Morgunblaðið - 14.09.2018, Page 1

Morgunblaðið - 14.09.2018, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. S E P T E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  216. tölublað  106. árgangur  TÓNLEIKAR GUÐNÝJU TIL HEIÐURS ALLT SEM ER FRÁBÆRT FORKEPPNI EM BYRJAR Í PORTÚGAL FRUMSÝNING 30 ÍÞRÓTTIR KÖRFUBOLTIKAMMERMÚSÍK 31 Morgunblaðið/Hari Hæstiréttur Erla Bolladóttir var meðal þeirra sem fylgdust með í í gær.  Málflutningur vegna endur- upptöku Guðmundar- og Geirfinns- málsins hófst í Hæstarétti í gær. Hann heldur áfram frá klukkan níu í dag og er áætlað að þeim lið verði lokið síðdegis. Ákæruvaldið og verjendur sakborninga fara fram á sýknu þeirra sem dæmdir voru 1980 fyrir að hafa orðið Guðmundi Einarssyni og Geirfinni Einarssyni að bana. Fram hefur komið að hinir sak- felldu sættu óhóflegri einangrun og voru beittir harðræði. Þá kom fram í máli verjenda að meintar játn- ingar skjólstæðinga þeirra væru falskar og sagði saksóknari játn- ingarnar einu sannanirnar. Jón Steinar Gunnlaugsson, einn verjendanna, segir allt benda til sýknu, en að tjón þeirra dæmdu verði aldrei bætt. »6 Guðmundar- og Geirfinnsmálið tekið upp að nýju Krabbamein á Íslandi » Árlega greindust 813 karlar og 764 konur með krabbamein á árabilinu 2012-2016. » Um þriðjungur Íslendinga fær krabbamein einhverntíma á lífsleiðinni. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hættan á að hver einstaklingur á Ís- landi greinist með krabbamein er hætt að aukast og virðist raunar farin að minnka, að sögn Laufeyjar Tryggvadóttur, framkvæmdastjóra Krabbameinsskrár. Þetta er m.a. þakkað minnkandi reykingum, holl- ara mataræði og skimun fyrir forstig- um leghálskrabbameins. Árlega greinast hér um 1.600 ein- staklingar með krabbamein og hefur verið stöðug fjölgun frá upphafi krabbameinsskráningar árið 1954. „Horfur krabbameinssjúklinga hafa batnað mjög mikið með tíman- um. Nú eru á lífi yfir 15.000 manns sem hafa greinst með krabbamein, þar af stór hópur sem er læknaður,“ sagði Laufey. Því er spáð að árið 2030 verði fjöldi krabbameinstilfella sem greinast árlega kominn yfir 2.000. Helsta skýringin er sú að Íslending- um fjölgar og að þjóðin er að eldast. Nýgengi krabbameina eykst með aldrinum. Dánartíðni af völdum krabbameina fer lækkandi hér eins og víðast hvar í Evrópu. Þar vega líklega þyngst stór- stígar framfarir í meðferð sjúklinga, minni reykingar og skimun fyrir brjóst- og leghálskrabbameini. Áhættan farin að minnka  Árlega greinast um 1.600 manns hér á landi með krabbamein  Yfir 15.000 manns sem greinst hafa með krabbamein eru á lífi  Stór hópur er læknaður MTilfellum fjölgar … »4 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Slysstaður Endurnýja þarf bílana reglulega en þeir slitna oft fljótt. Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Formaður fagdeildar sjúkraflutn- ingamanna, Birkir Árnason, segir bráða þörf á endurnýjun sjúkrabíla hér á landi og að mikilvægt sé að leysa fljótt og vel þá stöðu sem upp er komin eftir að ákveðið var að fresta opnun útboðs vegna kaupa á nýjum sjúkrabílum. „Ég er fulltrúi sjúkraflutninga- manna í hópi sem var ráðgefandi í gerð útboðsins. Við eigum fund með velferðarráðuneytinu eftir helgi. Þá verður staðan útskýrð nánar fyrir okkur,“ segir Birkir, en útboðið tók til kaupa á allt að 25 sjúkrabílum. Magnús Smári Smárason, for- maður Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS), segir frestun útboðs vera mikið bak- slag. „Menn hafa núna svolitlar áhyggjur af framhaldinu og hvernig til tekst með tilfærslu á rekstri sjúkrabíla frá Rauða krossinum og yfir á ríkið. Þetta er a.m.k. ekki góð byrjun.“ Þá eru dæmi þess að sjúkrabílar séu eknir um og yfir 300.000 km. »4 Brýn þörf á endurnýjun  Frestun á útboði er ekki góð byrjun, segir formaður LSS Veðrið lék við íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær og gafst tækifæri til þess að njóta tvíhjóla hvort sem um ræðir vélknúið eða fótknúið. Sumir höfðu orð á því að hugsanlega væri um að ræða besta veður sumarsins um miðjan september. Helgarveðrið verður þó heldur svalara. Morgunblaðið/Hari Blíðan lék við vegfarendur  Humlur sem einnig eru kall- aðar býflugur eða randaflugur sáust varla í júní og júlí, vegna rigninganna, að sögn Erlings Ólafssonar, skor- dýrafræðings hjá Náttúrufræði- stofnun. Því varð frævun hjá blómum minni. Það kom meðal annars fram í lélegri berja- sprettu á rigningarsvæðunum. Humlur vantaði til að fræva blá- berjalyngið. »10 Humlur vantaði til að fræva berjalyng Starf Býfluga í bláu kornblómi Stjórn HB Granda samþykkti í gær að kaupa útgerðarfélagið Ögurvík af Brimi hf. sem er í eigu Guð- mundar Kristjánssonar, forstjóra HB Granda. Á sama fundi var ákveðið að einfalda skipurit félags- ins og í stað sex manna fram- kvæmdastjórnar sitja nú aðeins þrír starfsmenn fyrirtækisins í henni. Það eru forstjórinn, fjár- málastjóri og framkvæmdastjóri. Síðastnefnda staðan er ný í skipu- riti félagsins. Samhliða þeim breyt- ingum var ákveðið að ráða Ægi Pál Friðbertsson í það starf en hann hefur frá árinu 2013 verið fram- kvæmdastjóri Brims hf. Stjórnar- formaður HB Granda er Magnús Gústafsson. Hann sat áður í stjórn Brims hf. Í Morgunblaðinu í dag er greint frá því að síðastliðið vor hafi þáver- andi stjórnendur HB Granda metið möguleg kaup á Ögurvík á þann veg að ekki væri hægt að réttlæta þau nema það kæmi verulega niður á arðsemi félagsins. Var talið að forsvaranlegt verð fyrir fyrirtækið í því ljósi lægi í kringum 8 milljarða en ekki 12,3. ses@mbl.is »16 Brim hf. herðir tökin innan HB Granda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.