Fréttablaðið - 29.01.2019, Qupperneq 38
Vera
Einarsdóttir
vera@frettabladid.is
Ég hef gaman af því að vera í bílskúrnum að gera og græja. Ég ólst hálfpartinn upp í
Willys jeppa hjá pabba mínum en
hann keppti í torfæru í fjölda-
mörg ár og hefur Willys jeppi
tilheyrt fjölskyldunni frá árinu
1986. Markmiðið er að koma
honum á götuna á ný og vinnum
við að því í tómstundum,“ segir
Sigurþór. Tveggja ára tvíburasyn-
ir hans hafa ekki farið varhluta
af dellunni og finnst afskaplega
gaman að vesenast með pabba
sínum í jeppanum. Þegar til stóð
að leggja rimlarúmunum kom því
fátt annað til greina en að smíða
handa þeim jepparúm. „Ég hafði
rekist á myndir af Willys barna-
rúmum á netinu og ákvað að slá
til enda verða allir litlir strákar
að eiga Willys jeppa,“ segir hann
og hlær.
Hann byrjaði á því að f letta
upp stærðinni á barnarúmum hjá
IKEA og miðaði innanmálin við
það svo hann gæti keypt passandi
dýnur. Veltibúrin smíðaði hann
úr ryðfríu stáli en rammana úr
MDF plötum sem hann fræsti út
og sagaði til. Dekkin og felgurnar
eru svo fengin af fjórhjóli.
Rúmin geta að sögn Sigurþórs
ýmist verið upp við vegg eða
legið saman hvort upp að öðru
úti á miðju gólfi. Hann ákvað að
mála þau bæði blá svo ekki yrði
metingur á milli bræðranna, en
viðurkennir að hann hefði sjálfur
viljað hafa annan bílinn rauðan.
En hvað tók verkið langan tíma?
„Ég hef ekki grænan grun um það.
Það er með svona verkefni að það
er best að velta því sem minnst
fyrir sér. Annars myndi maður
aldrei ráðast í þau.“
Rúmin eru 1,65 sentímetrar á
lengd og ættu að sögn Sigurþórs
að duga drengjunum þar til þeir
verða tíu til tólf ára, eða svo lengi
sem þeir vilja vera í þeim.
Sigurþór segir synina Kristin
Jarl og Alexander Frey hæst-
ánægða með rúmin sín. „Mesta
sportið fyrstu dagana var auð-
vitað að uppgötva að þeir gætu
komist úr þeim, ólíkt rimlarúm-
unum, og straujuðu þeir reglulega
fram á gang til að segja hæ. Konan
fór svo í það þolinmæðisverkefni
að kenna þeim að vera um kyrrt
og sofa þar næturlangt.“
Jeppadella
í blóðinu
Vélsmíðameistarinn Sigurþór Friðbertsson smíðaði ný-
verið Willys jepparúm handa tveggja ára tvíburasonum
sínum. Jeppadella á sér djúpar rætur í fjölskyldunni og lá
beint við að synir hans fengju sérsmíðuð jepparúm.
Rúmin eru 1,65 sentímetrar að lengd og ættu að duga bræðrunum fram til tíu
til tólf ára aldurs. Strákarnir eru einstaklega sáttir við nýju finu rúmin sín.
Sigurþór, sem ólst hálfpartinn upp í Willys jeppa, sá mynd af Willys barnarúmi á netinu og ákvað að smíða sams
konar rúm handa tvíburasonum sínum þeim Kristni Jarli og Alexander Frey sem eru tveggja ára. MYNDIR/STEFÁN
Ný og glæsileg varahlutaverslun
Sérhæfð fyrir atvinnubifreiðar og tæki
555-8000
Álhellu 8, 221 Hafnarfirði
Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur
22 KYNNINGARBLAÐ 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
2
9
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:3
1
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
B
-9
8
9
C
2
2
2
B
-9
7
6
0
2
2
2
B
-9
6
2
4
2
2
2
B
-9
4
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
8
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K