Fréttablaðið - 29.01.2019, Síða 42

Fréttablaðið - 29.01.2019, Síða 42
Einfaldur og góður réttur sem má gera í miklu magni og frysta. 900 g kjúklingahakk (fæst frosið víða) 4 tsk. saxaður hvítlaukur 1½ tsk. salt 1 tsk. pipar 2 stór egg 1 bolli brauðrasp (t.d. frá Panko) 1 tsk. paprika 1 tsk. laukduft Sterk sósa: ½ bolli sterk sósa (e. hot sauce) 1 bolli ljós púðursykur 2 msk. eplasíder ¼ tsk. salt ¼-½ tsk. chili-flögur Stillið ofninn á 240 gráður. Setjið bökunarpappír á tvær ofnskúffur og setjið til hliðar. Setjið innihald sósunnar í pott og látið malla í rólegheitunum í 8-10 mín. Takið af hellu og leyfið að kólna en hún þykknar við það. Setjið hráefnið fyrir bollurnar í stóra skál og notið hendurnar til að blanda því saman. Mótið bollur úr hakkinu og notið um 3 msk. í hverja bollu. Setjið þær á bökunar- pappírinn og bakið í 11-13 mín. eða þar til þær eru tilbúnar. Notið tvær skeiðar til að dýfa hverri bollu ofan í sósuna og setjið aftur á bökunarpappírinn. Bakið í 1-2 mínútur. Berið fram með t.d. grjón- um, góðu salati og sterku sósunni (gerið þá tvöfaldan skammt). Ilmandi kjúklingabollur Þegar snjór liggur yfir landinu og hálka leynist undir er skynsamlegt að huga vel að hálkuvörnum til að fyrirbyggja slys og beinbrot. Hér gefast heilræði til að komast um heilu og höldnu á gönguferðum um vetrarríkið. l Mokið snjó af stéttum og tröppum. Fáið nágranna, ætt- ingja eða vini til að létta undir í mokstrinum ef með þarf. l Notið hlýja og góða skó með grófum sóla sem grípur vel í snjó og hálku. l Notið mannbrodda undir skóna þar sem hálka er. Grófir broddar eru betri í snjó á meðan fínir broddar eru betri á ísi lögðum flötum. l Hafið tiltækan sand eða salt til að sáldra yfir hála göngufleti áður en haldið er út á hálkuna. Vel búin í hálkunni Sævar Helgi leiðir göngur HÍ og FÍ sem nefnast Fróð- leikur í fararnesti. Sævar Helgi Bragason, stjörnu-miðlari frá Háskóla Íslands, svarar öllum spurningum um norðurljósin, stjörnurnar og vetrar- brautina í ókeypis gönguferð sem helguð er himingeimnum. Lagt er af stað klukkan 20 á einkabílum frá skrifstofu Ferðafélags Íslands, Mörkinni 6, laugardaginn 1. febrúar. Ef ekki viðrar til himinskoðunar þennan dag verður ferðinni frestað þar til góðar aðstæður skapast og það auglýst á fésbók og heimasíðu. Gangan er hluti af samstarfsverkefn- inu Með fróðleik í fararnesti. Með fróðleik í fararnesti eru skemmtilegar göngur á vegum Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands. Þúsundir Íslendinga hafa notið þess að fá góða hreyfingu og um leið fróðleik frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans. Þátttaka er ókeypis og allir vel- komnir. Fróðleikur undir stjörnubjörtum himni Það getur verið varasamt í hálku og snjó. MYND/ANTON BRINK 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Suðurhraun 3, 210 Garðabær á þinni leið 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 9 . JA N ÚA R 2 0 1 9 Þ R I ÐJ U DAG U R 2 9 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :3 1 F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 B -7 1 1 C 2 2 2 B -6 F E 0 2 2 2 B -6 E A 4 2 2 2 B -6 D 6 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 5 6 s _ 2 8 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.