Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 20

Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 20
Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018 ✝ Ingibjörg Frið-rika Helgadótt- ir fæddist í Ólafs- firði 27. nóvember 1930. Hún lést á Akureyri 6. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Helgi Jóns- son og Sigríður Jó- hannesdóttir. Tvíburasystir hennar er Rósa og hálfsystkin hennar voru Sigrún og Sigurjón Sigtryggsbörn, sem bæði eru látin. Ingibjörg giftist syni og eina dóttur. 4) Óskar Þór, kvæntur Lovísu Jóns- dóttur. Þau eiga son og tvær dætur. 5) Jóhann Ólafur, kvænt- ur Katrínu Úlfarsdóttur. Þau eiga þrjá syni og dóttur. 6) Inga Dóra, gift Páli S. Brynjarssyni. Þau eiga dóttur og son. Ingi- björg og Halldór bjuggu á Jarðbrú til 1986 og fluttu þá til Akureyrar. Halldór lést 11. maí 1987. Ingibjörg vann í þvotta- húsi Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri í um áratug. Hún veiktist alvarlega sumarið 2011 og var í framhaldinu í endur- hæfingu á Kristnesspítala í Eyjafirði. Frá ársbyrjun 2012 til dauðadags bjó hún á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hlíð. Útför hennar verður frá Dal- víkurkirkju í dag, 14. september 2018, klukkan 13.30. Halldóri Jónssyni, bónda, dýralækni og oddvita, á Jarðbrú í Svarf- aðardal á nýársdag 1954. Þau eign- uðust sex börn. Þau eru 1) Atli Rúnar, kvæntur Guðrúnu Helgadóttur. Þau eiga tvo syni. 2) Jón Baldvin, kvæntur Svanhildi Á. Árna- dóttur. Þau eiga þrjár dætur. 3) Helgi Már, kvæntur Regínu Rögnvaldsdóttur. Þau eiga tvo Imba á Jarðbrú var komin vel á sjötugsaldur þegar ég hitti hana fyrst. Ég var kominn í heimsókn til hennar í Heiðar- lundinn á Akureyri, hafði nokkr- um vikum áður fallið kylliflatur fyrir einkadótturinni, og var mættur til að heilsa upp á ætt- móðurina. Hún tók mér vel þá eins og alltaf enda auðvelt að láta sér lynda við hana Imbu. Hún var fædd og alin upp í Ólafsfirði en hafði ung gifst Hall- dóri bóndasyni frá Jarðbrú í Svarfaðardal og þar bjó hún í rúm 30 ár. Hún tók ástfóstri við dalinn og undi hag sínum vel. Þar ól hún upp börnin sín sex, fyrst strák- ana fimm og síðan einkadóttur- ina. Hún sinnti sínu af kostgæfni og einstakri trúmennsku og þeg- ar skoðaðar eru gamlar myndir frá Jarðbrú má sjá að snyrti- mennska hefur verið í fyrirrúmi jafnt innan dyra sem utan og strákarnir vel til hafðir og ekki síður daman. Sjálfsagt hefur það kostað töluvert umstang að hafa dreng- ina vel til hafða. Á Jarðbrú var búið af miklum metnaði og fal- lega. Imba tók virkan þátt í mannlífinu í dalnum, hún var ötul í starfi kvenfélagsins og var í lyk- ilhlutverki í kirkjukórnum. Þó svo að hún væri ekki að flíka sínu duldist engum, jafnvel ekki lag- villtum tengdasyninum, að hún hafði einstaklega góð söngrödd og mikla ánægju af því að syngja. Ég áttaði mig líka fljótlega á því að það var vissara að tala fallega um Svarfaðardalinn þegar Imba heyrði til. Tengdamóðir mín var afar skipulögð og einstaklega minnug. Það var allt í röð og reglu hjá henni og hún gat sagt nákvæm- lega fyrir um hvar í skápum eða skúffum hlutir voru og þetta breyttist ekkert þó svo að aldur- inn færðist yfir. Það var gaman að rifja upp liðna tíma með henni og hún var glögg á menn og mál- efni. Stundum voru skólaárin á Löngumýri rifjuð upp og ljóst að hún hafði lagt mikið á sig til að sækja sér menntun. Þar hafði hún unað sér vel, sennilega verið framúrskarandi nemandi og til- einkað sér allt sem þar var í boði. Við vorum sammála um að í Skagafirði væri gott að vera. Fyrst og síðast var Imba stolt af börnum sínum og afkomend- um þeirra. Þrátt fyrir að synirnir væru ýmist orðnir gráhærðir eða hárlitlir talað hún alltaf um strákana og þetta hefur Inga Dóra mín tileinkað sér líka. Hún fylgdist vel með hvað barnabörn- in og barnabarnabörnin voru að bardúsa og studdi þau með ráð- um og dáð. Ég á Imbu tengdamömmu minni margt að þakka. Hún var alla tíð boðin og búin að leggja okkur Ingu Dóru lið eða rétta hjálparhönd. Hún var börnunum okkar, Ástdísi og Brynjari Snæ, einstök amma, ljúf, umhyggju- söm og leiðbeinandi. Það fæ ég aldrei fullþakkað. Ég þakka Imbu samfylgdina og óska henni góðrar ferðar á nýjar lendur. Ég sendi strák- unum og fjölskyldum þeirra sam- úðarkveðjur. Þinn tengdasonur, Páll Snævar. Gleðjumst yfir minningum og geymum þær vel. Það var á sól- ríkum septemberdegi sem Imba kvaddi okkur hægt og hljótt eins og við var að búast af henni. Nú er hún laus úr viðjum jarðlífsins og ég er sannfærð um að það er sólskin, söngur og dans þar sem hún er. Og hlátur. Ingibjörg Friðrika, eða Imba eins og ég lærði fljótt að henni féll betur að vera kölluð, varð tengdamóðir mín fyrir réttum þrjátíu árum. Ég hefði ekki getað hugsað mér betri. Þá voru tiltölu- lega nýorðin kaflaskil í hennar lífi. Ég kynntist henni því ekki þegar hún stóð fyrir stóru sveita- heimili í Svarfaðardal. Sú Imba sem ég kynntist var ekkja, bjó á Akureyri og vann í þvottahúsi sjúkrahússins. Börnin hennar voru uppkomin og flutt að heim- an nema Inga Dóra og barna- börnunum fór fjölgandi. Þegar við Jóhann Ólafur eignuðumst tvíburana og fluttum til Akur- eyrar var aðstoð Imbu ómetan- leg. Fyrstu mánuðina kom hún nánast á hverjum degi til okkar og nú fæ ég henni aldrei fullþakk- að það að vagga drengjunum meðan örþreytt tvíburamamman fékk sér lúr. Hún miðlaði okkur af mikilli reynslu sinni en lét al- veg vera að segja okkur til í for- eldrahlutverkinu, þótt henni fyndist sjálfsagt sumt kjánalegt sem við fundum upp á. Hún var hjálpsöm og hvetjandi. Börnin okkar Jóhanns Ólafs eiga öll sín- ar dýrmætu minningar. Aðfanga- dagskvöldin þegar amma mætti á svæðið með alla jólapakkana. „Hún kenndi mér borðsiði við jólaborðið,“ varð yngsta syni okkar að orði. Þegar mikið stóð til fór hún í „íslenska fána spari- fötin og fór í skotthúfuna“ eins og fjögurra ára drengur orðaði það svo skemmtilega þegar litla syst- ir var skírð. Hún klæddist upp- hlutnum sínum í síðasta skipti fyrir fimm árum til að vera við stúdentsútskrift dóttur okkar. Þá var hún komin í hjólastól og ekki einfalt mál að fara í allan skrúð- ann. En með góðri aðstoð starfs- túlkna á Beykihlíð tókst það og þær tóku á móti okkur kátar og hlæjandi þegar við komum að sækja hana, búnar að eiga skemmtilega stund að brasa við síðpils, millur og krækjur. Fjölskyldan var henni allt og fram á síðasta dag fylgdist hún vel með afkomendum sínum. Hún á stóran þátt í því hversu sam- heldinn hópur þeir eru. Það var mikið áfall fyrir sjö ár- um þegar hún fékk heilablæðingu og í einu vetfangi breyttist allt. Veröldin minnkaði og heimili hennar varð Hjúkrunar- og dval- arheimilið Hlíð á Akureyri. Þar fékk Imba frábæra umönnun. Smám saman minnkaði þrekið en hugsunin var skýr til loka. Nú er komið að kaflaskilum og það mun taka tíma að venjast því að koma ekki lengur við á Hlíð eftir vinnu á föstudögum, kíkja til Imbu og spjalla um það sem á dagana hefur drifið í vikunni og hlæja saman. Við fylgjum nú Imbu síðasta spölinn út með firði þar sem hún mun hvíla við hlið tengdapabba í Dalvíkurkirkjugarði. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson) Hafðu kærar þakkir fyrir allt og allt, elsku tengdamamma. Katrín. Mér þykir stundum eins og ég sé að lýsa ættmennum í klass- ískri Astrid Lindgren barnabók þegar ég segi frá samheldnu og glöðu föðurfjölskyldunni minni. Fjölskyldunni þar sem enginn má helst missa af neinu, fólk er frekar hávært, farið er með ein- staka smáviðburði sem fréttamál á heimsmælikvarða og allir bæði hlæja og gráta saman, eða bara hvort tveggja í einu, ef svo ber við. Þannig hafa síðustu dagar og vikur einmitt verið, einfaldlega vegna þess að öðruvísi er ekki hægt að minnast ömmu okkar en að hlæja líka með. Hún gat hlegið að öllu og þá ekki síst sjálfri sér. Í því og svo mörgu öðru var hún og verður hin besta fyrirmynd sem við getum átt. Líf hennar var ekki endilega alltaf einfalt en amma var þrautseig og vissi og sýndi okkur hinum að oft er hlát- urinn – nú eða söngurinn – besta vopnið. Hún var auðvitað líka eldklár, orðheppin og snögg til svara sem gerði að verkum að oftar en ekki var það hún sem gaf okkur eitt- hvað að hlæja að. Fyrir okkur sem yngri erum þá hefur amma verið hjartað og þungamiðjan í fjölskyldunni svo lengi sem við munum. Nú þegar við kveðjum hana situr eftir hálfgert tóm einhvers staðar innst inni sem erfitt er að hugsa sér að hverfi. En þökk sé henni þá vitum við betur og breiðum yfir sárin með minning- um af jógúrtdósaturnum og nautahakksdiskótekum. Nú eða borðum pizzu og franskar henni til heiðurs og klæðum okkur í ein- hverja af prjónuðu gersemunum sem hún skilur eftir. Hún heldur ótrauð áfram; ullarklædd, ef það skyldi nú verða kalt þarna niðri, eins og hún sagði kankvís sjálf. Amma er og verður hjartað í fjöl- skyldunni í gegnum gildin sem hún ól upp í okkur og þannig verður hún áfram og alltaf í hjarta okkar allra. Lilja Dögg Jónsdóttir. Nú ertu farin, elsku amma mín. Frá þeim degi er lítil stúlka fæddist inn í þennan heim, með stór og forvitin augu, passaði amma svo vel upp á litla stelpu- barnið, sá svo um að aðstoða mömmu við að ala hana upp að Ingibjörg Friðrika Helgadóttir VINNINGASKRÁ 20. útdráttur 13. september 2018 98 6860 17650 27764 38039 46945 61041 72197 359 7127 19072 28243 38805 47268 61610 72214 384 7560 19511 28379 38935 47577 61692 72473 523 7909 19735 28468 39022 48055 62821 72503 597 8012 19791 28828 39127 48154 63258 72512 1122 8158 19852 29262 39243 48891 64311 72904 1528 8414 20412 29325 39290 49543 64323 73046 1691 9010 20493 30038 39603 50238 64902 73352 2083 9078 20498 30219 39780 50393 65091 73479 2111 9172 20505 30262 39921 50863 65239 74201 2252 9388 20618 30922 39960 51086 65340 74319 2634 9837 20877 31131 39975 51092 65349 74453 2635 10106 20957 31190 40237 51129 65580 76505 2649 10964 21225 31746 41014 51601 66500 76814 2682 11116 21292 31789 41574 52407 66574 77428 3337 11233 21461 32011 41872 52413 67032 77523 3616 11482 21862 32818 42109 52869 67230 77563 3849 11670 22979 32959 42274 54416 67546 77908 4031 11848 22998 33117 42412 54824 67671 78240 4170 11974 23379 33294 42597 54949 68182 78439 4308 12023 23507 33295 42637 55454 68863 78495 4535 12161 23616 33303 43820 55527 69167 78591 4560 13635 23783 33667 44011 55774 69181 78630 4936 13845 23964 33915 44093 56690 69395 78698 5110 13928 23980 34618 44253 57214 69408 78875 5290 14306 24038 34800 44514 57250 69415 78886 5512 14846 24396 34964 44951 58332 69646 78912 5549 14943 24424 35199 45093 58727 69653 79127 5674 14971 24673 35319 45263 58778 70073 79293 5815 15107 24926 35503 45281 59375 70384 79389 6114 15582 25303 35862 45332 60169 70430 79814 6137 15623 25475 36662 45809 60335 70682 6174 15888 25657 36983 46000 60354 70804 6273 15993 25672 37108 46089 60442 71169 6301 16164 25857 37556 46108 60503 71531 6614 17416 25999 37820 46594 60922 71952 6677 17550 27005 37827 46803 61026 72176 1423 13962 29489 37812 51883 61634 66994 76137 2027 14446 30507 39730 52044 61653 67685 76904 2162 14716 31852 39746 52360 61898 68596 77277 4126 16148 31869 41040 53850 62839 69392 77715 4264 17967 31968 41054 54495 63502 69685 78038 4645 18178 32589 42600 54918 64116 70587 78098 6227 20678 32631 43117 55135 64504 71398 78587 7868 21266 33038 43571 55778 64678 71756 78893 8163 21315 33401 44118 57216 65776 72519 79245 10719 22688 34573 44844 57452 66145 72634 11232 25495 37043 46452 58996 66382 74385 11949 26056 37465 47317 59551 66921 75301 13510 27095 37786 51221 59676 66940 76063 Næstu útdrættir fara fram 20. & 27. september 2018 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 2790 14248 30123 73597 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 10267 16540 27716 43498 56253 74908 12307 24486 33878 44900 59994 79156 15597 25879 43243 45022 73533 79401 15878 26961 43461 53923 73747 79836 Aðalv inningur Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur) 7 5 4 7 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.