Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 9
FÓKUS - VIÐTAL 91. febrúar 2019
líta öðruvísi á sjálfboðaliðastarf
en þær eldri. Ástæðan fyrir því
að ég er að koma til baka er að ég
hef nýja sýn á hvernig við eigum
að gera og skipuleggja okkar starf
í knattspyrnuhreyfingunni,“ segir
Geir og kveðst einnig hafa þroskast
á þessum tíma. „Þetta er ekki mód-
el sem ég var að finna upp. Það er
búið að vera í Skandinavíu í áratugi
og Englandi í heila öld. Mín sýn á
KSÍ í dag er sú að veik aðildarfélög
veikja KSÍ. Við þurfum að styrkja
grunninn og aðildarfélögin til að
ná framförum.“
Berð þú einhverja ábyrgð á
þessari stöðu sem þú ert að gagn
rýna?
„Auðvitað ber ég ábyrgð á því
hvar íslensk knattspyrna er stödd.
Ég er ekki óánægður með stöðuna
í íslenskri knattspyrnu. Ég kom inn
í KSÍ og byrjaði að láta mig dreyma.
Ég sá hvað við vorum komin langt
á eftir hinum Norðurlöndunum og
þurftum að byggja mikið upp. Við
höfum sótt í okkur veðrið og byggt
upp frábært knattspyrnusamband
og vel rekið að mínu viti. Ég byrj-
aði að segja það við fólkið sem þar
starfar: „Við eigum eftir að fara á
EM og við eigum eftir að fara á HM.“
Það var hlegið að því. En ég hafði
klára sýn og vann stíft eftir henni.“
Meðal þess sem Geir vill bæta
er að koma upp skrifstofum fyrir
deildirnar til að vinna að Íslands-
mótinu allt árið um kring. Segir
hann núverandi forystu ekki hafa
sömu áherslur eða sýn og hann
hvað þetta og fleira varðar.
Baktjaldamakk í UEFA
Alexander Ceferin, forseti UEFA,
gaf nýverið út yfirlýsingu um að
samskiptin við KSÍ hafi aldrei ver-
ið betri en eftir að Guðni Bergsson
tók við. Geir segist ekki hafa haft
mikil samskipti við núverandi for-
seta UEFA sem var nýkjörinn þegar
Geir var að hætta.
Heldur þú að þetta sé til komið af
því þú studdir hann ekki?
„Hann er mjög fúll út í mig,
mjög fúll. Ég fann það strax. Þegar
til stóð að finna nýjan forseta UEFA
hittumst við Norðurlandabúarnir
og þá var greinilega mikið plott í
gangi. Ég hef ekki mikið tekið þátt
í svona plottum eða baktjalda-
makki, heldur einblínt á okkar starf
og landsliðin. En þarna var ég og
þá kom þessi hugmynd um að við
ættum að styðja Ceferin. Ég hafði
kynnst honum nokkrum árum áður
og sagði við þá orðrétt að við hlytum
að geta fundið betri kandídat, sem
væri meira inni í knattspyrnumál-
um. Ceferin hefði ekki brennandi
áhuga á knattspyrnu. Svíinn og
Daninn voru hins vegar alveg harð-
ir á því að lýsa því yfir að Norður-
löndin ættu að veita honum braut-
argengi. Ég var ekki tilbúinn til þess
og ekki heldur Færeyingurinn. Hin-
ir fjórir gerðu það og þeim hef-
ur verið launað ríkulega. Svíinn er
orðinn varaforseti UEFA og Daninn
er að hoppa inn í stjórnina.“
Er mikil pólitík þarna?
„Gríðarleg,“ svarar Geir og seg-
ir mikið á því að græða að komast
áfram innan UEFA.
„Það eru hrossakaup þarna og
ekkert örðuvísi en önnur pólitík.
Ég hef einu sinni boðið mig fram
í UEFA og þá var eiginlega kom-
ið að mér frá Norðurlöndunum. Á
síðustu stundu hoppaði norski for-
maðurinn inn í baráttuna. Ef annar
okkar færi fram þá væri gatan greið
til að fá stjórnarsætið. Ég hafði
langmestu reynsluna af þeim og
hafði ekkert sótt þetta fast, en það
var ekki nein leið. Í staðinn fyrir að
við sætum bara saman og fyndum
lausn á því hvor okkar færi fram fór
svo að hvorugur okkar komst inn,
til að greiða leiðina fyrir Svíann
og Danann. Þetta eru okkar bestu
bræður í fótboltanum en þegar
kemur að völdunum og áhrifun-
um, þá er ekkert gefið eftir.“
Enginn bindindismaður
Þegar þú varst að bjóða þig fram
í framkvæmdarstjórn UEFA árið
2015 hefur því verið fleygt fram
að þú hafir tapað atkvæðum með
áfengisdrykkju og aðrir hafi beðið
þig um að halda þig til hlés og
hleypa öðrum að?
„Nei, þetta er lygi,“ segir Geir
ákveðinn. „Norski formaðurinn
steig fram með falskan boðskap um
að styðja Norðurlöndin. Hefði ann-
ar okkar fengið samanlögð atkvæð-
in hefði hann flogið inn.“
Þú hefur aldrei verið gagnrýndur
fyrir að vera skapillur eða stinga
undan peningum. En það hafa
verið kjaftasögur um drykkjumenn
ingu?
„Ég hef kannski ekki alltaf verið
nógu faglegur og maður verður að
umgangast áfengi með stillingu.
Ég er enginn bindindismaður. Ég
reyni að lifa lífinu, er kannski svo-
lítið fjörkálfur stundum og vil hafa
gaman af lífinu.“
Var drykkjumenning í knatt
spyrnunni almennt?
„Þegar ég kem inn í knattspyrnu-
hreyfinguna sem ungur maður þá
kynntist ég þessari menningu, má
segja. Í knattspyrnu og íþróttum al-
mennt, þá var þetta svona, en ekki
bara í kringum knattspyrnu á Ís-
landi,“ svarar Geir og bætir við að
mikið hafi breyst til hins betra og
það sé aðdáunarvert hvað leik-
menn í dag hugsa betur um heilsu
sína. Þá geri félagsliðin miklar kröf-
ur um reglusemi. Segir Geir að allt
annað andrúmsloft hafi verið á
þeim tíma þegar hann tók sín fyrstu
skref í knattspyrnuhreyfingunni.
Vill sjálfstæði félaganna
Er þitt framboð vantraustsyfirlýsing
á Guðna?
„Ég hef ekki orðið var við ann-
að en að hann hafi bara keyrt áfram
á því módeli sem ég skildi eftir
mig. Ég hef nýja sýn fyrir íslenska
knattspyrnu sem Guðni hefur ekki
og ég hef reynsluna og þekkinguna
til að hrinda henni í framkvæmd.“
Sumir hafa tengt framboð þitt
við íslenskan toppfótbolta?
„Ég er ekki sáttur við þá
þróun sem er að verða núna í
knattspyrnusamfélaginu með ÍTF
og knattspyrnusambandið og það
er hluti af því sem rak mig til að
hugsa málið. Það er rosaleg kergja
þar á milli og átök.“
Hvernig lýsti það sér?
„Ég átti vissulega í átökum við
ÍTF og ég viðurkenni það fúslega.
En við snúum tímanum ekki við.
Mín sýn er sú að félögin fái að ráða
miklu meira um sín mál. Það sem
mér hugnast alls ekki við ÍTF í dag
er að þessi samtök eru eins og ann-
að knattspyrnusamband. Samtökin
standa utan KSÍ, þau eru ekki aðil-
ar að KSÍ. Svo ég segi að við þurfum
ekki að finna upp hjólið við þurf-
um að hrinda í framkvæmd nýjum
starfsháttum og nýjum aðferðum
og dreifa valdinu. Þetta er vald-
dreifingarhugmynd sem ég er með.
Að félög þrói sínar eigin aðferðir í
knattspyrnu; Akureyri þrói sínar,
Skaginn sínar, KR sínar og Fjarða-
byggð sínar, og svo framvegis, allt
eftir því hvað mönnum hugnast. Ég
held að fjölbreytni sé góð fyrir KSÍ.“
Félög innan efstu deildar hafa
kallað eftir meira fjármagni frá
KSÍ. Er þörf á því? Þarf ekki að taka
frekar til í rekstrinum?
„Það geta allir nýtt meira fjár-
magn, en það er hins vegar alveg
ljóst að félögin þurfa að standa
með ábyrgum hætti að sínum
rekstri og það vita þau. Við erum
með leyfiskerfi, og stærsti liðurinn
er auðvitað leikmannakostnað-
urinn. En þegar þú lítur á stærstu
knattspyrnufélögin, þá sinna þau
gríðarlega mikilvægu hlutverki
fyrir samfélagið. Ég segi að íþrótt-
ir eru orðnar mun mikilvægari í
okkar nútíma þjóðfélagi heldur en
áður, því krakkarnir okkar eru bara
heima og í tölvuleikjum.“
Hefði mátt standa betur að
ráðningu Hamrén
Samkvæmt veðbönkum er Guðni
sigurstranglegur, ertu bjartsýnn?
„Ég segi oft, eins og með lands-
liðið og eins og þegar ég var að
spila fótbolta; ég hef bara alltaf
trúað því að þegar við förum inn á
völlinn að við getum unnið.“
Hvað finnst þer um þennan
sænska landsliðsþjálfara og hvað
ætlar þú að gera við hann komist
þú til valda?
„Ég vil ekki ræða einstaka
persónur. Ef ég verð kosinn, þá
starfa ég með þessu fólki. Eina sem
ég get sagt horfandi utan frá er að
vinnubrögðin hjá knattspyrnu-
hreyfingunni hefðu mátt vera betri
þegar kom að því að ráða þjálfara í
öll þessi mikilvægu störf og hann
var í mjög erfiðri stöðu, þarna fjór-
um vikum fyrir leik, að vera ráð-
inn. Enda fengum við á kjaftinn.“
Skorti reynsluna í pólitík
Geir vakti athygli þegar hann bauð
sig fram til bæjarstjórnar Kópavogs
síðastliðið vor. Hann var oddviti
Miðflokksins en fékk ekki brautar-
gengi í kosningunum.
„Já, ég fór aðeins í pólitík og
hafði gaman af.“
Hvað kaust þú áður en Miðflokk
urinn kom?
„Ég er miðju hægri maður. Ætli
ég sé ekki einhvers staðar þar. Í
knattspyrnuhreyfingunni er sagt
að ég sé alltof mikill jafnaðarmað-
ur. Það nutu þess öll félög á Ís-
landi. Það er eitthvert jafnaðargen
í mér.“ n
Suðurlandsbraut 14 • 108 Reykjavík • Sími 588 0188 • slysabaetur@slysabaetur.is
VIÐ SÆKJUM
BÆTURNAR
Ekki flækja málin.
„Geir Þorsteins-
son kynntist
drykkjumenningu í
knattspyrnunni