Morgunblaðið - 30.10.2018, Page 6

Morgunblaðið - 30.10.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Við hönnun nýja Kringlusvæðisins er tekið tillit til hugmynda um að setja Miklubraut í stokk. Þá er gert ráð fyrir biðstöðvum fyrir borgarlínu vestan og norðan Kringlunnar. Fasteignafélagið Reitir fer með hönnun Kringlusvæðisins. Efnt var til hugmyndasamkeppni um framtíð svæðisins og urðu Kanon arkitektar hlutskarpastir. Greint var frá vinn- ingstillögunni í nóvember í fyrra. Friðjón Sigurðarson, fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Reit- um, segir að vinna við nýtt aðal- skipulag fyrir svæðið sé í gangi. Eftir það taki við gerð deiliskipulags vegna fyrstu áfanga uppbyggingar- innar. Nú sé miðað við 160 þúsund fermetra af nýju húsnæði, þar með talið 850 íbúðir. Til samanburðar var rætt um 500-600 íbúðir í fyrrahaust. Meta þörf fyrir bílastæði Við skipulagsvinnuna hafi verið haft samráð við fjölda aðila, meðal annars Vegagerðina, Veitur, rekstraraðila og fasteignaeigendur. „Jafnframt hefur verið unnin greining á umferð svæðisins og bíla- stæðaþörf. Hvort tveggja er mjög ákvarðandi varðandi hversu mikið og hvernig er hægt að byggja,“ segir Friðjón og upplýsir að þessi undir- búningsvinna hafi reynst tímafrekari en áætlað var. Þó sé ekki víst að það tefji fyrir uppbyggingu á svæðinu. Meðan rammaskipulagið var í vinnslu hafi farið fram sveitar- stjórnarkosningar. „Þá kemur fram sú hugmynd að setja Miklubraut í stokk. Það breytir forsendum verkefnisins. Borgarlínan hefur jafnframt færst nær veruleika en þegar lagt var af stað í þetta verk- efni,“ segir Friðjón. Hann bendir á að það geti borgað sig fyrir Reiti að tímasetja uppbygg- inguna með hliðsjón af þessum nýju innviðum, jafnvel þótt Kringluverk- efnið sé alveg óháð slíkum innviðum. Enginn vilji mislæg gatnamót Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, tekur undir þetta og segir að með því að aflétta veghelgun við gatnamót Miklubrautar og Kringlu- mýrarbrautar skapist ný tækifæri til uppbyggingar á svæðinu. „Þetta verður þá mun meira gæðasvæði fyrir íbúðir en ef Mikla- brautin er ofanjarðar. Þarna hefur frekar verið gert ráð fyrir atvinnu- húsnæði en íbúðum. Með stokk skap- ast því færi á nýrri landnotkun. Fyrir okkur og Kringlusvæðið vilj- um við gjarnan sjá þennan stokk verða að veruleika. Ég trúi því ekki að nokkur vilji byggja mislæg gatna- mót upp í loftið á mörkum Miklu- brautar og Kringlumýrarbrautar,“ segir Guðjón. Hann segir aðspurður að hug- myndir um hótelturn til norðurs við Kringluna hafi verið endurmetnar. Nú sé til skoðunar að hafa jafnvel tvö hótel sitt í hvorri byggingunni. Guðjón segist aðspurður vonast til að framkvæmdir hefjist að ári gangi skipulagsvinna og samningar við hagsmunaaðila eftir og að fyrsta áfanga ljúki fyrir árslok 2021. Lík- legast verði byrjað á að rífa gamla hús Morgunblaðsins og prentsmiðj- una til að rýma fyrir nýbyggingum. Raunhæft sé að uppbyggingu á svæðinu verði lokið árið 2030. Friðjón segir að jafnframt því sem ytri forsendur verkefnisins séu að breytast sé áætluð þörf fyrir at- vinnuhúsnæði einnig í skoðun. Um 20% af flatarmáli Kringlunnar fari nú undir veitingasölu og afþrey- ingu. Erlendis sé víða miðað við að hlutfallið sé um 40% í nýjum versl- unarmiðstöðvum. Horft sé til þess að netverslun sé að sækja í sig veðrið. Því sé spáð að til dæmis fataversl- anir muni ekki þurfa jafn marga fer- metra og í dag. Friðjón segir aðspurður að upp- byggingin miði við um 3.600 bíla- stæði á svæðinu en stæðin séu nú um 2.400. Svæðið verði afar vel tengt m.t.t. samgangna. Það skapi tæki- færi fyrir íbúa til að vera án einka- bíls. Verði notkun borgarlínu um- fram spár muni þörfin fyrir einkabíl minnka að sama skapi. Teikning/Reitir Nýtt Kringlusvæði Áformað er að byggja fyrst þar sem gamla Morgunblaðshúsið stendur nú (hægra hornið, niðri). Hanna nýja Kringlu með hliðsjón af stokkalausn  Reitir horfa til borgarlínu varðandi fjölda bílastæða Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að áhrifin af veikingu krónunnar séu ekki komin fram að fullu í verðbólgunni. Bæði á verð inn- fluttrar vöru eftir að hækka og svo verð á þjónustu eftir því sem aðföng verða dýrari í innkaupum. Þetta segir Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Bankinn spái 3,5% verðbólgu í byrj- un næsta árs. Gangi það eftir verður það mesta verðbólga sem mælst hefur á Íslandi síðan í janúar 2014. Verðbólg- an hélst samfleytt undir 2,5% mark- miði Seðlabankans frá febrúar 2014 og fram í mars 2018. Hún hefur síðan verið undir og yfir því markmiði en aldrei yfir 3%. Samkvæmt nýjum töl- um mældist 2,8% verðbólga á Íslandi í október. Hún var 2,7% í september. Jón Bjarki segir aðspurður að þótt farið sé að hægja á hækkunum hús- næðisverðs hafi það enn áhrif til hækk- unar á verðbólgunni. Undanfarið hafi hækkunin verið borin uppi af hækkun á landsbyggðinni, einkum í jaðri höfuð- borgarsvæðisins og á Akureyri og ná- grenni. „Ég tel að hægari hækkun á íbúðamarkaði dugi ekki til að vega á móti áhrifum gengislækkunarinnar og að verðbólgan verði um 3,5% í byrjun næsta árs. Til skemmri tíma hefur gengislækkunin vinninginn.“ Hafa þegar hækkað verð „Hún kemur hratt inn í ýmsa liði vísitölu neysluverðs. Það er greinilegt að innflytjendur og smásalar innfluttra vara hafa margir þegar hækkað verð, eða hyggja á það fyrr en seinna. Það gerist jafnan fyrr en ella ef sú skoðun er almenn að gengislækkunin sé ekki sveifla heldur komin til að vera. Þau áhrif eru hraðari og sterkari til skamms tíma en breyttur taktur á íbúðamarkaði.“ Jón Bjarki telur aðspurður horfur á að verðbólgan muni ekki aftur fara undir 2,5% markmið Seðlabankans fyrr en eftir mitt næsta ár. „Framhaldið veltur þá að miklu leyti á niðurstöðu kjarasamninga. Þegar lengra er liðið á næsta ár held ég að hvorki íbúðaverðið né innflutnings- verðlag muni ýta upp verðbólgu. Þá ekki nema krónan veikist frekar.“ Gústaf Steingrímsson, hagfræðing- ur á Hagfræðideild Landsbankans, segir mega gera ráð fyrir að áhrifin af veikingu krónunnar haldi áfram að koma fram í næstu mælingum. Það sé tímatöf í áhrifunum. Verðbólga í viðskiptalöndum „Við gerum ráð fyrir að verðbólga muni aukast og að hún fari upp fyrir 3% nú í nóvember. Svo er spurning hver útkoma kjarasamninga verður. Ef samið verður um launahækkanir sem samrýmast ekki verðbólgumark- miðinu má gera ráð fyrir að verðbólga fari vaxandi af þeim sökum,“ segir Gústaf og bendir á að verðbólga í við- skiptalöndum hafi farið vaxandi, sem leggist á sveif með veikingu krónunn- ar. Hann segir aðspurður Landsbank- ann gera ráð fyrir að fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækki umfram verðbólgumarkmið á næsta ári. Raunverð er nú sögulega hátt. Launaþróun mesti óvissuþátturinn  Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir launaþróun geta orðið ráðandi í verðbólguþróun næsta árs  Veiking krónu og húsnæðisliðurinn verði þá ekki ráðandi  Landsbankinn spáir meiri verðbólgu Verðbólguþróun frá janúar 2012 til okt. 2018 7% 6% 5% 4% 3% 2% 1% 0% 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 Heimild: Seðlabanki Íslands Tólf mánaða hlutfallsbreyting á vísitölu neysluverðs Verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands: 2,5% 29. okt. 2,8% Leiklistarnámskeið Fyrir alla aldurshópa (ekki undir 16 ára). Kennsla í góðri raddbreitingu og tali. Spennandi spuna-leikþættir sem auka hugmyndaflug og sköpun. Kennsla hefst þriðjud. 6. nóv. kl. 17.30 og alla þriðjud. út nóv. Ferðaleikhúsið, Light Nights á Baldursgötu 37, 101 Rvk. Uppl. og innritun: theatre@vortex.is eða í síma 551 9181. Kristín G. Magnús, leikkona, leikstjóri og leikritshöfundur. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Hafnarfjarðarbær, fyrir hönd Arn- arhrauns 50 íbúðafélags hses, hefur gengið til samninga við Fram- kvæmdafélagið Arnarhvol ehf. um byggingu á 6 íbúða búsetukjarna ásamt sameiginlegu rými. Öll sérbýlin eru hönnuð sam- kvæmt hugmyndafræði algildrar hönnunar, hönnun fyrir alla – að- gengi fyrir alla. Í því felst að hanna góðar lausnir með jafnrétti og vellíð- an alls fólks í fyrirrúmi og mun verk- taki skila af sér fullbúnu húsnæði að utan sem innan að því er fram kem- ur í fréttatilkynningu. Fram- kvæmdir hefjast á næstu dögum og eru verklok áætluð í mars 2020. Tillaga Arnarhvols byggist á sam- starfi við Svövu Jónsdóttur arkitekt og er hér um að ræða 6 íbúða sérbýli með fullu aðgengi fyrir fatlaða og 1 sérbýli fyrir starfsfólk heimilisins. Þetta verkefni er liður í áætlun sveitarfélagsins um fjölgun heimila fyrir fatlað fólk. „Framkvæmdir eru loks að hefjast við nýjan búsetu- kjarna og óhætt að segja að lang- þráðum áfanga sé náð. Það er ánægjulegt að hugsa til þess að inn- an 18 mánaða muni ný og falleg heimili bíða nýrra íbúa sem þurfa svo sannarlega á þeim að halda,“ er haft eftir Rósu Guðbjartsdóttur, bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar. Byggja búsetu- kjarna í Hafnarfirði  Framkvæmdir hefjast á næstu dögum Ljósmynd/aðsend Samkomulag Rósa og Karl Þráins- son, framkvæmdastjóri Arnarhvols. „Við fengum 980 tonn í þremur hol- um. Hvert hol tók um þrjá og hálfan tíma og við vorum um 17 klukku- tíma að veiðum,“ segir Runólfur Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni AK, í frétt á vef Síldar- vinnslunnar hf. Skipið kom með 980 tonn af norsk-íslenskri síld til Nes- kaupstaðar í gærmorgun. Er haft eftir Runólfi að veiðiferð- in hafi gengið afar vel. „Veiðiferðin var því vel lukkuð og síldin er góð og rosalega falleg. Við vorum að veiðum í Smugunni alveg austur við norsku línuna. Veiðisvæðið var um það bil 380 mílur austur af Dala- tanga.“ Beitir NK fór á miðin í gær en Börkur NK er enn í höfn eftir að hafa landað góðum afla fyrir helgina, að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar. Segir þar að ljóst sé að brátt muni veiði á norsk-ís- lensku síldinni ljúka hjá skipum út- gerðarinnar, en síðan muni þau væntanlega snúa sér að veiðum á ís- lenskri sumargotssíld. Fengu 980 tonn af síld í þremur holum í Smugunni  Veiðum á norsk-íslenskri síld brátt lokið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.