Dagblaðið Vísir - DV - 04.01.2019, Síða 9
4. janúar 2019 FRÉTTIR 9
ÓSVARAÐAR SPURNINGAR VARÐANDI BRAGGAMÁLIÐ
1 Enn hafa ekki fengist svör frá Reykjavíkurborg, þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir DV til
þess að fá þau, um hvað ná-
kvæmlega yfir 70 milljónir fóru
í vegna uppgerðar á minjum. Á
sínum tíma þegar málið var í há-
mæli sagði Bjarni Brynjólfsson,
upplýsingarstjóri Reykjavíkur-
borgar, það hafa verið t.d. mjög
dýrt að gera upp gólfið ásamt því
að arinn hafi verið gerður upp.
Einnig hafi burðarbitar verið not-
aðir. Þegar reikningar eru skoð-
aðir þá kemur í ljós að uppgerð
á gólfi braggans kostaði rúmar
þrjár milljónir króna og hlýtur þá
listinn yfir þá hluti sem var gerð-
ur upp að vera langur.
2 Í samtali við DV sagði Dag-ur B. Eggertsson, borgar-
stjóri Reykjavíkurborgar, að Innri
endurskoðun borgarinnar hafi
skoðað tölvupóstssamskipti á
milli hans og Hrólfs Jónssonar,
fyrrverandi skrifstofustjóra skrif-
stofu eigna og atvinnuþróunar
Reykjavíkurborgar. Í samtali við
Innri endurskoðun borgarinnar
segir hann að svo hafi ekki verið
gert. Strax og skýrslan kom út bað
DV um viðtal við borgarstjóra,
enn hefur þeirri beiðni ekki ver-
ið svarað. DV sendi beiðni um að
fá allan tölvupóst um samskipti
Dags B. Eggertssonar og Hrólfs
Jónssonar vegna Nauthólsvegar
100. Var svarið frá borginni á þá
leið að enginn tölvupóstur væri
til. Í Kastljósviðtali sagði borg-
arstjóri að til væri einhver tölvu-
póstur á milli hans og Hrólfs
vegna Nauthólsvegar 100.
3 Ekki hefur verið útskýrt hvers vegna næsti yfirmaður Hrólfs
Jónssonar, Stefán Eiríksson borg-
arritari, hafi ekki verið upp-
lýstur um málið. Innri endur-
skoðun bendir á í skýrslu sinni
að bein samskiptaleið hafi verið
að milli Hrólfs og Dags B. Egg-
ertssonar vegna ýmissa mála
hjá borginni en þeir segja báð-
ir að engin samskipti hafi verið
um framkvæmdir á bragganum,
þrátt fyrir að þeir séu að vinna í
sama skrifstofurými.
4 Árið 2015 skilaði Innri endurskoðun Reykjavíkur-
borgar frá sér svartri skýrslu
vegna starfsemi skrifstofu eigna
og atvinnuþróunar. Kom þar
fram að margar brotalamir væru
í starfsemi skrifstofunnar og að
mikið vantaði upp á ferla. Kom
Innri endurskoðun borgarinnar
með 30 tillögur um hvernig væri
hægt að bæta starfsemi skrifstof-
unnar. Í skýrslunni um bragga-
málið er tekið sérstaklega fram
að ef tillögur úr skýrslunni 2015
hefðu verið framkvæmdar hefði
braggamálið aldrei getað átt sér
stað. Borgin hefur ekki enn svar-
að af hverju ekki var farið eftir
tillögum Innri endurskoðunar á
þeim tíma.
6 verkefni Reykjavíkurborgar
sem hafa verið í fjölmiðlum
sem hafa farið fram úr upp-
runalegum áætlunum
n 1. Bragginn við Nauthólsveg
- 267 milljónir fram úr áætlun -
Framkvæmdum ekki lokið
n 2. Mathöllin við Hlemm - 208
milljónir - Framkvæmdum ekki
lokið
n 3. Aðalstræti 10 - 270 milljónir
n 4. Vitinn við Sæbraut - 75 millj-
ónir - Framkvæmdum ekki lokið
n 5. Gröndalshúsið - 198 millj-
ónir
n 6. Fjölbýlishús í Írabakka - 330
milljónir
Samtals: 1.348 milljónir
Ráin er alhliða veitingahús
í hjarta Reykjanesbæjar
Hafnargata 19a - Keflavík
Sími 421 4601- rain@rain.is
Við skemmtum okkur vel
Allar helgar lifandi tónlist, dansað fram á nótt
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTAFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
6
5
4
3 2