Morgunblaðið - 14.09.2018, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2018
» Grínistinn, leikarinnog söngvarinn Þór-
hallur Sigurðsson,
Laddi, kom fram í tón-
leikaröðinni Af fingrum
fram í Salnum í gær-
kvöldi og lék við hvurn
sinn fingur. Eins og við
mátti búast voru per-
sónurnar margar sem
birtust á sviðinu enda
voru tónleikarnir aug-
lýstir svo: „Tíu gestir á
tíu tónleikum í tilefni tíu
ára afmælis Af fingrum
fram með Jóni Ólafs og
gestum í Salnum“. Var
sjónum beint að hæfi-
leikum Ladda á sviði
laga- og textasmíða.
Laddi var gestur Jóns Ólafssonar í Af fingrum fram
Hressir Vel fór á með þeim Jóni Ólafssyni og Ladda í Salnum í gærkvöldi.
Óborganlegur Laddi söng m.a. Blómaskeið, fyrsta lagið sem hann samdi.
Morgunblaðið/Eggert
Rússneskir kvikmyndadagar eru
hafnir í Bíó Paradís og standa fram á
sunnudag. Hátíðin er nú haldin í
sjötta sinn en í ár er viðburðurinn
tileinkaður 75 ára afmæli stjórn-
málasambands Rússlands og Ís-
lands sem fagnað er á árinu.
Það er sendiráð rússneska sam-
bandsríkisins á Íslandi sem stendur
fyrir hátíðinni í samstarfi við Pro-
duction Centre NORFEST og
Northern Traveling Film Festival,
með fjárstuðningi frá menningar-
málaráðuneyti Rússlands.
Fjölbreyttar verðlaunamyndir
Dagskrá kvikmyndadaganna sam-
anstendur af fjölbreyttum verð-
launamyndum sem sýndar verða á
frummálinu, rússnesku, og með
enskum texta.
Allar myndirnar eru sýndar í Bíó
Paradís kl. 18 og er aðgangur að
sýningum ókeypis.
Á föstudag verður grínmyndin
Khoroshiy Maĺchik (á ensku Good
Boy) á dagskrá. Myndin er frá árinu
2016 og segir frá Kolya, strák í ní-
unda bekk, sem lendir í furðulegum
ástarþríhyrningi þegar hann verður
ástfanginn af ungri kennslukonu í
menntaskólanum en á sama tíma
fellur fallegasta stelpan í tíunda
bekk fyrir honum.
Leikstjóri myndarinnar er Oks-
ana Karas og með aðalhlutverk fara
Semyon Treskunov, Ieva Andrej-
evaite, Anastasiya Bogatyreva og
Vasiliy Butkevich.
Á laugardag verður sýnd kvik-
mynd sem á ensku nefnist The Bott-
omless Bag, Mešok Bez DNA á
frummálinu. Myndin er frá árinu
2017 og gerist í valdatíð rússneska
keisarans Alexanders II.
Kona segir keisaranum frá meta-
fýsískri ævintýrasögu sem gerist í
fortíðinni og snýst um dularfullt
morð á syni keisarans í skóginum.
Persónurnar í dæmisögunni, sem
eru vitni að hinum óhugnanlega
glæp, hafa allar mismunandi frá-
sagnir af atburðunum sem varpa
ljósi á það sem gerðist í raun og
veru.
Leikstjóri og handritshöfundur
myndarinnar er Rustam Khamda-
mov en með aðalhlutverk fara Svetl-
ana Nemolyaeva, Anna Mikhalkova,
Sergey Koltakov og Elena Moro-
zova.
Walt Disney á rússnesku
Lokasýning rússnesku kvik-
myndadaganna er mynd sem á
ensku nefnist The Last Warrior
(Posledniy Bogatyr) og er frá árinu
2017. Myndin segir frá Ivan sem
flyst fyrir tilviljun frá Mosku nú-
tímans til ævintýralandsins Belogo-
rie sem er í annarri vídd og þar búa
persónur úr rússneskum ævintýr-
um. Galdrar eru eðlilegur hluti af
hversdagsleikanum og deilur leystar
í bardögum með galdrasverðum. Iv-
an lendir í miðri baráttu milli góðra
og illra afla og flestir trúa því að
hann sé áhrifavaldur í því að binda
enda á stríðið.
Myndin var framleidd af Walt
Disney og leikstjóri hennar er
Dmitriy Dyachenko. Með aðalhlut-
verk fara Viktor Khorinyak, Mila Si-
vatskaya, Ekaterina Vilkova og
Konstantin Lavronenko.
Ástarþríhyrningur,
keisari og galdrar
Ævintýraland Í Belogorie takast á
góð og ill öfl og Ivan lendir á milli.
The Predator
Ungur, einhverfur drengur með
einstaka hæfileika á tungumála-
sviðinu opnar fyrir slysni leið fyrir
hinar grimmu og blóðþyrstu geim-
verur sem þekktar eru sem „rán-
dýrin“. Geimverurnar snúa aftur til
jarðar og hefst þá blóðug barátta
upp á líf eða dauða með miklu
mannfalli enda hafa rándýrin það
markmið að útrýma mannkyninu.
Með helstu hlutverk fara Boyd
Holbrook, Jacob Tremblay, Olivia
Munn og Thomas Jane.
Metacritic: 50/100
Sorry to Bother You
„Ein frumlegasta mynd ársins og
sprenghlægileg ádeila sem sló í
gegn á Sundance,“ segir um kvik-
myndina á vef Bíós Paradísar.
Cassius Green uppgötvar leynda
hæfileika sína, að hljóma einsog
hvítur sölumaður í síma, og virðist
allt ætla að ganga honum í haginn í
framhaldinu. „Vinnufélagar hans
og kærasta horfa á hann sökkva
dýpra og dýpra í hræðilegt net
stórfyrirtækja og spilltra ríkis-
stjórna meðan þau reyna að berjast
á móti ofurefli fyrirtækjanna. Cass-
ius er boðið gull og grænir skógar
af kókaínsjúkum forstjóra – en mun
hann standast freistinguna?“ segir
ennfremur á vefnum.
Leikstjóri kvikmyndarinnar er
Boots Riley og með aðalhlutverk
fara Lakeith Stanfield, Tessa
Thompson, Jermaine Fowler, Om-
ari Hardwick og Terry Crews.
Metacritic: 81/100
Bíófrumsýningar
Stórhættuleg Rándýrin svokölluðu
eru engin lömb að leika sér við, eins
og sjá má af þessari stillu úr
spennumyndinni The Predator.
Rándýr úr geimnum
og símasölumaður
Ármúla 24 - s. 585 2800
ÚRVAL ÚTILJÓSA
ICQC 2018-20