Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Blaðsíða 27
Kærkominn vetur1. febrúar 2019 KYNNINGARBLAÐ VIP Dekk er orðið vel þekkt fyr-irtæki á íslenskum dekkja- og felgumarkaði en það hefur verið starfrækt í 6 ár að Eldshöfða 16. Með auknum umsvifum hefur fyrirtækið flutt starfsemi sína í nýtt og stærra 400 fer- metra húsnæði að Fosshálsi 7. VIP Dekk býður upp á faglega þjónustu þegar kemur að hjólbörðum og öllu sem þeim fylgja. Fyrirtækið sér meðal annars um umfelgun, ballanseringu, dekkjaviðgerðir og býður upp á dekkjahótel fyrir sumar- eða vetrardekkin. „Við seljum einnig allt sem tengist hjólbörðum á bílum og mót- orhjólum, hvort sem það eru hjólbarðar, felgur, hristiskynjarar, felgurær, felgu- miðjur eða annað, við erum með þetta allt,“ segir Vlad Lavrenov hjá VIP Dekk. Vertu öruggur í færðinni Það hefur ekki farið framhjá neinum sá snjóþungi sem verið hefur í Reykja- vík undanfarið, en slíkt færi getur haft töluverð áhrif á aksturseiginleika bifreiða og enn verri áhrif á hjólbarðana. Vlad mælir með að fólk drífi sig á verkstæðið að láta skoða ástandið á dekkjum. „Við veitum fyrsta flokks þjónustu og metum ástandið fljótt og örugglega. Svo erum við ráðleggjandi um framhaldið,“ segir Vlad. Sannfærðir um gæði Fondmetal Markmiðið er að sjálfsögðu að veita viðskiptavinum sínum betri þjónustu og aukið vöruúrval í dekkjum og felgum. VIP Dekk selur, meðal annarra merkja, felgur frá framleiðandanum Fondmetal sem Íslendingar ættu að kannast vel við frá fyrri tíð. Fondmetal er ítalskur framleið- andi og er einn af OE-framleiðendum fyrir bílaframleiðendur. Því eru kröfur um gæði og endingu mun meiri en hjá flestum öðrum framleiðendum. „Rætur Fondmetal má rekja til Formúlu 1 kappakstursins en Fond- metal var með sitt eigið lið í þeirri deild í áraraðir. Sérhæfing í sérstaklega léttum felgum og einstaklega mikilli nákvæmni við framleiðslu hefur því verið meðal þeirrar reynslu sem Fondmetal hefur haft að leiðarljósi er kemur að fram- leiðslu á öllum sínum felgum. Tveggja ára ábyrgð er á göllum og tæringu á öllum þeirra felgum og erum við því sannfærðir um gæði vörunnar.“ Við höfum verið að selja nýja línu frá Fondmetal sem heitir Inspired og er tileinkuð Audi, BMW, Skoda, Volkswagen og Mercedes. Þessi lína kom út á síðasta ári og hefur fengið svakalega góðar móttökur,“ segir Vlad. Enn frekari stækkunar línunnar er að vænta á þessu ári sem og nýrrar gerðar af „Tuning“-felgu sem er sérstaklega sterk og létt og ætluð kraftmeiri bílum. VIP Dekk ehf. býður faglega hjól- barðaþjónustu fyrir fólksbíla og jeppa og selur nýja hjólbarða frá GoodYear, Dunlop, Fulda, Sava, Toyo, Pirelli, BF- Goodrich og Sailun. Að auki bjóðum við felgur til sér- pöntunar á góðu verði frá Gmp Italia, CMS Wheels, Oz Racing og Bbs. „Nú geta allir viðskiptavinir okkar kom- ið til okkar og notið kaffisopans á meðan skoðaðar eru flottar felguútstillingar frá okkar framleiðendum í nýjum og stærri húsakynnum,“ segir Vlad. Nánari upplýsingar má nálgast á vef- síðunni vipdekk.is og á Facebook-síðunni vipdekkiceland. VIP Dekk ehf. er staðsett að Fosshálsi 7 110 Reykjavík. Endilega hafðu samband við okkur í síma: 571-9111 eða 690-9111 Netpóstur: vipdekk@internet.is. Opið er virka daga frá 08–18 og laugardaga frá 10–13. n VIP DEKK: Eru dekkin þín í lagi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.