Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2019, Qupperneq 14
14 FÓKUS 1. febrúar 2019
ALLAR ALMENNAR
FATAVIÐGERÐIR
TÖKUM AÐ OKKUR
www.l
ost.is
581 3330 / Malarhöfði 2
Pappírs-Pési
sniðgenginn af Óskarnum
T
ilnefningar til 91.
Óskars verðlaunanna
voru kynntar í síð-
ustu viku og eru sér-
fræðingar um allan heim farn-
ir að spá grimmt í spilin. Þann
24. febrúar næstkomandi verð-
ur hátíðin sýnd í beinni. Fram-
lag Íslands í fyrra var dramatíska
kómedían Kona fer í stríð eftir
Benedikt Erlingsson en komst
hún ekki áfram og var sniðgengin
af akademíunni vestanhafs.
Á hverju ári eru send fram-
lög til þessarar nefndar en
hefur íslensk kvikmynda-
gerð ekki fengið sess síðan
árið 1991 með hinni
margumtöluðu Börn
náttúrunnar. Sam-
kvæmt sögum vorum
við nálægt því að komast
í úrslit með Djúpinu hans
Baltasars. Einn daginn
mun Ísland komast aft-
ur á radarinn en þangað
til sá dagur rennur upp er
þess virði að skoða fimm
furðulegustu framlög sem
okkar ágæta kvikmynda-
gerðarfólk hefur lagt út
í gegnum árin.
Það er fátt sem öskrar „Óskarsmynd“ meira en barnamynd um teikn-
aðan leikfélaga sem vaknar til lífs og veldur usla – eða hvað? Á milli
hennar og kvikmyndarinnar Ryð, sem kom einnig út árið 1990, var
um lítið annað að velja. Pappírs-Pési ákvað engu að síður að vaða í
Óskarshlaupið af fullu afli og vona það besta. Fígúran kætti ófá börn
á sínum tíma og í gegnum árin á Íslandi en þótti víst ekki nógu efni-
legur fyrir alþjóðamarkað. En Pappírs-Pési má að sjálfsögðu ekki gef-
ast upp og ef hann verður einhvern tímann endurgerður er gráupp-
lagt að spýta í lófana og gefa honum annan séns. Hann Pési okkar
á það skilið, því fátt rífur meira í hjartarætur Íslendingsins en þegar
hann setur upp fýlusvipinn.
Þessi „pönkaða“ unglingamynd
úr smiðju Júlíusar Kemp féll
svo sannarlega ekki í kramið
hjá öllum þegar hún kom út
árið 1997. Mörgum þótti hún
heldur tilgerðarleg, ef ekki pín-
leg, þótt góð tónlist og hressir
frasar hafi staðið upp úr. Blossi
hefur þó öðlast ákveðinn stat-
us sem „költ“-mynd í gegnum
árin og hafa ýmsir krafist þess
að myndin komist í þá staf-
rænu útgáfu sem hún á skilið.
En í ljósi þess að mynd eins og
Trainspotting hafa varla feng-
ið mikla ást frá akademíunni
í denn, átti þá Blossi nokkurn
séns frá upphafi?
Stikkfrí verður að segjast vera með betur heppnaðri fjölskyldumynd-
um Íslands. Myndin sló alveg í gegn í kvikmyndahúsum og á leigum
og hefur reynst mikil nostalgía fyrir þá hópa sem voru á sambærileg-
um aldri og stúlkurnar í aðalhlutverkunum. Hins vegar hefur Óskar-
inn sýnt það fordæmi að fjölskyldumyndir þurfi að vera í bitastæðari
kantinum og örlítið meira brautryðjandi til að eiga möguleika (sjá
Pappírs Pésa). Myndin kom út sama ár og Blossi hérlendis en var
send inn sem framlag næsta ár á eftir. Stikkfrí lifir svo sannarlega
í þjóðarsál íslenskrar kvikmyndagerðar, en það ætti að hafa verið
nokkuð ljóst frá upphafi að þar væri hún best geymd frekar en að
koma henni víðar.
Seinni Stuðmannamyndin er enn þann dag í dag heldur umdeild,
ekki síður þegar hún er borin saman við frummyndina sem sigraði
hjörtu Íslendinga snemma á níunda áratugnum. Það þykir þó held-
ur undarlegt að senda kvikmynd út sem framlag til stærstu verð-
launahátíðar kvikmyndabransans þegar hún er morandi í einka-
húmor og óteljandi tengingum við Með allt á hreinu. Akademían
hefur væntan lega ekki þekkt mikið til upprunalegu myndarinnar né
náð að dilla búknum yfir nýrri lögum Stuðmanna. Í takt við tímann
hlaut varla umtal né viðlit í kringum Óskarstímabilið 2005. Sennilega
skrifast valið á tiltölulega slappa samkeppni það ár og má deila um
það hvort Í takt við tímann beri af við hliðina á titlum á borð við Dís,
Blindsker, Opinberun Hannesar og Kaldaljós. Þetta er engu að síð-
ur upplagt tækifæri til að spyrja landann hvort sú manneskja sem til
sem kann betur að meta seinni Stuðmannamyndina en þá fyrri. Hún
má endilega stíga fram.
Spennutryllirinn Reykjavík-Rotterdam var með vinsælustu mynd-
um á Íslandi árið 2008. Myndin er samstarfsverkefni þeirra Baltasars
Kormáks, Arnaldar Indriðasonar og Óskars Jónassonar (Skara
skrípó). Það eru fáir sem ekki taka undir að tæknivinnsla hafi verið
vönduð og keyrsla myndarinnar brött, en í samhengi hins stóra
markaðar er þessi tryllir aðeins dropi í hafið. Þetta kom meira að
segja í ljós þegar myndin var endurgerð fyrir bandarískan mark-
að undir nafninu Contraband og gagnrýnendur sögðu söguna vera
langsótta, gjarnan ófrumlega og dæmigerða. Óskarinn er kannski
ekki alltaf samkvæmur sér sjálfum en það þarf að miða aðeins hærra
en að „ásættanlegri spennumynd“ til að Skari frændi finni þig á
radarnum.
Stuðmenn í súginn?
(Ahead of Time – 2004)
Skari skrípó sækir í Skara frænda
(Reykjavík-Rotterdam – 2008)
Pési tættur (The Adventures
of Paper Peter – 1990)
Blossinn sem dvínaði
(Blossi/810551 – 1997)
Stikkfrí frá Óskarnum
(Count Me Out – 1997)
Tómas Valgeirsson
tomas@dv.is