Safnablaðið Kvistur - 01.11.2014, Page 39
SAFNARYNI / Hanna Dís Whitehead, vöruhönnuður
Staður tit að láta sig
dreyma
Hugmyndasmiðjan á Kjarvals-
stöðum er skemmtilegur stað-
ur til að heimsækja með börn-
in sín. Þar er ýtt undir slcöpunargleði
þeirra með hlutunum sem þar eru og
rýminu sjálfu. Smiðjan er nefnilega
hönnuð með það að markmiði að ýta
undir hugmyndaflugið.
Rýmið er hannað á mjög sérstalcan
hátt. Veggverk eftir listamanninn
Hugin Arason rammar það inn.
Verkið sýnir endurtekin form sem
eru svipuð en þegar betur er að gáð
þó aldrei eins. Það getur verið mjög
gaman að sitja og horfa á þau, láta
hugann reika og ímynda sér hvaða
ævintýri leynast í formunum.
Landslagið inni í smiðjunni er mótað
af upphæklcuðu rými, eða löngum
bekk eins og mætti kalla það. Hann
er í beinu framhaldi af gólfinu
og leiðir mann upp að bókum og
gluggum. Hann hvetur börnin til að
eklci bara sitja heldur leika, liggja
og teygja úr sér við sköpun sína og
lestur eins og barna er oft siður.
Ofan við bekkinn er frábært úrval
af forvitnilegum bókum. Þetta
eru bækur sem eru elcki endilega
ætlaðar fyrir unga lesendur, heldur
ýta almennt undir að hugmyndir
kvikni og eru því góðar bæði fyrir
börn og fullorðna.
í herberginu er líka vagn með litum
og blöðum sem hægt er að opna á
hliðinni og þá eru þar reglustikur
og fleira til að hjálpa krölckunum
að láta sýn og drauma sína verða að
veruleika á blaði.
Smiðjan er því staður þar sem
draumar verða til og hugurinn fær
frelsi til að láta hugmyndirnar flæða
fram. Inn í þennan heim eru börn
jafnt og fullorðnir boðnir velkomnir
og njóta þess svo sannarlega.
Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir er
hönnuður að smiðjunni en vegg-
verlcið eftir listamanninn Hugin
Þór Arason.
39