Morgunblaðið - 14.09.2018, Side 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
Guðbjörg Lind Jónsdóttir hefur
opnað sýningu í Gallerí Göngum í
Háteigskirkju. Um myndirnar segir
Guðbjörg Lind: „Landslagsverk
mín eru sprottin úr umhverfi æsku
minnar vestur á fjörðum og fela í
sér tilraun til að skapa veröld á
mörkum hugar og náttúru. Þannig
eru þau framlenging á mínum eigin
hugarheimi. […] Í verkum mínum
segir af ferðalagi á vit veraldar þar
sem skynja má hið upphafna í sjálf-
um einfaldleikanum.“ Sýningin
stendur fram í október og er opin
virka daga kl. 9-16 og á messutíma.
Hið upphafna í
einfaldleikanum
Náttúra Guðbjörg Lind Jónsdóttir.
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það verður mjög spennandi að
flytja í fyrsta sinn á Íslandi róm-
antískan Píanókvinttet í a-moll op.
84, sem saminn var árið 1918 af
Edward Elgar,“ segir Guðný Guð-
mundsdóttir, fiðluleikari og konsert-
meistari, sem verður í forsvari fyrir
fyrstu tónleikum Kammermúsík-
klúbbsins í vetur af samtals sex.
Tónleikarnir eru haldnir í Norður-
ljósum Hörpu á sunnudag kl. 16.
Samkvæmt upplýsingum frá
klúbbnum er þeir haldnir til heiðurs
Guðnýju í tilefni 70 ára afmælis
hennar fyrr á þessu ári.
Guðný sem leikur sjálf á tónleik-
unum fékk til liðs við sig Anton Mill-
er á fiðlu, Rita Porfiris á víólu, Bryn-
dísi Höllu Gylfadóttur á selló og
Bjarna Frímann Bjarnason á píanó.
„Ég kenndi Bjarna á fiðlu í mörg
ár og útskrifaði hann sem víóluleik-
ara. Bjarni er fjölhæfur og frábær
tónlistarmaður sem spilar nú á pí-
anó,“ segir Guðný.
„Mér var bæði ljúft og skylt og
heiður að spila á píanó í einu þeirra
verka sem flutt verða á kammer-
tónleikum til heiðurs Guðnýju,“ seg-
ir Bjarni Frímann Bjarnason, tón-
listarstjóri Íslensku óperunnar og
aðstoðarhljómsveitarstjóri Sinnfó-
níuhljómsveitar Íslands, sem hefur
spilað á kammertónleikum hérlendis
og erlendis um árabil en spilar nú í
fyrsta sinn með Kammer-
músíkklúbbnum.
„Guðný á langan og farsælan feril
sem kennari og tónlistarmaður. Hún
var fiðlukennarinn minn í sjö ár,“
segir Bjarni og bætir við að Guðný
sé búin að spila lengi með vinum sín-
um, hjónunum Porfiris og Miller, og
Bryndís Halla standi alltaf fyrir
sínu.
„Þau eru lengra komin en ég í
kammertónlistinni en ég vona að ég
nái þeim einhvern tíma,“ segir
Bjarni.
Lést 26 ára í fangabúðum
„Það verða tveir, þrír og fimm á
efnisskránni á sunnudaginn,“ segir
Guðný hlæjandi og bætir við alvar-
legri að fyrsta verk tónleikanna sé
dúó fyrir fiðlu og víólu eftir László
Weiner, ungverskt tónskáld, píanó-
leikara og hljómsveitarstjóra sem
myrtur var í fangabúðum nasista 26
ára að aldri.
„Það liggja eftir hann sjö verk.
Weiner þótti efnilegur og það var
mikið reynt til að fá hann lausan.
Það gekk ekki og hann eins og svo
margir aðrir lét lífið í fangabúðum.
Annað verkið á efnisskránni er Se-
renaða fyrir fiðlu og víólu eftir Zolt-
án Kodály í flutningi mínum, Miller
og Porfiris. Kodály var lærimeistari
Weiner,“ segir Guðný.
Í efnisskrá tónleikanna kemur
fram að Kodály var ungverskt tón-
skáld, þjóðlagasafnari, heimspek-
ingur og fræðari sem samdi tónlist
sem var blanda af þjóðlögum og
vestrænni æðri tónlist. Kodály var
höfundur Kodály-aðferðarinnar sem
notuð hefur verið í tónlistarkennslu
barna og ungmenna. Í þriðja verki á
tónleikum Kammermúsíkklúbbsins
á sunnudaginn taka allir tónlistar-
mennirnir þátt í Píanókvintett í
a-moll op. 84. Höfundur hins alda-
gamla verks er sjálfmenntað enskt
tónskáld, Edward Elgar, sem var
alþýðumaður og átti erfitt upp-
dráttar hjá tónlistarelítunni á Bret-
landi. Elgar tók þrátt fyrir það sæti
efst á vinsældalista enskra tón-
skálda árið 1900.
Kammermúsíkklúbburinn fagnar
61 árs afmæli í vetur og er markmið
þeirra sem að klúbbnum standa að
veita fremstu hjóðfæraleikurum Ís-
lands vettvang til þess að flytja það
besta og áhugaverðasta úr heimi
kammertónlistar. Klúbburinn er
rekinn af félagsgjöldum og fá fé-
lagsmenn áskrift að tónleikum en
tónleikarnir eru öllum opnir. Tón-
leikar Kammermúsíkklúbbsins eru
haldnir í Norðurljósasal Hörpu á
völdum sunnudögum frá 16. sept-
ember 2018 til 24. febrúar 2019.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fjör Bryndís Halla Gylfadóttir, Rita Porfiris, Guðný Guðmundsdóttir, Anton Miller og Bjarni Frímann Bjarnason.
Ljúft og skylt að spila
til heiðurs Guðnýju
Fyrstu tónleikar Kammermúsíkklúbbsins í vetur
Elsta upptakan
sem vitað er um
með David Bo-
wie var seld á
uppboði í vikunni
fyrir 39.960
sterlingspund,
jafnvirði tæpra
sex milljóna
króna. Bowie var
16 ára þegar
upptakan var
gerð og í hljómsveitinni Konrads.
Uppboðið fór fram í Omega Auc-
tions á Englandi og var hart barist
um gripinn. Á endanum seldist
prufuupptakan fyrir fjórfalda þá
upphæð sem búist var við.
Upptaka þessi fannst fyrr á árinu
á háalofti í brauðkörfu, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu.
Lagið var tekið upp í hljóðveri árið
1963 og heitir „I Never Dreamed“.
Bowie bar þá sitt rétta nafn, David
Jones.
Fyrsta upp-
takan seld
David
Bowie
ÖLL FLOTTUSTU MERKIN
úr Ellingsen, Air og fleiri verslunum.
... og fullt af öðrum merkjum
MERKJAVÖRUMARKAÐUR!
KOMDU OG KLÁRAÐU KAUPIN
FYRIR HAUSTIÐ!
VERÐ FRÁ 1.000KR.
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is