt höfundarverk sem er leik- stjórans. Ég hef reyndar með mér leikhóp sem í eru snillingar, hver um annan þveran.“ Hverjir sömdu þessi verk? spyr ég. „Þetta eru Matthías Tryggvi Haraldsson, Hildur Selma Sigberts- dóttir og Þórdís Helgadóttir. Þau eru af kynslóð sem er með mjög skýr tengsl við umheiminn og hafa verulegar áhyggjur – það eru alvöru áhyggjur – en líka góðan húmor. Verkin fjalla um þetta ástand sem ríkir í náttúrunni og stefnir í heims- voða. Svo er það kynjasviðið, þar hefur orðið ótrúleg uppstokkun, karlarnir vita ekki lengur hvert þeirra hlutskipti er, konurnar eru smám saman að taka yfir svið sem karlar héldu að þeir ættu. Það sem er svo skemmtilegt við þetta unga fólk er að það er ekki í neinum pre- dikunarstellingum, heldur hefur fjarvídd á hlutina og henni fylgir húmor. Ég held einmitt að það sem helst geti vakið fólk til vitundar sé svona nálgun.“ Kristín kveðst hafa óbilandi trú á mannsandanum, sérstaklega ef litið sé til lista, einkum og sér í lagi ljóðlistar. „Sigurður hélt því fram að fegurðin væri kjarni lífsins og ljóð- listin lífsnauðsyn. Ég er algerlega sammála honum. Standandi sjálf frammi fyrir þeirri ógn sem ég gerði fyrir nokkrum árum og síðan missi og sorg og því ferli sem allir lenda í, fyrr eða síðar, í einhverju formi, fór ég að íhuga hvernig ég gæti brugðist við, sá ekki að ég kæmist í gegnum þennan skafl og þetta svartnætti. Áttaði mig svo á því að það þyrfti að virkja skæruliða andans, hann er nefnilega mjög máttugur, hann beislar og leiðir hugann og leitar að hjáleið til þess að komast í gegn. Svona eins og Virgill sem leiddi Dante niður til vítis til þess að hann kæmist á endanum upp til himna- ríkis að finna Beatrice sína. Það er alltaf til leið. Góður leiðsögumaður er málið Sumir hafa ekki uppgötvað skæru- liða andans og lent á vegg. En hann er þarna, geymir ljósið og leiðir okkur í myrkrinu. Ég les ljóð eftir Sigurð á hverjum einasta degi, eitt ljóð – oft fylgja f leiri. Þar er stöðug uppljómun og vísbending um hjálp við að eyða myrkrinu og ógninni með einhvers konar ljósi. Sú hjálp er ekki ætluð mér einni, hún er fyrir alla, það er vissa mín.“ Kristín segir grundvallaratriði að hafa viðfangsefni. „Þó að það sé erf- itt og mikil ábyrgð að setja upp leik- verk og gera bíómyndir þá er það líka gefandi. Maður eyðir löngum tíma í að láta hugmyndir vinnast, en þá kemur eitthvað gott til baka og úr verður hringrás af orku.“ Fram undan hjá Kristínu er að stýra útvarpsleikriti eftir Sölku Guðmundsdóttur sem útskriftar- hópurinn úr leiklistardeild Lista- háskólans ætlar að f lytja. „Ég hef óskaplega gaman af útvarpsleik- húsi og hlakka til að takast á við það verkefni,“ segir hún brosandi. Kristín hafði í nokkur ár gert rannsóknir fyrir doktorsgráðu í kvikmyndafræði frá París, þegar hún varð altekin af hugmynd fyrir kvikmynd, Á hjara veraldar, fór heim og gerði hana að veruleika í félagi við Sigurð. „Ég hafði rann- sakað þátt og myndmál kvenna í kvikmyndasögunni og þar kom margt fróðlegt fram. Fór svo úr fræðunum í að gera kvikmyndir, það var reyndar ákvörðun sem ég tók áður en ég fór út í nám, að ég ætlaði að gera myndir, þeir fáu sem ég trúði fyrir því horfðu á mig eins og ég væri vitskert. Svo fór ég í tækninám sem ég, að gefnu tilefni, held fram að sé miklu minna mikil- vægt en að greina tungumál kvik- myndanna og sjá hvert það getur farið með okkur. Sumir eru í sama fari og allir hinir, aðrir reyna að endurnýja tungumálið, þar á meðal eru margar konur. Þær hafa mjög oft annað sjónarhorn á myndmál en karlar og nota annað tungutak.“ Finnst þér þú hafa fengið næg tækifæri til að leikstýra kvikmynd- um? „Ég vissi fyrirfram að ég yrði ekki í kvikmyndagerð sem fylgdi meginstraumum og gerði aldrei ráð fyrir að verða þaulsætin sem kvik- myndaleikstjóri við borðið, samt sem áður liggja eftir mig miklu færri myndir en ég hefði viljað. Það er sagt að til að verða meistari þurfi sam- fellda iðkun, það þýðir að maður nær ekki langt þegar áratugir líða á milli verkefna, sama í hvaða fagi það er. En þetta er óhuggulega dýr miðill, maður er ekkert í atvinnu- mennsku nema að gera mynd fyrir 150-200 milljónir, þá þarf maður styrki og meðframleiðendur og fer í gegnum óskaplega síu. Það er ekki hlaupið að þessu.“ Þegar önnur áhugamál ber á góma tekur Kristín fram að hún hvorki spili golf, né fari í sund eða líkamsræktarstöðvar en hún fer í gönguferðir, stuttar. „En ég hef mikinn áhuga á mennskunni og öllu sem viðkemur henni. Það er ansi víðáttumikið svið. Sumir koma ofboðslega miklu í verk, ég hef aldr- ei getað skilið hvað sumu fólki tekst vel að skipuleggja tímann sinn. Ég á það til að setjast niður með bók og svo þegar ég lít upp er dagurinn búinn. Stundum læt ég dálítið renna saman veruleika og draum, ytra og innra líf. Þar fæðast líka dásamlegar hugmyndir.“ Les ljóð eftir Sigurð á hverjum degi Kristín Jóhannesdóttir leikstýrði frumsýningu í Borgarleikhúsinu í gær á þremur verkum eftir jafnmarga höfunda. Hún hefur virkjað skæruliða andans til að komast í gegnum brimskafla í eigin lífi. „Ég hef mikinn áhuga á mennskunni og öllu sem viðkemur henni. Það er ansi víðáttumikið svið,“ segir Kristín. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is ÉG Á ERINDI ÚT ÚR HÚSI OG ER SVO LÁNSÖM AÐ VERA Í STARFI ÞAR SEM SAMVINNA ER GRUNDVÖLLURINN, ÞÁ KEMUR UPP HINN ÁGÆTI MÁLSHÁTTUR: MAÐUR ER MANNS GAMAN. M18 FUEL™ skilar ai til að saga á við bestu bensínknúnu keðjusagirnar. POWESTATE™ mótor. REDLINK PLUS™ yrálagsvörn. REDLITHIUM-ION™ rafhlaða. Sveigjanlegt rafhlöðuker sem virkar með öllum Milwaukee ® M12™ rafhlöðum. M18 FCHS Alvöru keðjusög frá Milwaukee vfs.is 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 2 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 0 2 -3 8 7 0 2 2 0 2 -3 7 3 4 2 2 0 2 -3 5 F 8 2 2 0 2 -3 4 B C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 1 2 s _ 1 1 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.