Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.9. 2018
MATUR
„Matur er svo stór hluti af lífinu.
Mér finnst svo mikilvægt að halda í
þessar matarhefðir,“ segir Ólöf.
Það kemur ekki á óvart að krydd séu ístjörnuhlutverki í matarboði hjá hjón-unum Ólöfu Einarsdóttur og Omry Avr-
aham en þau eiga og reka Kryddhúsið (sem áð-
ur hét Krydd & Tehúsið). Ástæðan fyrir því að
þau fóru út í reksturinn var að þau langaði að
gera eitthvað saman og úr varð að flytja inn
krydd. „Mér fannst vanta upp á kryddmenn-
ingu Íslendinga,“ segir Omry en hann er fædd-
ur inn í kryddkúltur Mið-Austurlanda. Móðir
hans er fædd í Marokkó, föðurætt hans er frá
Írak en sjálfur er hann fæddur og uppalinn í
Ísrael. „Krydd er matur og matur er krydd.
Það sem gerir mat góðan er gott krydd,“ segir
Omry.
„Okkur finnst mjög gaman að elda og borða
góðan mat og við erum mjög samtaka í eldhús-
inu. Omry sér um aðalréttinn og ég um með-
lætið og eftirréttina og yfirleitt uppvaskið,“
segir Ólöf.
„Í kvöld elduðum við dæmigerðan shabbat-
kvöldverð sem að öllu jöfnu er vel útilátið hlað-
borð með minnst þremur salötum ásamt græn-
meti og kjöti og eða fiskrétti og grjónum eða
öðru kolvetni og svo endum við alltaf á eftir-
rétti. Við ákváðum að elda lamb þar sem það er
auðvitað mjög íslenskt og ljúffengt. Við erum
með það á kúskúsbeði og með meðlæti eins og
salöt og ofnbakað kryddað rótargrænmeti og
kalda lauksósu,“ segir Omry.
„Við ákváðum að sleppa rjómasósunni í þetta
sinn, með lambinu, þrátt fyrir að Omry sé snill-
ingur í sósugerð en í Mið-Austurlöndum er
ekki týpískt að vera með rjómalagaða sósu með
kjöti,“ segir Ólöf sem finnst mikilvægt ef boðið
er upp á vín að það henti matnum. „Við buðum
upp á ástralska rauðvínið Banrock Station Shi-
raz en það hentar einkar vel með lambi, er eilít-
ið kryddað, ósætt og ferskt með meðal-
fyllingu.“
Ólöfu finnst þetta vera gæðastundir að hitta
stórfjölskylduna yfir kvöldmat.
„Við borðum mikið með foreldrum mínum og
systur, yfirleitt nokkrum sinnum í viku, þar
sem við skiptumst á að elda en yfirleitt á föstu-
dögum eða um helgar bjóðum við í kvöldverð
en það er eitthvað sem ég kynntist í gegnum
Omry. Í hans kúltúr snýst allt um mat. Allar
hátíðir hafa einhvern ákveðinn mat sem er til-
heyrandi og á föstudagskvöldum eða á shabbat
borðar stórfjölskyldan saman. Við höfum reynt
að halda þeim sið hér heima. Bjóðum gjarnan
fólki úr fjölskyldunni og þeir koma sem komast
hverju sinni. Matarboð eru svo félagsleg, þetta
eru oft einu stundirnar sem maður hittir systk-
ini, maka og börn og alltaf jafn gaman að því.
Matur er svo mikilvægur hluti af lífinu. Mér
finnst svo mikilvægt að halda í þessar matar-
hefðir.“
Það sem kemur fólki oft á óvart þegar það
fer að elda mat með ýmsum kryddum er hversu
mikið magn er notað. „Það er af því að þetta
eru hrein krydd. Það er ekki salt í þessu og
þess vegna má maður alveg krydda, maður á
ekki að vera hræddur við það. Um leið og það
er salt í blöndum þá geturðu ekki kryddað mik-
ið því þá verður maturinn of saltur. Okkar
krydd eru mikið án salts, flestar blöndurnar
eru þannig. Ég kem úr náttúrulækningageir-
anum og fyrir mér er krydd ekki bara gott
bragð heldur líka næring og fegurð,“ segir hún.
Það sem byrjaði hjá þeim sem lítil krydd-
verslun fyrir rétt tæpum þremur árum hefur
nú vaxið og dafnað. „Kryddhúsið var til húsa í
Þverholti en í vor fluttum við það í Hafnarfjörð
þar sem húsnæðið var orðið of lítið. Við vildum
auka aðgengi fólks að kryddinu,“ segir hún en
nú má nálgast kryddið í völdum stórmörk-
uðum. Nánari upplýsingar eru á kryddogtehus-
id.is.
Morgunblaðið/Hari
„Matarboð eru svo félagsleg“
Hjónin Omry Avraham og Ólöf Einarsdóttir eru sammála um að það sem geri góðan mat góðan sé gott krydd. Þeim
finnst gaman að elda og eru samtaka í eldhúsinu. Stórfjölskyldan borðar yfirleitt saman um helgar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Ólöf og Omry eiga soninn Jónathan Loga, 6 ára. Fyrir á Ólöf Amit Önnu og fjögurra mánaða dótt-
urdótturina Köru Margréti. Þær voru staddar erlendis og gátu því ekki verið með í matarboðinu.
Kúskús passar
vel með lambinu.