Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 24
24 FÓKUS 1. febrúar 2019 1 Ekki taka myndir af heima-mönnum Myndavél sem beinist að mann­ eskju eða álíka saklaus athöfn get­ ur komið þér í vandræði. Ef þú ætlar að taka myndir af fólki og heimilum þeirra þá gæti fólkið móðgast. Ekki vera einn af „þess­ um“ ferðamönnum sem troða myndavélum í andlitið á öllum, einkum þegar fólk hefur engan áhuga á að sitja fyrir. Þetta er pirr­ andi á Íslandi, sem og annars stað­ ar í heiminum. 2 Ekki snerta svaninaÞetta gæti verið furðulegt ráð, en þú yrðir líklega hissa ef þú vissir upp á hverju ferðamenn taka þegar þeir eru að heiman. Villtir íslenskir svanir geta verið árásargjarnir, sér­ staklega í tilhugalífinu. Fullorðinn svanur getur brotið handlegginn á manneskju til að vernda ungviði sitt. Það er ekki bara mjög sárt, heldur muntu líka líta út eins og asni í augum annarra, fyrir að hafa reynt að snerta svanina. 3 Ekki ræða um stjórnmál eða Íslandssögu Nema þú sert algjört séní sem get­ ur rætt þetta af sannfæringu. Það er í góðu lagi að spjalla kurteislega um stjórnmál ef umræðuefnið ber á góma, svo lengi sem þú brydd­ ar ekki upp á því sjálfur. Og í guð­ anna bænum, hvað sem þú gerir, ekki segja eitthvað á borð við „Ís­ land er eins og litli ættleiddi sonur Noregs“. Bara ekki gera það. Það er alltaf góð hugmynd að vera kunn­ ugur staðháttum á þeim stöðum sem þú hyggst heimsækja, til að koma í veg fyrir félagslega útskúf­ un. 4 Ekki vera hávær og óþolandiÞetta er raunar góð þumal­ puttaregla fyrir alla. Íslendingar eru upp til hópa hljóðlát þjóð, fyrir utan líflega gesti miðbæjarins um helgar. Jafnvel háværustu og mest óþolandi Íslendingarnir eru mun bærilegri en meðal drykkjuraft­ urinn annars staðar í heiminum. Hvernig geta Íslendingar fund­ ið útlending? Þeir leita að hávær­ ustu manneskjunum úti á götu. Ef þú vilt að heimamenn komi fram við þig eins og durg með dólgslæti, þarftu bara að byrja að garga. 5 Ekki kvarta yfir matnum.Íslendingar elska ljúfmeti sitt, hval, lunda, gerjaðan (fínt orð yfir rotinn) hákarl, svið og hrútspunga. Það er ekkert meira pirrandi en illa upplýstur útlendingur sem kúgast á meðan fólk er að reyna að borða matinn sinn. Þú ert í þeirra landi, svo vertu kurteis. Ef ljúfmetið höfðar ekki til þín, ekki borða það, það ekki flókið. Það er mikið úrval af hentugri mat sem þú getur feng­ ið þér í staðinn. 6 Ekki fara í gufubað eða sundlaug án þess að þvo þér fyrst Að safnast saman í gufubaði og sundlaug er eins konar þjóðar­ íþrótt hjá Íslendingum. Það sem gerir sundlaugarnar frábærar eru þær ströngu hreinlætisreglur sem um þær gilda. Af virðingu við þess­ ar reglur muntu þurfa að þvo þér, nakinn, áður en þú ferð ofan í. 7 Vertu frjálslegur (eða ekki láta það angra þig að aðrir séu það) Íslendingar hafa ekki haft eigin­ lega efri stétt í um 700 ár, svo þeir eru minna feimnir við búkhljóð en aðrar þjóðir. Ekki verða hissa þótt þú rekist á fólk sem ropar, sötrar eða fretar í kringum þig. Þetta eru eðlileg búkhljóð. Svo taktu þátt, eða leiddu þetta framhjá þér. 8 Ekki vera kaldhæðinnEkki nota kaldhæðni á Ís­ landi. Kímnigáfa þín er ekki endi­ lega velkomin annars staðar en heima hjá þér. Enska er ekki fyrsta tungumálið á Íslandi. Brandararnir þínir gætu tapað merkingu sinni í þýð­ ingunni og kaldhæðni þinni tek­ ið sem eiginlegu svari við spurn­ ingu. Best er að vera einlægur og vingjarnlegur. Ef eitthvað misferst, biddu þá afsökunar og haltu áfram inn í daginn þinn. 9 Ekki reyna að tala íslenskuLíkt og í öðrum Evrópuríkjum, þar sem enska er ekki almenn, þarf að tala ensku á Íslandi. Nema þú hafir lært íslensku. Tungumálið er ótrúlega erfitt að læra og bera fram. Heimamenn munu ekki endilega telja þig kjánalegan eða vitlausan, reynir þú að tala tungumál þeirra, en að öllum líkindum munu þeir ekki skilja orð af því sem þú reynir að segja. Til að vera kurteis geturðu komist af með að kunna halló, bless og takk, en annars skaltu halda þig við enskuna enda tala Ís­ lendingar flestir ensku. Líkt og á hinum Norður­ löndunum, eru íslenskir heima­ menn gjarnan hlédrægir. Yfirleitt má ganga að því sem vísu að þeir taki vel á móti og umberi erlenda ferðamenn sem heimsækja eld­ fjallahimnaríki þeirra. Ólíkt öðr­ um þjóðum, sem finnst best að eyða tímanum í að fylgjast með ferðum nágranna sinna, eru Ís­ lendingar uppteknir af sínu eigi lífi. Íslendingar virðast þolinmóð­ ir og afslappaðir. Samræður við þá geta verið mjög skemmtilegar, svo lengi sem þú getur haldið um­ ræðunum frá veðrinu. Rabb um allt og ekkert er ekki vel metið. Þú munt líklega heldur aldrei sjá alls­ gáða Íslendinga rífast, hvorki á al­ mannafæri né í einkahúsum. n Ferðamenn vilja gjarnan kynna sér væntanlega áfangastaði áður en lagt er af stað í ferðalag. Þeir sem hyggja á ferðalag til Íslands gætu því rekist á pistil á síðunni Tripsavvy þar sem taldir eru upp níu hlutir sem ferðamönnum er ráðlagt að gera ekki í Ís- landsferðinni. Hér fylgir þýðing á pistlinum og dæmi hver fyrir sig. Er höfundur pistilsins á villigötum ? Hlutirnir sem útlendingum er sagt að gera EKKI á Íslandi Erla Dóra erladora@dv.is Svanir eru engin lömb að leika sér við Nennir einhver að segja ferðamönnunum að við borðum þetta ekki daglega Að þvo sér fyrir sund ætti að vera skylda alls staðar! Á þennan lista vantar: Ekki leika ykkur í Reynisfjöru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.