Morgunblaðið - 14.09.2018, Síða 30

Morgunblaðið - 14.09.2018, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Japanskt meistaraverk Landsins mesta úrval af píanóum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Leikritið Allt sem er frábært eftir Duncan Macmillan, í þýðingu Kristínar Eiríksdóttur, verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleik- hússins í kvöld en í því er aðeins einn leikari, Valur Freyr Einars- son. Verkið er á vef leikhússins sagt „gleðileikur um depurð“ og leik- stjóri sýningarinnar, Ólafur Egill Egilsson, er spurður að því hvort verkið sé gamanleikrit með alvar- legum undirtóni. „Ég vildi eiginlega að undirtitill- inn væri gleðieinleikur um þung- lyndi og sjálfsvíg en markaðs- deildin samþykkti það ekki og depurð var sett í staðinn. Svo já, það er alvarlegur undirtónn, verk- ið fjallar um sjálfsvíg og andleg veikindi og kannski ekki síst að- standendur þeirra sem taka eigið líf. Á ótrúlegan hátt tekst að gera þetta bæði einlægt og með húmor. Heilmiklum húmor, reyndar,“ svarar Ólafur. Rífleg þátttaka áhorfenda –Miðað við lýsingar virkar þetta dálítið eins og blanda af leikriti og uppistandi … „Já, og með dálítið ríflegri þátt- töku áhorfenda, þeir leika stórt hlutverk, eða stór hlutverk í sýn- ingunni,“ svarar Ólafur. Nú líst blaðamanni ekki á blik- una, með boðsmiða á sýninguna í vasanum en lítt gefinn fyrir að vera dreginn upp á svið eða látinn taka þátt í leik- og uppistandssýn- ingum. Ólafur er því spurður hvort þeir sem haldnir eru slíkum ótta hafi ástæðu til að hræðast þessa sýningu. „Enga ástæðu,“ svarar hann kíminn. Þeir Valur hafi að vísu klórað sér í höfðinu yfir ein- staka atriðum og velt fyrir sér hvernig þeir ættu að fá fólk til að taka þátt í þeim. „Svo erum við búnir að vera með æfingar með áhorfendum núna síðustu tvær vikur og fólk kemur manni algjör- lega á óvart með hugrekki sínu og einlægni. En þetta er allt gert í miklum kærleik og það þarf eng- inn að vera með sem vill ekki vera með. Það þarf enginn að vera kvíð- inn.“ Ólafur er beðinn að nefna dæmi um þátttöku gesta en hann segist ekki vilja afhjúpa neitt hvað það varðar. „En ég get sagt að áhorf- endur leika stór hlutverk og til dæmis kemur pabbi aðalpersón- unnar við sögu, kærastan hans og dýralæknir og fólk hefur staðið sig frábærlega. Það er greinilega fullt af góðum leikurum í bænum.“ Ólafur ítrekar að leikhúsgestir geti afþakkað að taka þátt. „Það verður enginn látinn vera með sem vill ekki vera með,“ segir hann kíminn. Spyr ekki um stöðu eða stétt Macmillan, höfundur verksins, vann það upp úr smásögu sem hann skrifaði, Plötuumslög, í sam- starfi við leikstjórann George Perrin. Þeir unnu að verkinu með hléum í átta ár og breyttu í leikrit í fullri lengd en leikarinn og grín- istinn Jonny Donahoe hefur leikið í því í mörg ár og það verið sýnt í mörgum löndum. „Svo er líka fallegt við verkið að það liggur mjög vel við staðfærslu, bæði skiptir engu máli hvort það er leikið af karli eða konu og svo passar það inn í hvar sem er og er um þessi grunntengsl, fjölskylduna og ástvinina og er ekki bundið ákveðnu samfélagi, stað eða stund,“ segir Ólafur. „Málefnið sem fjallað er um í leikritinu spyr ekki um stöðu eða stétt. Fólk getur verið haldið lífs- leiða og depurð hvort sem það er ofarlega eða neðarlega í samfélag- inu, á Íslandi eða í Afríku, í sokk- um eða ekki,“ bendir Ólafur á. Frábær og næmur listamaður –Macmillan segir sjálfur að Do- nahoe hafi nýtt reynslu sína af uppistandi þegar hann lék í þessu verki og fundið leiðir að áhorf- endum sem þeim Macmillan og Perrin duttu ekki í hug. Veistu hvaða leiðir hann er að tala um? „Kannski að fá áhorfendur til að slaka á með því að tala blátt áfram, tala um hið hversdagslega og kunnuglega, af hlýju og nær- gætni og gleði,“ svarar Ólafur. „Ég held líka að af því Jonny er líka tónlistarmaður þá hafi hann komið svolítið með það element inn í sýninguna,“ bætir hann við og að verkið fjalli mikið um tónlist. Ólafur er að þreyta frumraun sína í að leikstýra einleik og segir Val hafa miklu meiri reynslu af slíkum verkum. „Hann hefur kom- ið að fleiri en einum einleik og býr auðvitað að því en út af þessari áhorfendaþátttöku þá er þetta, strangt til tekið, ekki alveg ein- leikur. En þetta hefur verið heil- mikil áskorun, verkið leynir á sér og það hefur verið mjög gefandi og gott að vinna með Vali, hann er frábær og næmur listamaður.“ Færri leikarar, örari þroski Ólafur segir tengslin við áhorf- endur miklu máli skipta í einleik. „Við erum búnir að hafa áhorf- endur í tvær vikur, urðum eig- inlega að fá inn fólk mjög snemma, verkið er þannig, starfsfólk Borg- arleikhússins hefur verið duglegt að sitja æfingar hingað til, Katrín í bókhaldinu átti t.d. stórleik á fyrsta rennslinu okkar. Svo höfum við fengið gesti frá Pieta- samtökunum, Rauða krossinum, Kvennaathvarfinu, Hugarafli og Nýrri dögun og það hefur verið mjög gefandi. Svo heldur svona sýning alltaf áfram að þróast. Þó hún sé frumsýnd á föstudaginn [í dag, innsk.blm.] heldur hún áfram að þroskast.“ –Það er kannski meira svigrúm í svona verki fyrir þróun og breyt- ingar en í verki með mörgum leik- urum? „Já … að minnsta kosti er það mín reynsla – og ég er búinn að leika í nokkrum tveggja manna verkum – að eftir því sem leikend- urnir eru færri, þeim mun hraðar þroskast sýningin, aðlagast og blómstrar,“ svarar Ólafur. „Þegar leikendur eru margir eru þeir kannski á leiðinni í nokkrar áttir samtímis og það tekur meiri tíma að stilla saman strengi.“ Sláandi tölur Sem fyrr segir er umfjöllunar- efni leikritsins grafalvarlegt, þung- lyndi og sjálfsvíg. „Við erum að gera þetta verk og vekja athygli á þessu málefni á sama tíma og mik- il vakning er um það. Á mánudag- inn var alþjóðadagur forvarna gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og það var verið að blása til sérstaks átaks. Tölurnar eru sláandi, 40-50 manns svipta sig lífi á Íslandi á ári og ef banaslys í umferðinni myndu ná þessari tölu færum við í þjóðar- átak, sem ég vona reyndar að sé að hefjast með þessari áætlun gegn sjálfsvígum sem á að hrinda í framkvæmd og var að fá peninga. Ég held að heilbrigðisráðherra sé á boðslistanum fyrir sýninguna, ef ekki þá er henni hér með boðið,“ segir Ólafur. „Ótrúlegur fjöldi ungmenna hef- ur íhugað að skaða sig eða er á erfiðum stað þannig að við erum þakklátir fyrir alla þá athygli sem við getum vakið á þessu þjóðþrifa- máli – og vonandi tekst okkur að gera gott leikhús í leiðinni, leikhús sem snertir og upplyftir.“ Trúir því að allt hafi áhrif En heldur hann að svona verk geti haft mikil áhrif í þessari bar- áttu? „Ja, hefur ekki allt áhrif? Hver einasti dropi telur og við höf- um fengið mjög sterk viðbrögð. Pieta-samtökin eru samtök gegn skjálfsskaða og fræðslusamtök, þau eru með hjálparsíma 5522218 og við fengum t.d. mjög sterk og góð viðbrögð frá þeim, og reyndar öllum, Rauða kross fólkinu líka sem býður líka upp á hjálp í síma 1717. Þannig að já, fjandinn hafi það, ég ætla bara að trúa því að allt hafi áhrif. Við erum öll tengd.“ „Við erum öll tengd“  Gleðileikur um þunglyndi og sjálfs- víg frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld  Gestir fara með stór hlutverk Ljósmynd/Grímur Bjarnason Gleði Valur Freyr í Allt sem er frábært að viðstöddum gestum sem taka greinilega vel í spaugið. Morgunblaðið/Hari Gefandi „[V]erkið leynir á sér og það hefur verið mjög gefandi og gott að vinna með Vali, hann er frábær og næmur listamaður,“ segir Ólafur Egill.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.