Fréttablaðið - 29.01.2019, Side 18

Fréttablaðið - 29.01.2019, Side 18
Rekstrarleiga á bílum eða atvinnutækjum byggir að sögn Sverris á því að Lykill kaupir ákveðinn leigumun í samráði við leigutaka sem leigir leigumuninn í fyrir fram ákveðinn tíma og hefur fullan umráðarétt yfir honum á leigutímanum. „Leigugreiðslur eru þá gjaldfærðar og haldast óbreyttar út leigutímann. Loks eru svo Lykillán og Lykilsamningar en það eru valkostir þegar kemur að fjármögnun bíla. Hægt er að fá allt að 90% fjármögnun af kaupverði til allt að sjö ára fyrir nýja bíla.“ Þjónustufyrirtækið Lykill Félagið byggir á rúmlega 30 ára sögu og samanlögð starfsreynsla ráðgjafahóps Lykils er yfir 60 ár. „Þekking á aðstæðum viðskipta- vina, markaðnum og þeim tækjum og búnaði sem við erum að vinna með skiptir öllu máli og auðveldar alla afgreiðslu.“ Sverrir Viðar leggur áherslu á að Lykill sé fjármálafyrirtæki undir eftirliti Fjármálaeftirlitsins en lítur ekki síður á sig sem þjón- ustufyrirtæki sem veitir snarpa og úrræðagóða þjónustu til sinna viðskiptavina. „Við tryggjum viðskiptavinum okkar hagstæð kjör til fjármögnunar á bílum og tækjum og veitum ráðgjöf um bæði fjármögnunartíma og samnings- form. Hins vegar lítum við svo á að hlutverki okkar sé ekki lokið þótt búið sé að ganga frá samningi í upphafi heldur vinnum við áfram með kúnnum okkar við að ná besta mögulega árangri í rekstrinum,“ segir Sverrir Viðar enn fremur. Nánari upplýsingar á www.lykill.is Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Þegar kemur að atvinnutækj-um er ljóst að fram undan er veruleg endurnýjunarþörf, því miðað við áætlanir stjórn- valda eru horfur á að ráðist verði í verulega innviðauppbyggingu í samgöngukerfinu á næstu árum. Við hjá Lykli erum til þjónustu reiðubúin að tryggja hagstæða fjár- mögnun slíkra tækja og aðstoða þannig fjölmarga viðskiptavini okkar við að ná hámarkshag- ræðingu í rekstri sínum,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils. Fjölbreytt fjármögnun Það hefur sýnt sig að viðskipta- vinir kunna að meta hversu hratt starfsmenn Lykils geta brugðist við fyrirspurnum og afgreitt lánafyrir- greiðslu segir Sverrir. „Við teljum að þar sé okkar meginstyrkur, að vera lítið og sjálfstætt fjármögnun- arfyrirtæki með stuttar boðleiðir.“ Einnig skiptir máli að fjölbreytni Lykils í vöruframboði eykur lík- urnar á því að hægt sé að finna bestu fjármögnunarleiðina með viðskiptavinum. „Lykill býður t.d. hefðbundna kaupleigu og fjár- mögnunarleigu auk rekstrarleigu á smærri og stærri tækjum ásamt Flotaleigu fyrir bíla fyrirtækja. Í kaupleigu býður Lykill allt að 90% fjármögnun af kaupverði, hvort heldur er í íslenskum krónum eða erlendri mynt. Í fjármögnunar- leigu miðast fjármögnunarhlutfall við allt að 80% af kaupverði tækis. Lengd samningstíma er háð við- komandi leigumun en algengur samningstími er 36-60 mánuðir. Í Flota- og rekstrarleigu Lykils eru allir bílar og tæki fjármögnuð 100% en algengur leigutími er 12-36 mánuðir.“ Árstíðabundnar sveiflur Í atvinnurekstri á Íslandi eru gjarnan árstíðabundnar sveiflur, ekki síst í byggingariðnaði, land- búnaði og vegagerð. „Það þýðir auðvitað að tæki getur staðið ónotað svo vikum skiptir og skapar litlar sem engar tekjur á meðan. Þessu mætir Lykill með því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á sveigjanlegar afborganir þannig að greiðslur eru hærri þegar nóg er að gera en lægri þegar tekjur lántaka dragast tímabundið saman. Þetta kunna viðskiptavinir okkar vel að meta.“ Margir góðir kostir Fjármögnunarleiðir Lykils fyrir fyrirtæki og rekstraraðila eru sex talsins að sögn Sverris. „Flotaleiga eykur öryggi við rekstur bílaflota og stuðlar að lækkun kostn- aðar sem vinnst með stærðarhag- kvæmni Lykils. Fjármögnunarleiga hentar til fjármögnunar á vélum og tækjum til atvinnurekstrar, en þó best þeim sem vilja nýta sér hrað- ari gjaldfærslu á leigugreiðslum. Kaupleiga hentar ekki síður til fjármögnunar á vélum og tækjum til atvinnurekstrar þar sem vélar og tæki eru eignfærð í bókhaldinu og samningurinn færður sem skuld á móti.“ Arnar Snær Kárason, Guðmundur Sigurjónsson og Elvar Daði Eiríksson, viðskiptastjórar hjá Lykli. Sitjandi eru Herbert Svavar Arnarson lánastjóri (t.v.) og Sverrir Viðar Hauksson sviðsstjóri. MYND/ERNIR Starfsmenn Lykils hafa alla tíð lagt mikla áherslu á gott samstarf við viðskiptavini sína. Við teljum að þar sé okkar megin- styrkur, að vera lítið og sjálfstætt fjármögnunar- fyrirtæki með stuttar boðleiðir. 2 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 2 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 B -8 9 C C 2 2 2 B -8 8 9 0 2 2 2 B -8 7 5 4 2 2 2 B -8 6 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.