Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2018 www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N A LLTAF OP IN Ve rð og vö ru up pl ýs in ga r ía ug lý si ng un ni er u bi rt ar m eð fy ri rv ar a um pr en tv ill ur .Y fir st ri ka ð ve rð sý ni r fu llt ve rð vö ru .G ild ir til 30 .s ep t. 20 18 eð a á m eð an bi rg ði r en da st . Ævintýralegt haust í Höllinni SPENNANDI SEPTEMBER SICILIA 2ja og 3ja sæta sófar, sófaskemlar og stólar. Grænt eða ljósgrátt áklæði og brúnt og koníaksbrúnt bonded leður. 2ja sæta: 158 x 94 x 82 cm, 3ja sæta: 196 x 94 x 82 cm 2ja sæta áklæði 69.990 kr. 79.990 kr. 3ja sæta áklæði 79.990 kr. 89.990 kr. 2ja sæta bond. leður 109.990 kr. 129.990 kr. 3ja sæta bond. leður 129.990 kr. 149.990 kr. Stóll áklæði 49.990 kr. 59.990 kr. Stóll bond. leður 79.990 kr. 89.990 kr. PASCALL Hægindastóll með klassísku útliti. Slitster- kt áklæði, 5 litir; rauður, grár, ljósblár, bleikur og mintugrænn. 39.990 kr. 49.990 kr. Ný íslensk sjónvarpsþáttaröð í sex hlutum, Víti í Vestmannaeyjum – sagan öll, hefur göngu sína um helgina og er fyrsti þáttur sýndur laugardagskvöldið 15. september. Þættirnir byggjast á metsölubók Gunnars Helgasonar, sem einnig hef- ur verið gerð kvikmynd eftir og var hún frumsýnd nú í ár. Það sem af er ári er hún mest sótta íslenska bíó- myndin. Bæði myndin og þættirnir eru samstarfsverkefni Sagafilm og RÚV, Gunnar Helgason og Jóhann Ævar Grímsson skrifa handrit og Bragi Hinriksson er leikstjóri. Í fyrsta þætti fer Jón til Vestmannaeyja með liðsfélögum sínum úr Fálkum til að keppa á stærsta fótboltamóti ársins, og einnig Rósa sem þarf að berjast fyrir tilverurétti sínum hjá Fylki, sem vantar einn leikmann. Með aðal- hlutverk fara þau Lúkas Emil Joh- ansen, Ísey Heiðarsdóttir, Viktor Benóný Benediktsson, Jóhann G. Jó- hannsson og Sigurður Sigurjónsson. Þættirnir verða alls sex. Víti í Vestmannaeyjum hefur slegið í gegn sem bók og kvikmynd og búist er við að þættirnir feti sömu braut. Víti í sjónvarp um helgina Ísey Heiðarsdóttir og Lúkas Emil Johansen í hlutverkum sínum. Margir hafa beðið spenntir eftir sjón- varpsþáttum byggðum á Víti í Vestmanna- eyjum. Þann 15. september 1998 heim- sótti þýskur flugeldasérfræð- ingur, Hans-Otto Köhler, Ísland en tilgangur ferðarinnar var að kenna meðlimum íslenskra björgunarsveita undirbúning og framkvæmd flugeldasýninga. Þótti það einkum merkilegt fyr- ir þær sakir að Höhler stjórnaði flugeldasýningunni í brúðkaupi Grace Kelly og Rainers fursta í Mónakó og hafði síðan þá sér- hæft sig í faginu. Björgunar- sveitarmenn lærðu að senda flugelda af stað með rafboði. Námskeiðið endaði svo á flug- eldasýningu fyrir almenning á Geirsnefi en það kvöld var með- al annars notuð stærsta tívolí- bomba sem sprengd hafði verið á Íslandi fram að því. Í viðtali við Morgunblaðið út- skýrði Köhler hvað skipti máli við uppsetningu og öryggisatriði flugeldasýninga, en sjálfur lærði hann fagið í þrjú ár og var einn helsti sérfræðingur Þýskalands á þessu sviði. Viðskiptavinir hans á þessum tíma voru meðal annars soldánar og prinsar í Mið-Aust- urlöndum sem kunnu vel að meta flugelda. GAMLA FRÉTTIN Lærðu á flugelda Björgunarsveitarmenn öðluðust nýja þekkingu á flugeldum árið 1998. Morgunblaðið/Hari ÞRÍFARAR VIKUNNAR Guðrún Tinna Ólafsdóttir rekstrarstjóri Laura Prepon leikkona Saga Garðarsdóttir leikkona

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.