Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.9. 2018 Borgin í viðræður við Vega- gerðina um veg að Þverárkoti Eftir að hafa farið yfir máliðhér á umhverfis- og skipu-lagssviði hefur verið tekin ákvörðun um að taka upp viðræður við Vegagerðina um hvernig hægt sé að standa sameiginlega að þess- ari framkvæmd. Málið verður svo tekið upp í tengslum við fjárhags- áætlunarvinnu fyrir næsta ár,“ segir Ámundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá umhverfis- og skipu- lagssviði Reykjavíkur, um gerð vegar við bæinn Þverárkot. Fjallað var um aðstæður Sveins Sigurjónssonar, eiganda og eina íbúans í Þverárkoti, í Sunnudags- blaðinu í júlí síðastliðnum. Þá lýstu Sveinn og Kolbrún Anna, dóttir hans, þeim aðstæðum sem Sveinn býr við í Þverárkoti en engin brú eða vegur liggur yfir ána Þverá en yfir hana þarf að fara til að komast að bænum. Ekki er því fært að bænum, sem þó tilheyrir Reykja- vík, nema á stórum jeppum. Á vet- urna er ekki rutt að árvaðinu og ekki hægt að komast á bíl yfir ána sem oft er í klakaböndum. Sveinn, sem er að verða áttræður, hefur því í nokkrar vikur á hverjum vetri þurft að vaða yfir ána. Telja verð- ur líklegt að hann sé eini borg- arbúinn sem þarf að fara yfir óbrúaða á til að komast að heimili sínu. Einstakar aðstæður og engin fordæmi Nú gæti hins vegar horft til betri vegar en borgin hefur ákveðið að taka upp samtal við Vegagerðina um að koma að vegagerð við bæ- inn. Viðræður borgarinnar og Vegagerðarinnar um málið munu hefjast nú á haustmánuðum og miðað er við að ná samkomulagi um skiptingu kostnaðar áður en vinnu við fjárhagsáætlun borg- arinnar lýkur, sem er jafnan í des- ember. „Við ætlum allavega að taka samtalið og sjá hvernig það geng- ur. Þetta eru afar óvenjulegar og í raun einstakar aðstæður sem þarna eru uppi, að íbúi í Reykjavík þurfi að fara yfir óbrúaða á til að komast heim til sín. Það er í ljósi þessara sérstöku aðstæðna sem við tökum málið upp. Það á sér engin fordæmi og því er ólíklegt að niðurstaðan verði fordæmisgefandi fyrir aðrar fram- kvæmdir,“ segir Ámundi. Líkt og fram kom í umfjöllun blaðsins í sumar hefur Vegagerðin þegar unnið framkvæmdaáætlun fyrir verkið. Setja þurfi ræsi í ána og leggja veg yfir en áætlað er að það kosti á bilinu 12-14 milljónir. Þar sem um er að ræða veg að lögbýli þarf eigandi að greiða helming þeirrar fjárhæðar úr eigin vasa en Vegagerðinni ber að greiða helming. En vegna hinna sérstöku aðstæðna hyggst borgin nú ræða við Vegagerðina um að- komu að framkvæmdinni. Jónas Snæbjörnsson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Vega- gerðarinnar, segir það auðsótt mál að ganga til samtals við borgina um þátttöku í þeim hluta sem snýr að eiganda jarðarinnar. „Við tökum vel í það ef Reykjavíkurborg vill koma að því að greiða þann hluta kostnaðar sem félli annars á eig- anda. Nú bara ræðum við saman og vonandi næst samkomulag um þetta og við getum þá gert sameig- inlega áætlun um verkið.“ Sveinn Sigurjónsson er líklega eini Reyk- víkingurinn sem þarf að fara yfir óbrúaða á til að komast heim til sín. Ekki er rutt að árvaðinu þannig að oft þarf hann að vaða yfir ána í nokkrar vikur á vetri. Morgunblaðið/RAX Tekin hefur verið ákvörðun um það hjá umhverfis- og skipulagssviði borgarinnar að hefja viðræður við Vegagerðina um gerð vegar við bæinn Þverárkot við Esjurætur í póstnúmeri 116 Reykjavík, en eigandi jarðarinnar hefur árum saman þurft að fara yfir óbrúaða á til að komast heim og að heiman. Óvenjulegar aðstæður kalli á að borgin komi að málinu. Sveinn Sigurjónsson múrarameistari og Kolbrún Anna Sveinsdóttir. Morgunblaðið/RAX Þetta eru afar óvenjulegar og í raun einstakar aðstæður sem þarna eru uppi, að íbúi í Reykjavík þurfi að fara yfir óbrúaða á til að kom- ast heim til sín. Það er í ljósi þessara sérstöku aðstæðna sem við tökum málið upp. Ámundi V. Brynjólfsson, skrifstofustjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur. INNLENT EYRÚN MAGNÚSDÓTTIR EYRUN@MBL.IS SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 16:00 í Hörpu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.