Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Síða 49
FÓKUS 491. febrúar 2019
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
HÉR BÚA TÍSKUDROTTNINGAR OG KÓNGAR
Njálsgata 15A Jón Davíð Davíðsson, annar eigenda Húrra Reykja-
vík, keypti sér 87 fermetra íbúð í mars 2018 í fallegu húsi í miðbæn-
um. Kaupverðið var 48 milljónir króna. Skemmtileg staðsetning á ný-
lega uppgerðu húsi.
Fjölnisvegur 10 Helga Árnadóttir, önnur systranna, sem eiga og
kenndar eru við Vero Moda/Best Seller-veldið, býr í glæsilegu 617
fermetra húsi, sem byggt var árið 1935. Húsið keypti hún með fyrr-
verandi manni sínum, Grími Alfreð Garðarssyni, í apríl 2005. Einstök
eign stutt frá Landspítalanum og Hallgrímskirkju.
Grundarstígur 3 Skjöldur Sigurjónsson, ann-
ar eigenda Kormáks og Skjaldar, býr ásamt konu
sinni, Ísold Grétarsdóttur, í 161 fermetra húsi,
sem byggt var árið 1913. Húsið keyptu þau í sept-
ember 2014 og var kaupverðið 22,9 milljónir
króna. Skemmtileg eign í Þingholtunum.
Guðrúnargata 9 Heba Björg Hallgrímsdóttir,
eigandi Absence of Colour, leigir íbúð að Guð-
rúnargötu 9. Góð staðsetning, með Klambratún
hinum megin við götuna og miðbæinn innan seil-
ingar.
Grenimelur 10 Jóhann Guðlaugsson, eigandi Geysis, býr ásamt
konu sinni, Rakel Þórhallsdóttur, í 278 fermetra húsi, sem byggt var
árið 1945. Húsið keyptu þau í mars 2016 og kaupverðið var 100 millj-
ónir. Frábær staðsetning í vesturbænum, stutt á KR-völlinn, í Mela-
búðina og í miðbæinn.
Haukanes 13 Lilja Hrönn Hauksdóttir, sem ávallt
er kennd við Cosmo, býr ásamt manni sínum, Jak-
obi Frey Jakobssyni, í glæsilegu 517 fermetra húsi
sem byggt var árið 1980. Húsið keyptu þau í júlí árið
1995 og var kaupverðið 28, 7 milljónir króna. Glæsi-
leg eign á Arnarnesinu.