Morgunblaðið - 14.09.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 14.09.2018, Qupperneq 36
WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verðmiðast viðWOWbasic aðra leiðmeð sköttum ef greitt ermeðNetgíró. Tilboðið á aðeins við ef bókað er flug fram og til baka. SÓL ALLT ÁRIÐ GRAN CANARIA FRÁ 12.999kr.* Tímabil: des.–apríl WOW air býður upp á beint flug til Gran Canaria. Þar er alltaf sumar og því er eyjan fullkominn áfangastaður fyrir þá sem vilja sóla sig, borða á fyrsta flokks veitingastöðum og hafa það notalegt. Pantaðu þína sólarferð strax í dag og láttu þér hlakka til. „L’Islande est très peu connue“: Stórveldin sækja Ísland heim. Sam- skipti Frakka og Breta við Ísland á 18. öld nefnist fyrirlestur sem Anna Agnarsdóttir prófessor flytur í Nor- ræna húsinu í dag kl. 17 á fæðing- ardegi Sigurðar Nordals. Í skjala- kistum Parísar leynast gögn um ráðagerðir Frakka um að Danir láti Ísland í té í skiptum fyrir Louisiana. Fjallar um frönsk- íslensk samskipti FÖSTUDAGUR 14. SEPTEMBER 257. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Keppni í Olísdeild kvenna í hand- knattleik hefst á morgun með tveimur leikjum og í dag birtir Morgunblaðið fyrri hlutann af um- fjöllun sinni um liðin átta sem leika í deildinni í vetur. Fjallað er um Stjörnuna, Selfoss, KA/Þór og HK sem er spáð að verði í baráttunni í neðri hluta deildarinnar á komandi keppnistímabili. 2-3 Verða þessi fjögur í neðri hlutanum? ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Karl Olgeirsson fagnar nýrri nótna- bók með útgáfutónleikum í Hann- esarholti í kvöld kl. 21. Bókin nefn- ist Mitt bláa hjarta og inniheldur 14 nýja djasssöngva. Höfundurinn flytur lögin á flygil hússins og seg- ir frá tilurð þeirra. Að sögn skipu- leggjenda eru bæði lög og umfjöll- unarefni fjölbreytt, allt frá ást og söknuði til gleði og veðurs. Við sögu koma nátthrafnar, háska- kvendi og draumóramenn. Hljómplata með lögunum er væntanleg í lok október í flutningi ýmissa lista- manna. Höfundurinn kynnir 14 nýja djasssöngva Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sópransöngkonan Sigrún Hjálm- týsdóttir, öðru nafni Diddú, verður sérstakur gestur á Hagaskólaballi, sem verður haldið í tilefni af 60 ára afmæli skólans í Súlnasal Hótels Sögu (Radisson Blu Saga Hotel) annað kvöld, og syngur lög með nokkrum meðlimum úr hljómsveit- inni Alto. „Það er eins og ég hafi ekki gert annað í fimmtíu ár,“ segir Diddú um rennslið með hljóðfæraleik- urum í vikunni, bræðrunum Atla, Ara og Jóni Pétri Jónssonum og Pétri Hjaltested. „Þeir eru líka svo flottir spilarar og það er rosalega gaman að taka lagið með þeim.“ Skemmtunin er hugsuð fyrir fyrrverandi nemendur skólans, maka þeirra og vini. Hún hefst með skoðunarferð um Hagaskóla klukkan eitt, samverustund verður á hótelinu kl. fimm til sjö og þá hefst kvöldverður fyrir þá sem það vilja. Skólahljómsveitin Sweet Dreams byrjar að spila klukkan 21, Diddú og félagar í Alto byrja klukkan 22 og Bítilbræður halda uppi fjörinu frá klukkan 23. Diddú segist ekki hafa þurft að hugsa sig lengi um þegar kallið kom. „Ó, nei, ó nei,“ segir hún og hlær eins og henni einni er lagið. „Ég er alltaf til í glensið. Það er bara svoleiðis.“ Hún leggur áherslu á að það sé svo gaman að syngja og annað víki gjarnan fyrir söngnum. „Af því að ég get þetta ennþá er engin ástæða til þess að þegja,“ heldur hún áfram og skell- ir upp úr. Uppgötvuð í Hagaskólanum Diddú var uppgötvuð sem söng- kona á fyrsta ári sínu í Hagaskóla, fyrir tæplega 50 árum. „Ég man vel þegar ég var afhjúpuð sem söngkona á sviðinu í Hagaskóla,“ segir hún og bætir við að hún hafi fengið mikla hvatningu frá skóla- stjórnendum. „Þeir lögðu mikla áherslu á að þeir sem höfðu hæfi- leika á þessu sviði fengju tækifæri á skemmtunum skólans. Haldnar voru sérstakar söngskemmtanir þar sem einstaklingar, sem vildu láta reyna á sönghæfileikana, tróðu upp. Margir voru uppgötv- aðir á þennan hátt og við fengum að æfa í skólanum á kvöldin eins og við vildum, fengum bara lykil.“ Söngkonan segist lengi hafa spyrnt á móti en hafi látið undan skólasystkinunum. „„Blessuð, próf- aðu,“ var reglulega sagt við mig. „Þetta verður allt í lagi.“ Söng- urinn reyndist afskaplega skemmtilegur og gefandi og hefur verið það alla tíð síðan.“ Frá því Diddú byrjaði að troða upp hefur hún reglulega sungið popplög með hljómsveitum. „Til dæmis söng ég með Brunaliðinu fyrir um 3 árum og eftir hlé á 60 ára afmælistónleikunum mínum söng ég eingöngu popp. Svo hef ég oftsinnis sungið með Óskari og Álftagerðisbræðrum, sem og á jólatónleikum hjá Bó og Friðriki Ómars. Þá er nú heldur betur „poppað“ flott.“ Morgunblaðið/Eggert Hagaskólaball Sigrún Hjálmtýsdóttir, öðru nafni Diddú, bíður spennt eftir því að syngja í Súlnasalnum á morgun. Alltaf til í glensið og ekki ástæða til að þegja  Diddú syngur á Hagaskólaballi eftir tæplega 50 ára hlé

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.