Fréttablaðið - 29.01.2019, Side 34

Fréttablaðið - 29.01.2019, Side 34
Guðmundur Ingi segir að sveitarstjórnarmál séu afskaplega skemmtileg en honum hafi fundist vera komið nóg hjá sér eftir öll þessi ár. Hann sér ekki eftir að hafa lagt pólitíkina á hilluna. „Ég hætti eftir kosningarnar 2014. Ég var aðeins byrjaður að aka fyrir Kynnisferðir og fannst starfið áhugavert. Mér hefur alltaf þótt gaman að keyra bíl og ákvað að skella mér í meira- prófið árið 2012, þá sextugur að aldri,“ segir hann og tekur fram að hann hafi ekki verið sá elsti. „Það hefur aukist mjög mikið undanfarin ár að eldra fólk fari í meiraprófið. Það gerðist í kjölfar þess að ferðamannastraumurinn jókst mikið til landsins, ekki bara á sumrin heldur allt árið. Norðurljósatíminn er til dæmis mjög vinsæll og nóg að gera hjá rútubílstjórum,“ segir hann. Með fram auknum fjölda ferðamanna jukust atvinnumöguleikar eldra fólks. Sjálfur var ég löngu búinn að ákveða að mig langaði að fylla alla reitina á ökuskírteininu.“ Guðmundi fannst meira- prófið alls ekki erfitt, miklu frekar skemmtilegt. „Í starfi mínu hjá Kynnisferðum tek ég nokkur föst verkefni, ferðir út á Keflavíkur- flugvöll, í Bláa lónið, dagsferðir á Gullfoss og Geysi, Jökulsárlón, Sól- heimajökul, upp í Borgarfjörð og Langjökul. Þetta eru fjölbreyttar og mismunandi ferðir. Ég hef ekki verið í hálendisferðum. Þetta er líflegt og skemmtilegt umhverfi að vinna í. Maður er alltaf með nýtt fólk í kringum sig auk þess sem Kynnisferðir er stór vinnu- staður, margt gott fólk sem starfar þar og gaman að vinna með því. Ég kynnist farþegunum ekki mikið þar sem ég er einvörðungu í stuttum ferðum en maður spjallar oft við fólkið sem getur verið afar ánægjulegt. Svo fær maður mikið þakklæti í lok ferðar.“ Guðmundur Ingi er alinn upp í Hveragerði og Reykjavík en býr á Selfossi. Hann bjó í Grundar- firði 2006-2010 á meðan hann starfaði sem bæjarstjóri þar. Hann var lengi sveitarstjóri Rangár- vallahrepps áður en hann fór vestur. „Það leiðist engum sem tekur þátt í sveitarstjórnarmálum því verkefnin eru endalaus og ótrúlega fjölbreytt. Ég sakna þó ekki stjórnmálanna. Mig langar frekar að keyra rútu á meðan heilsan leyfir,“ segir Guðmundur sem ekur um á öllum stærðum af rútum og viðurkennir að stundum geti verið flókið að vera á mjög stórum rútum á þröngum vegum úti á landi. „Starfið krefst mikillar einbeitingar og það reynir mjög á færni og vandvirkni. Allir bíl- stjórar vildu auðvitað að vegirnir væru breiðari en þetta er raun- veruleikinn með íslenska vega- kerfið. Það getur til dæmis verið snúið að athafna sig á bílastæðum við vinsælustu ferðamannastað- ina en bílarnir eru vel búnir með öllum þeim hjálpartækjum sem í boði eru.“ Guðmundur viðurkennir að hafa alltaf haft smá bíladellu. „Ég var kannski ekki á kafi í bíladell- unni, hef einungis átt venjulega fjölskyldubíla, oftast frá Toyota og Mitsubishi. Ég hef samt alltaf fylgst með akstursíþróttum og var með þjónustubíl í fyrsta alþjóð- lega rallinu sem fram fór hér á landi,“ segir hann. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Guðmundur Ingi Gunnlaugsson sér ekki eftir pólitíkinni en hefur gaman af því að keyra ferðamenn um landið. MYND/SIGTRYGGUR ARI Lagði pólitíkina á hilluna og gerðist rútubílstjóri Guðmundur Ingi Gunnlaugsson starfaði við sveitarstjórnarmál í 24 ár. Hann var meðal annars bæjarstjóri í Grundarfirði. Sextugur að aldri ákvað hann að taka meirapróf og verða rútubílstjóri. 18 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR 555-8000 Varahlutir á góðu verði  Pústefni - Pústklemmur - Púströr - Hljóðkútar 2 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 B -B 1 4 C 2 2 2 B -B 0 1 0 2 2 2 B -A E D 4 2 2 2 B -A D 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.