Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.09.2018, Blaðsíða 10
VETTVANGUR
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.9. 2018
Þær eru margar mótsagnirnar ílífinu og þar af er ófáar aðfinna í alþjóðasamskiptum. Ís-
lendingar eru hins vegar nokkuð
sjálfum sér samkvæmir þrátt fyrir
allar slíkar mótsagnir. Þeir fylgja
einfaldlega NATÓ-línunni og í seinni
tíð línu Evrópusambandsins sem er
yfirleitt hin sama.
Þannig birtist frásögn í Morgun-
blaðinu í vikunni um „breiða sam-
stöðu“ á Alþingi um þvingunar-
aðgerðir gegn Rússum, að þessu
sinni vegna innlimunar Krímskag-
ans. Almenna viðhorfið var að Íslend-
ingum bæri að standa með „vina-
þjóðum“.
Í apríl síðastliðnum lýsti NATÓ og
þar með Ísland yfir samstöðu með
herjum Bandaríkjanna, Frakklands
og Bretlands þegar þeir gerðu árás á
Sýrland til að refsa þarlendum
stjórnvöldum fyrir eiturefnaárás á
eigin þegna. Í fjölmiðlum var slegið
upp í mynd og máli afleiðingum „eit-
urefnaárásar Sýrlandsstjórnar“.
Áður höfðum við lesið um „eitur-
efnaárásina í enska bænum Salis-
bury“, árás sem væri fordæmlaus „í
álfunni frá lokum síðari heimsstyrj-
aldar“ og „ógnun við öryggi og frið í
Evrópu“, svo vitnað sé í yfirlýsingu
Stjórnarráðs Íslands eftir að rúss-
neskur gagnnjósnari, nú á snærum
Breta, og dóttir hans höfðu verið lögð
inn á sjúkrahús í kjölfar þessarar
heimssögulegu árásar.
Sem betur
fer náðu þau
feðgin sér
fljótt. Sannað
þótti að eitur-
efnum hefði
verið beint að
þeim og þau
hugsanlega
komist í lífshættu. Hins vegar hafa
rannsóknir ekki enn leitt í ljós hver
hafi verið valdur að ódæðinu þrátt
fyrir afdráttarlausar staðhæfingar
breskra stjórnvalda þar að lútandi
áður en nokkur rannsókn hafði farið
fram! Fyrir íslenska ráðherra skipti
rannsókn málsins reyndar ekki máli.
Til að þóknast breskum stjórnvöld-
um og sanna hve góðir vinir þeir
væru afpöntuðu þeir fyrirhugaðar
ferðir sínar til Rússlands til að fylgj-
ast með íslenska landsliðinu í knatt-
spyrnu á HM. Samstaðan með þeim
Trump, May og Macron er ekki alltaf
tekin út með sældinni!
Og nú erum við komin í mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna. Og
utanríkisráðherrann segir Íslendinga
„óhrædda að gagnrýna“ mannrétt-
indabrjóta heimsins og nefnir sér-
staklega „þrjú nærtæk dæmi“: Vene-
súela, Filippseyjar og Sádi-Arabíu
vegna hernaðar þess ríkis í Jemen.
En skyldu þetta virkilega vera nær-
tækustu dæmin fyrir Íslendinga?
Hvernig væri að hafa allavega með í
spyrðunni, Bandaríkin, sem eru hinir
raunverulegu bakhjarlar árás-
arstríðsins í Jemen, eða þá Tyrki sem
fram á þennan dag hafa framið ein-
hverja hræðilegustu stríðsglæpi síð-
ari tíma innan eigin landamæra og
hafa nú auk þess hernumið Afrin,
Kúrdabyggð í norðvesturhluta Sýr-
lands, og bera ábyrgð á þjóðern-
ishreinsunum þar. Eru Bandaríkja-
menn ekki nokkuð nærtækir til að
gagnrýna og svo Tyrkir, báðar þjóðir
í góðu kallfæri á fundum í góðravina-
félaginu NATÓ? Þetta yrði hins veg-
ar illa séð og því ekki eins gaman að
koma á fundina með vinunum eftir al-
vöru gagnrýni í þeirra garð.
Svo er náttúrlega hitt, að þegar
gengið er ögn út fyrir þægindaramm-
ann gerast framangreindar mótsagn-
ir ágengar. Þá þarf að horfa á veru-
leikann og leggja á hann sjálfstætt
mat. Horfast til dæmis í augu við að í
júlí komst rannsóknarnefnd á vegum
alþjóðaeftirlitsstofnunarinnar með
eiturvopnum, OPCW, að þeirri niður-
stöðu að enginn fótur væri fyrir
framangreindri
„eiturefnaárás
Sýrlands-
stjórnar“ fyrr á
árinu. Ein-
hverra hluta
vegna fór lítið
fyrir þessum
fréttum í vest-
rænum fjölmiðlum, þar á meðal okk-
ar. Með öðrum orðum, allt uppdiktað
í máli og myndum!
Oft hef ég líka furðað mig á því hve
lítinn áhuga fjölmiðlar hafa sýnt sögu
Krímskagans, á ítrekuðum atkvæða-
greiðslum löngu fyrir innlimun
Rússa, sem gefið hafa vísbendingu
um að meirihlutavilji íbúa Krím hafi
löngum staðið gegn innlimun í Úkra-
ínu. Mér fannst líka skrítin við-
brögðin við tillögu sem ég setti fram
við umræðu um ályktunardrög um
Krím hjá Evrópuráðinu á sínum tíma
þar sem sagði að virða bæri al-
þjóðalög um landamæri Úkraínu. Ég
hafði lagt til að auk landamæra og
fullveldis Úkraínu bæri að horfa til
lýðræðislegs vilja íbúa Krímskagans.
Mér fannst skrítið þegar fulltrúar
„vinaþjóðanna“ felldu þá viðbót-
artillögu.
Það var kannski skrítið en að sjálf-
sögðu skiljanlegt á sama hátt og það
er skiljanlegt hvers vegna NATÓ og
Evrópusambandið telja að eitt skuli
gilda um afskipti stórvelda innan
landamæra Úkraínu, annað innan
landamæra Sýrlands.
En átakaminnst er náttúrlega að
halda sig í hinum einfalda heimi. Þá
þarf maður heldur ekki að hafa
áhyggjur af því hvað það þýðir að
vera fullvalda þjóð.
Einfaldur er heimurinn
fyrir Nató-Ísland
’En átakaminnst er nátt-úrlega að halda sig í hin-um einfalda heimi. Þá þarfmaður heldur ekki að hafa
áhyggjur af því hvað það
þýðir að vera fullvalda þjóð.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
AFP
Poppfræðingurinn Arnar Eggert
Thoroddsen er mættur til Bristol
á 54. ráðstefnu RMA (Royal Musical
Association) og greinir frá því á
Facebook.
„Þrátt fyrir vissa slagsíðu í efnis-
tökum, a.m.k. gagnvart poppara
eins og mér, er slatti af áhugaverðu
efni sem ég tengi við. Kalda stríðið,
tónlist og kvikmyndir, femínískar
stúdíur, tónlist og samfélagslegar
hræringar og líka nýstárlegir vinklar
á sígild tónlistarfræði, eins og rann-
sókn á samfélagi tónlistarmanna í
London á 17. öld.
Vinur minn Justin Williams,
fræðimaður við Bristolháskóla, mun
þá stýra málþingi um græm og hipp-
hopp rannsóknir í Bretlandi, svið
sem er að vaxa undir hans hand-
leiðslu og Bristol eðlilega frábær
vettvangur fyrir slíkt, sé litið til
framlags hennar til dægurtónlist-
ararfsins,“ segir hann en sjálfur mun
hann greina frá niðurstöðum dokt-
orsritgerðar sinnar.
Upplýsingafulltrúinn
Lára Björg Björns-
dóttir tísti um kökur:
„Sjónvarpskaka er
besta kaka í alheim-
inum. Þetta er stað-
reynd og ekki til umræðu.“
Tónlistarmaðurinn Pétur Jóns-
son tísti um annarskonar mat: „Ég
eldaði svo heitan sterkan núðlurétt
í kvöld að ég þurfti í sturtu beint eft-
ir hann. Það er eitthvað.“
AF NETINU
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Vasi antiq brass
22.900
Spegill 80cm
18.900
Hliðarborð á hjólum
120.000
Viðar hliðarborð 38.500
Ljós 35.900