Fréttablaðið - 29.01.2019, Qupperneq 16
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Allt eru þetta léttir réttir sem henta bæði vinnandi fólki eða skólabörnum. Réttunum
er hægt að breyta að vild.
Beygla með eggjahræru
Nýjar beyglur eru mikið lostæti.
Ein beygla með góðu áleggi getur
verið ágætis hádegisverður í
vinnunni. Hægt er að útbúa hana
heima og taka með sér í góðu
boxi.
Uppskriftin miðast við tvo.
2 beyglur
2 egg
2 msk. vatn
2 msk. smjör
4 salatblöð
1 lárpera
4 sneiðar kalkúna- eða kjúklinga-
álegg
1 vorlaukur
Skerið beygluna í miðju. Smyrjið
hana með smjöri eða rjómaosti ef
einhver vill það frekar. Brjótið egg
í litla skál ásamt vatninu og bragð-
bætið með salti og pipar. Þeytið
allt létt saman.
Steikið eggjahræruna með smá
smjöri eða olíu. Hrærið og setjið á
disk þegar eggin hafa stífnað.
Setjið salatblöð á beyglubotn-
inn. Skerið lárperuna í tvennt og
takið steininn úr. Skerið í sneiðar
og leggið á salatið. Þá er áleggið
sett yfir og loks eggjahræran.
Dreifið smátt skornum vorlauk
yfir og setjið hinn helminginn af
beyglunni yfir. Það er betra að
skera lárperuna rétt fyrir notkun.
Pitsusnúðar í skólann
Pitsusnúðar sem eru fylltir með
osti og skinku er ágætis hádegis-
verður til að taka með sér, hvort
sem er í vinnu eða skóla. Það má
nota glúten laust hveiti.
Einfalt í nestispakkann
Þar sem ekki er mötuneyti á vinnustað getur það stundum verið höfuðverkur að muna
eftir góðu nesti. Enginn nennir að lifa á samlokum úr búðinni endalaust. Hér koma nokkrar
hugmyndir að hádegisverði sem einfalt er að útbúa og taka með sér í vinnu eða skóla.
Pitsusnúðar eru
vinsælir bæði
hjá börnum og
fullorðnum.
Beyglur er hægt að útbúa á margan
hátt með alls konar góðgæti.
Pastasalat er fínn hádegisverður.
Eggjamúffur er þægilegt að gera.
Uppskriftin gefur 14 snúða.
150 g smjör
6 dl mjólk
1 pakki þurrger
1½ msk. husk trefjar
750 g hveiti
2 tsk. salt
1 msk. sykur
1 tsk. lyftiduft
Fylling
1 flaska pitsusósa
1 pakki skinka
300 g rifinn ostur
1 tsk. pitsukrydd eða ítalskt krydd
1 egg til að pensla með
Bræðið smjör og setjið mjólkina
saman við. Hafið blönduna fingur-
volga þegar henni er blandað
saman við gerið og trefjarnar.
Látið standa í 5-10 mínútur.
Blandið hveiti, salti, sykri og
lyftidufti í hrærivélarskál. Blandið
smjörblöndunni saman við og
hnoðið. Breiðið plastfilmu yfir
skálina og látið hefast. Deigið á að
tvöfaldast.
Fletjið deigið út. Smyrjið pitsu-
sósu á það og dreifið rifnum osti
yfir. Skerið skinkuna og raðið á
deigið. Kryddið vel yfir. Rúllið því
næst deiginu upp eins og rúllu-
tertu. Skerið í 3 cm breiða bita.
Leggið á ofnplötu sem er klædd
með bökunarpappír. Ýtið bit-
unum aðeins niður svo þeir verði
breiðari og lægri. Látið hefast aftur
í 20 mínútur.
Hitið ofninn í 225°C. Penslið
snúðana með egginu. Bakið í
miðjum ofni í 15 mínútur og
kælið á rist. Snúðana má frysta.
Hitið aðeins upp áður en þeir eru
borðaðir. Hægt er að breyta um
álegg eftir því sem fólki finnst best
að hafa á pitsum.
Einfalt pastasalat
Kalt pastasalat er mjög góður
hádegisverður. Hægt er að hafa
eitt og annað saman við pastað
eftir því sem hver og einn vill.
Einnig má gera mismunandi
útgáfur. Meðal þess sem setja má
saman við pastað er túnfiskur,
ostar, tómatar, ólífur, rauðlaukur,
agúrka, chili-pipar, kjúklingur eða
hvað annað sem fólki dettur í hug.
Auk þess er hægt að nota mismun-
andi pasta. Hér er ein uppskrift
sem miðast við fjóra. Fínt til að
hafa með sér í vinnuna.
600 g soðið og kælt penne pasta,
skrúfur eða fiðrildi
10 sneiðar skinka
100 g ostur (einhver uppáhalds)
50 g sykurbaunir, soðnar
6 msk. góð ólífuolía
Tómatar
Rauðlaukur
Salt og pipar
Sjóðið pasta eins og leiðbein-
ingar segja til um. Kælið og setjið
ólífuolíu yfir svo það festist ekki
saman.
Skerið tómata, rauðlauk, baunir
og skinku og setjið saman við.
Bragðbætið með salti og pipar.
Dreifið smá ólífuolíu yfir.
Eggjamúffur
Hér er skemmtilegur hádegis-
verður og hentar vel í nestispakka.
Gott er að hafa smá salat með.
Maður þarf að eiga múffubök-
unarform fyrir þennan rétt. Það
má breyta uppskriftinni og setja
í hana það sem til er í ísskápnum.
Sumum finnst gott að hafa beikon
eða parmaskinku.
Uppskriftin er miðuð við fjóra.
6 egg
6 msk. mjólk
2 vorlaukar
150 g skinka
50 g sólþurrkaðir tómatar eða
steinlausar ólífur
150 g rifinn ostur
½ tsk. salt
Hitið ofninn í 180°C. Smyrjið
formið að innan með smjöri eða
olíu. Setjið múffupappírsform
ofan í hólfin á bökunarforminu.
Skerið laukinn smátt ásamt
skink unni og sólþurrkuðu tóm-
ötunum.
Þeytið egg og mjólk saman.
Setjið allt annað saman við og
blandið vel. Hellið blöndunni
í formin þannig að þau verði
næstum því full. Passið að skinkan
og annað hráefni fari í öll formin.
Bakið í um það bil 15 mínútur
eða þar til eggin hafa stífnað.
Kælið aðeins áður en eggjakök-
urnar eru teknar úr forminu.
VINSÆLU KULDASKÓRNIR
MEÐ MANNBRODDUNUM
ERU KOMNIR FYRIR DÖMUR OG HERRA
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
2
B
-7
6
0
C
2
2
2
B
-7
4
D
0
2
2
2
B
-7
3
9
4
2
2
2
B
-7
2
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K