Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Page 6
FRÉTTIR ÚR SAFNAHEIMINUM
3000 myndirfrá íslandi
á vefdanska Þjóðminjasafnsins
Danska Þjóðminjasafnið hefur opnað aðgang að stórum myndabrunni
á netinu. 750.000 myndir verða gerðar aðgengilegar en þar af eru nú lcomnar
50.000 á vefinn, þar á meðal tæplega 3.000 myndir, teikningar og kort
frá íslandi. Þær eru úr safni Daniels Bruun úr íslandsleiðöngrum hans.
Innskönnun þess safns var styrkt af Augustus Fondet og var gjöf til
Þjóðminjasafns íslands á 150 ára starfsafmæli safnsins. Meirihluti safnsins
er til frjálsra afnota. www.samlinger.natmus.dk
Eyrarbaklci Heritage Centre
Þeir sem fylgst hafa með þáttum
Egils Helgasonar um Vesturfarana
minnast safnarans og fræðimanns-
ins Nelsons Gerrard. Nelson hefur
um árabil safnað slcjölum, ljósmynd-
um og gripum frá löndum sínum í
Kanada og Amerílcu og á orðið gott
safn. Meginstarf Nelsons hefur verið
bókaskrif um búsetu íslendinga á
tilteknum svæðum í Kanada. Heima-
síða Nelsons gefur okkur innsýn
í merkilegt starf hans fyrir vestan.
www.sagapublications.com
Nýtt safn í Reylcjavík
í Reykjavík hafa fjögur söfn verið
sameinuð undir einn hatt. Það eru
Árbæjarsafn, Landnámssýningin í
Aðalstræti, Ljósmyndasafn Reykja-
víkur og Sjóminjasafnið aulc Við-
eyjar. Það heitir nú Borgarsögusafn
Reykjavílcur. Ætla má að samein-
ingin slcili enn betri söfnum til
gagns og gleði fyrir borgarbúa og
gesti borgarinnar. Meira síðar!
Borgarsögusafn
Reykjavíkur
Getty-efnisorðalistar
nú aðgengilegir
Getty-stofnunin hefur nú gert Art and
Architecture-efnisorðalista sína að-
gengilega sem LOD (Linked Open Data).
Það þýðir að hver sem hefur áhuga
getur notfært sér gagnasafn þeirra
sem inniheldur yfir 250.000 efnisorða-
skráningar og skýringar. www.getty.
edu/research/tools/vocabularies
Sjónrænn menningararfur í Safhahúsinu við Hverfisgötu
Verið er að vinna að nýrri grunnsýningu um sjónrænan menningararf þjóðarinnar. Sýningin verður sett upp
í Safnahúsinu sem nú er kallað sínu upphaflega nafni en var í millitíðinni nefnt Landsbólcasafnið og
Þjóðmenningarhúsið. Sýningin er samstarfsverkefni eftirtalinna stofnana: Þjóðminjasafns íslands, Listasafns
íslands, Stofnunar Árna Magnússonar, Þjóðskjalasafns íslands, Landsbókasafns-Háskólabókasafns og Náttúru-
minjasafns íslands. Markús Þór Andrésson er sýningarstjóri en sýningin verður opnuð 28. mars 2015.
6