Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 6
6 1. febrúar 2019FRÉTTIR S veinbjörn Jónsson líf- eyrisþegi og eiginkona hans, Elín Bergsdóttir, urðu fyrir óskemmti- legri reynslu í desember síðast- liðnum þegar óprúttinn þjóf- ur braust inn á hótelherbergi þeirra í Kaupmannahöfn og hafði á brott með sér dágóða peningaupphæð. Tjónið fæst ekki bætt og af þeim sökum þarf Sveinbjörn vinna sér inn upphæðina og meira til, til þess að komast hjá skerðingu á líf- eyristekjum. Vöknuðu með þjóf inni í hótelherberginu Að sögn Sveinbjarnar átti þjófnaðurinn sér stað í byrjun desember þegar þau hjónin gistu á Grand Hotel Copen- hagen. Eldsnemma að morgni vöknuðu þau við að ókunnugur maður var staddur inni í her- berginu og var hann að gramsa í farangrinum. Þjófurinn lagði á flótta. „Þegar hurðinni var ýtt að stöfum leit út eins og hún væri vel lokuð en svo var ekki,“ segir Sveinbjörn en þjófur- inn náði að hafa á brott með sér tæpar 50 þúsund íslenskar krónur. Tjónið fá þau ekki bætt. „Okkur var vísað á lögregluna og gáfum skýrslu þar, en þar sem mér láðist að gera ráðstaf- anir vegna kviklæsingar hurðar- innar var mér tjáð að tjónið félli á mig.“ Sveinbjörn hefur þegið lífeyri undanfarin ár og unnið hlutastarf samhliða því. Þegar vinnulaun hans ná yfir frítekju- mark atvinnutekna þá skerð- ir það lífeyri hans frá almanna- tryggingum. „Þess vegna og af heilsufarsástæðum hafði ég ákveðið að vinna eingöngu upp að viðkomandi þaki á þessu og næsta ári. En nú verð ég að auka ráðstöfunartekjur mínar um þær 50 þúsund krónur sem þjófurinn tók,“ segir Sveinbjörn jafnframt, en hann gerir ráð fyr- ir að þurfa að vinna sér inn að minnsta kosti þrefalda þá upp- hæð sem um ræðir. Hann bend- ir á að íslenska ríkið fái þannig minnst tvöfalda þá upphæð sem þjófurinn hafði upp úr krafsinu. „Það var ekki fyrr en ég kom heim sem ég gerði mér grein fyrir hversu þjóðhagslega hag- kvæmur þessi fingralangi Kaup- mannahafnarbúi er fyrir ríkis- sjóð Íslands. Ef ríkið tekur sér rétt til að skerða auk skattlagn- ingar merkir það í mínum huga að þeir hafi ekki aðeins þjóð- nýtt allan uppsafnaðan lífeyri upp að ákveðnum grunni held- ur hafi þeir jafnframt skuldfært alla þá sem ekki ná að safna upp í viðkomandi grunnlífeyri yfir starfsævina,“ segir Svein- björn. n Við erum í þínu hverf i Bíldshöfði 9 Smáratorg 1 Helluhraun 16-18 Fiskislóð 1 A lls hafa 11.440 Ís- lendingar breytt nafni sínu undanfarin fjögur ár. Lang algengast er að kenninafni sé breytt en breytingarnar þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði í samræmi við lög um mannanöfn. Íslendingar geta þó breytt eigin- og milli- nafni sínu eins og þá lystir, að því gefnu að nafnið sé samþykkt af mannanafnanefnd. Leggja þarf fram ástæðu fyrir beiðninni en Þjóðskrá Ísland telur að stofn- uninni sé ekki heimilt að hafna beiðni um nafnabreytingu sama hvaða ástæða er lögð til grund- vallar beiðninni. DV óskaði eftir upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands um fjölda nafnabreytinga sem gengið hafa í gegn sem og upplýsingum um hvaða reglur giltu varðandi nafnabreytingar. Í svari frá stofn- uninni kemur fram að alls hafi 11.440 slíkar beiðni gengið í gegn undanfarin fjögur ár og þar eru kenninafnsbreytingar í yfirgnæf- andi meirihluta. Alls hafa 10.360 Íslendingar breytt kenninafni sínu á þessum fjórum árum. Millinafnabreytingar voru 2.243 talsins, eiginnafnsbreytingar 1.123 og aðrar nafnabreytingar 1.192 Ákveðin skilyrði eru fyrir því hvaða kenninöfn Íslendingar geta borið. Þannig má kenna aðeins kenna sig við móður eða föður eða báða foreldra. Ef viðkomandi hefur rétt til þess að bera ættar- nafn þá má taka það upp, eitt og sér eða því til viðbótar að kenna sig við föður og/eða móður. Sem dæmi mætti Jón Arason, sonur Guðrúnar Smith og Ara Jónssonar, taka upp eftirfarandi breytingar á kenninafni sínu: Jón Guðrúnar- son, Jón Smith, Jón Guðrúnar- og Arason. Ef einstaklingur vill taka upp annað kenninafn en framan- greind þarf hann að tilgreina gild- ar ástæður fyrir því. Dæmi um slíkar ástæður gætu verið að nú- verandi kenninafn sé mjög fátítt, að það sé tengt þekktum afbrota- manni í hugum almennings og að það sé klaufalegt eða niðrandi. Algengasta kenninafns- breytingin er sú að kenning móð- ur verði til föður. Næstalgengast er að ættarnafn sé tekið upp í karl- legg, og síðan kenning til foreldris að viðbættu ættarnafni. Fjórða al- gengasta kenninafnsbreyting er sú að að erlendur ríkisborgari taki upp ættarnafn erlends maka og sú fimmta er að kenning til föður verði til móður. n UM 11 ÞÚSUND ÍSLENDINGAR HAFA BREYTT NAFNI SÍNU UNDANFARIN FJÖGUR ÁR Beiðnir um nafnabreytingar frá árinu 2015 ÞJÓÐHAGSLEGA HAGKVÆMUR ÞJÓFNAÐUR Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Sveinbjörn Jónsson Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.