Fréttablaðið - 12.01.2019, Page 87
Kærar þakkir fyrir alúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar systur minnar,
Sigríðar Ingibjargar
Þorgeirsdóttur
kennara,
Hæringsstöðum í Árborg.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjallatúns í Vík og
Ljósheima á Selfossi.
Fyrir hönd vandamanna,
Sólveig Antonía Þorgeirsdóttir
Ástkær eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Stefán Jónsson
málarameistari,
Bakkahlíð 2, Akureyri,
lést sunnudaginn 6. janúar.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 18. janúar klukkan 13.30.
Heiðrún Björgvinsdóttir
Jón Ari Stefánsson
Hjördís Stefánsdóttir Heiðar Konráðsson
Heiðrún Valdís og Hildur Védís
Yndislega mamma mín, dóttir og systir,
Sigurbjörg Sigurðardóttir
Dvergabakka 32,
lést á heimili sínu laugardaginn
5. janúar. Jarðsett verður frá Fossvogs-
kirkju þann 1. febrúar klukkan 11.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Ljósið.
Flavia Annis Rollini
Magðalena Stefánsdóttir
Esther Sigurðardóttir Helgi Sigurðsson
Stefán Baldvin Sigurðsson Anna S. Jóhannesdóttir
Sigrún Jensey Sigurðardóttir Kristján Bjarndal Jónsson
Sigurður Sigurðarson Hildur Sandholt
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Halldóru Snorradóttur
frá Syðri-Bægisá, Öxnadal,
húsfreyju í Stóra-Dunhaga,
Hörgárdal.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólkinu á Einihlíð fyrir
hlýju og umönnun.
Þórlaug Arnsteinsdóttir Jóhann Þór Halldórsson
Sigrún Arnsteinsdóttir Jóhannes Axelsson
Árni Arnsteinsson Borghildur Freysdóttir
Hulda Steinunn Arnsteinsdóttir
G. Ingibjörg Arnsteinsdóttir Þórður Ragnar Þórðarsson
Unnur Arnsteinsdóttir Friðrik Sæmundur Sigfússon
Heiðrún Arnsteinsdóttir Friðjón Ásgeir Daníelsson
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Elín Sveinsdóttir
frá Fossi í Staðarsveit,
Grundarbraut 26, Ólafsvík,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Akranesi föstudaginn 21. desember. Útför
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum
starfsfólki HVE Akranesi fyrir góða og hlýja umönnun.
Aðstandendur þakka auðsýnda samúð og hlýhug.
Egill Viðar Þráinsson Hrefna Guðbjörnsdóttir
Pálína S. Þráinsdóttir Ingvar Sigurðsson
Bryndís J. Þráinsdóttir Valur Magnússon
Sigurbjörg E. Þráinsdóttir Þröstur Kristófersson
Lilja Björk Þráinsdóttir Lárus R. Einarsson
Berglind S. Þráinsdóttir
Sigtryggur S. Þráinsson Margrét G. Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi,
bróðir og mágur,
Sigurður Davíðsson
Suðurgötu 15, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
föstudaginn 4. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 15. janúar kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Jóhannes Þór Sigurðsson Hulda Ólafsdóttir
Davíð Már Jóhannesson Dagur Fannar Jóhannesson
Þórður Kristjánsson Unnur Þorsteinsdóttir
Gísli Davíðsson
Kristín Ása Davíðsdóttir Atli Þorsteinsson
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sigurður E. Guðmundsson,
MA, fv. framkvæmdastjóri
Húsnæðisstofnunar ríkisins,
Raufarseli 11, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum við Hringbraut
hinn 6. janúar 2019, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í
Reykjavík miðvikudaginn 16. janúar klukkan 13.
Guðrún Helga Sigurðardóttir Friðrik Friðriksson
Benedikt Sigurðsson
Kjartan Emil Sigurðsson
Aldís Eva Friðriksdóttir
Dagur Páll Friðriksson
Emelía Rut Viðarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Nanna Guðrún Jónsdóttir
frá Djúpavogi,
andaðist á líknardeild Landspítalans
2. janúar.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 15. janúar kl. 13.00.
Ómar Ólafsson Sigríður Eysteinsdóttir
Stefán Ólafsson Edda Andrésdóttir
Jónína Kristín Ólafsdóttir Sigurjón Sigurbjörnsson
Atli Ólafsson Guðfinna Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Við þökkum innilega fyrir hlýhug og heiður
sýndan minningu
Dr. Valgarðs Egilssonar
sem lést 17. desember 2018.
Katrín Fjeldsted
Arnhildur, Jórunn, Vésteinn og Einar Valgarðsbörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Alda Þorgrímsdóttir
Brekkugötu 38,
Akureyri,
sem andaðist aðfaranótt föstudagsins
4. janúar, verður jarðsungin frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 14. janúar kl. 13.30.
Ómar Garðarsson Rannveig Benediktsdóttir
Smári Garðarsson
Páll Garðarsson Sigurður Ö. Guðbjörnsson
Eydís Garðarsdóttir Bjarni Einarsson
Viðar Garðarsson Sigríður Á. Viðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ragnar Ingi er nýkominn heim úr forfallakennslu í Foldaskóla þegar í hann næst. „Ég var í 25 ár við unglingakennslu og er að rifja upp taktana. Er með
einn 10. bekk í íslensku í nokkrar vikur,
nokkuð sjóaður í því fagi.“ Þar sem mað-
urinn er doktor í bragfræði spyr ég hvort
hann noti ekki tækifærið og kenni ung-
mennunum íslensku bragarhættina. „Ég
hef lítið farið í þá, var samt svolítið með
þeim í ljóðum í morgun en er aðallega
að fara yfir málfræðina með þeim, búa
þau undir próf.“
Er það rétt að þú sért að eldast ískyggi-
lega?
„Ja, það eru 365 dagar á ári sem líða
hver af öðrum, og árin verða 75 þann
15. Ég horfi í kringum mig og hugsa,
hvað gerðist eiginlega? En ég held upp á
þessi tímamót með útgáfu á kveri með
75 limrum, fullum af kerskni og galgopa.
Flestar hafa orðið til síðan í sumar en
aðrar eru eldri. Sú elsta held ég sé Minni
skáldsins sem er svona:
Bragarblóm heitir
bókin og er skreytt
svarthvítum blóma-
teikningum. „Sóley Nótt
Jerzydóttir er snillingur,
hún teiknaði blómin
fríhendis,“ segir Ragnar
Ingi. „Ég frétti af henni,
spjallaði við hana í byrj-
un desember og gaf henni
tíu daga til verksins, hún
kom með allt klárt í tæka
tíð.“
Ragnar Ingi kveðst ágæt-
lega sprækur. „Ég hleyp
reglulega, var á hlaupa-
brautum í Egilshöll í 35 mínútur í gær-
kveldi og kom heim rennsveittur. Er
ekkert að taka séns á að hlaupa úti, það
er svo hættulegt ef svellar, vil ekki mölva
í mér beinin. En svo fer ég í sund á milli.
Var að læra nýlega að fara í kalda pott-
inn, hann gerir manni gott.“
Þegar ég hef orð á að andinn
sé greinilega sprækur líka, um
það vitni bókin, svarar skáldið:
„Ja, um mitt andlega ástand er
betra að aðrir dæmi en ég, sem er bull-
andi vanhæfur í því máli.“
Útgáfuhóf verður heima hjá afmælis-
barninu á þriðjudaginn milli 17 og 19.30.
Sigurlína, kona hans, er búin að kaupa
kransaköku og aðrar léttar veitingar, að
sögn Ragnars Inga. „Svo verður svolítil
músík. Þráinn Árni Baldvinsson, gítar-
leikari í Skálmöld, ætlar að spila fyrir
mig, við eigum nefnilega í samstarfi,
Þráinn Árni er að kenna mér á gítar og
ég honum að yrkja – og nú ljóstra ég upp
leyndarmáli – við ætlum að frumflytja
fyrsta lag sem ég hef samið við fyrsta
textann hans Þráins Árna. Við reiknum
ekki með neinum Pulitzer-verðlaunum
en þetta er auðvitað bara byrjunin á ferl-
inum!“ gun@frettabladid.is
Ein limra fyrir hvert ár
Ragnar Ingi Aðalsteinsson frá Vaðbrekku í Hrafnkelsdal heldur upp á sjötíu og fimm
ára afmæli með útgáfu kversins Bragarblóm sem inniheldur sjötíu og fimm limrur.
Ragnar heima í stofu. Bragarblóm er 12. ljóðabók hans. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Framan af örlítið eimdi
eftir af því sem mig dreymdi
svo máðist það út
og í móðu og sút
ég man ekki hverju ég gleymdi.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 39L A U G A R D A G U R 1 2 . J A N Ú A R 2 0 1 9
1
2
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
0
2
-5
B
0
0
2
2
0
2
-5
9
C
4
2
2
0
2
-5
8
8
8
2
2
0
2
-5
7
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
1
1
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K