Morgunblaðið - 30.10.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018
Sigurður Már Jónsson blaðamað-ur bendir í pistli á mbl.is á að
sósíalísk jaðarviðhorf eru að fær-
ast inn í meginstraum verkalýðs-
og launabaráttu hér á landi.
Sigurður Mársegir: „Umræð-
an hefur orðið
harðari og slag-
orðakenndari og
við sjáum ýmsa
takta sem þekktir
eru úr ömurlegri
sögu sósíalismans.
Litlu skiptir þó dæmin séu mörg
um skipbrot þeirrar stefnu og
mörg nýleg eins og við sjáum af af-
drifum þjóðfélaga eins og Vene-
súela, Níkaragva, Simbabve, Norð-
ur-Kóreu eða Kúbu og eru þá fáein
upptalin. Uppgangur hægri
mannsins Jair Bolsonaro í Brasilíu
skýrist af einföldum samanburði
við hrun samfélagsins í Venesúela.
Það er nóg fyrir Jair Bolsonaro að
segja Venesúela og sósíalismi og
kjósendur þyrpast til hans. Al-
menningur í Brasilíu óttast fátt
meira en að lenda í þeim hörm-
ungum sem nágrannar þeirra eru
nú að upplifa og hefur verið rakið
hér í nokkrum pistlum. Þetta virð-
ist þó fara framhjá fréttaskýr-
endum Ríkissjónvarpsins. Rétt er
að geta þess að þeir sem nefna
Venesúela geta gengið að því vísu
að vera hent út af spjallhópi sósíal-
ista hér á Íslandi. Svo mikil er
virðing þeirra fyrir lýðræðislegri
umræðu.“
Lýðræði og sósíalismi hafa aldr-ei farið saman. Sósíalismi hef-
ur heldur aldrei verið ávísun á
kjarabætur, þvert á móti fylgir
honum jafnan fátækt og harðræði.
Þess vegna vekur furðu að hér álandi stígi nú fram fólk sem
hampar sósíalisma og lætur sem
hann sé lausnin á vanda láglauna-
fólks.
Sigurður Már
Jónsson
Kjarabætur, lýð-
ræði og sósíalismi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Eldfjallafræðingar í Manchester á
Englandi hafa þróað nýja gerð
myndavélar og aðferðir sem þeir
telja að geti m.a. hjálpað við að
draga úr áhrifum eldfjallaösku á
flugumferð. Þetta kemur fram í frétt
frá Manchester-háskóla.
Þróuð var ný gerð myndavélar.
Með henni er hægt að mæla magn
og hraða öskukorna úr gosmekki.
Mælt er samspil öskukornanna við
sólarljósið og sérstaklega hvernig
þau breyta skautun þess. Nýja ösku-
myndavélin AshCam gerir mönnum
kleift að rannsaka þetta með einföld-
um og auðveldum hætti.
Mike Burton, prófessor í eld-
fjallafræði við Manchester-háskóla,
sagði að eldfjallaaska væri aðalafurð
sprengigosa og gæti ógnað heilsu
fólks og valdið skemmdum á ýmsum
mannvirkjum. Sem kunnugt er get-
ur mikið öskufall sligað byggingar
þannig að hætta skapist fyrir fólk.
Askan getur líka valdið fólk vanlíð-
an, ekki síst þeim sem glíma við
sjúkdóma í öndunarfærum.
Vísindamennirnir sem þróuðu
nýju myndavélina og aðferðirnar
heimsóttu Santiaguito í eldfjallinu
Santa Maria í Gvatemala sem gýs
reglulega og prófuðu nýja búnaðinn.
AshCam-myndavélin þykir vera
lítil og létt og tiltölulega ódýr.
Ný myndavél til að meta eldfjallaösku
Skoða samspil öskukorna við sólar-
ljósið til að meta ösku í gosstrókum
Morgunblaðið/RAX
Eyjafjallajökull Öskugos.
www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
faglega þjónustu,
Klónun hunda hefur ekki verið til
umræðu innan Hundaræktarfélags
Íslands og félagið því ekki mótað sér
stefnu eða afstöðu til málsins, segir
formaður félagsins, Herdís Hall-
marsdóttir.
Ólafur R. Grímsson, fyrrverandi
forseti, greindi frá því um helgina að
Sámur, forsetahundurinn fyrrver-
andi, yrði klónaður. Dorrit Moussa-
ieff, fyrrverandi forsetafrú, hefur
sent sýni úr Sámi til Texas í Banda-
ríkjunum, þar sem Sámur verður
klónaður þegar hann er allur. Að-
gerðin kostar um 6 milljónir króna.
Herdís segir að umræðan hafi
ekki verið áberandi hjá hundarækt-
arfélögum eða Alþjóðlegum sam-
tökum hundaræktarfélaga. „Hins
vegar gæti vel verið að einhver um-
ræða ætti sér stað í vísindanefnd Al-
þjóðlegu hundaræktunarsamtak-
anna FCI, en hún hefur ekki verið af
þeirri stærðargráðu að hún hafi vak-
ið athygli utan vísindanefndanna,“
segir Herdís.
Jafnframt tekur hún fram að
spurningin um réttmæti klónunnar
sé flókin og umræðan veki fleiri
spurningar en svör: „Hvernig er sá
einstaklingur, sem er klónaður,
skráður í ættbók? Hvernig samrým-
ist það markmiði hundaræktunar?
Ræktendur eiga að vera trúir rækt-
unarstefnu og markmiðið er að
reyna að betrumbæta hundakynið
og rækta einstaklinga sem eru nær
ræktunarmarkmiði hvers hunda-
kyns um sig og að hundarnir séu lík-
amlega og andlega heilbrigðir.
Hvernig þjónar klónun þessu meg-
inmarkmiði hundaræktunar? Getur
það aðstoðað við að ná þessu mark-
miði eða gæti það verið skaðlegt?
Þetta er umræðan sem þarf að fara
fram innan vébanda okkar og á al-
þjóðlegum vettvangi áður en tekin
er afstaða til þess hvort þetta sé
tækni sem ræktendur vilja nýta sér,
og ef svo er einnig í hvaða mæli og á
hvaða forsendum,“ segir Herdís.
Klónun hefur ekki
verið í brennidepli
Klónun Sáms vekur spurningar
Ljósmynd/HRFÍ
Hundar Herdís Hallmarsdóttir, for-
maður Hundaræktarfélags Íslands.