Morgunblaðið - 30.10.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 30.10.2018, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018 Sigtryggur Sigtryggson sisi@mbl.is Borgarráð hefur heimilað að gengið verði til samninga um sölu á Alli- ance-húsinu á Grandagarði 2 og tengdum byggingarrétti til Alliance þróunarfélags. Söluverðið er 900 milljónir króna. Félagið hyggst byggja upp á reitnum hótel, litlar íbúðir til útleigu og margvíslega þjónustustarfsemi. Reykjavíkurborg festi kaup á húsinu árið 2012 fyrir 340 milljónir. Ytra byrði hússins er friðað og gerði borgin húsið upp að utan. Í ágúst sl. var Grandagarður 2 auglýstur til sölu og áhugasömum gefinn frestur til þess að skila inn tillögum til 3. október sl. Þrír aðilar skiluðu inn til- lögum. Verðtilboðin voru eftirfarandi: Alliance þróunarfélag 900 milljónir, Skipan ehf. 650 milljónir og Átak sf. og Habilis ehf. 300 milljónir. Tilboð Alliance þróunarfélags var metið áhugaverðast af dómnefnd, út frá bæði verði og hugmyndum um starf- semi og þróun á reitnum til fram- tíðar. Að Alliance-hópnum standa fjárfestinga- og þróunarfélögin M3 Capital, eigandi Örn Kjartansson, og Eldborg Capital, eigandi Brynjólfur J. Baldursson. Hönnuðir að tillögu þeirra voru THG arkitektar og Arg- os arkitektar. Með teyminu unnu einnig Sögusafnið og veitingastaður- inn Matur og drykkur, sem eru leigj- endur í húsinu. M&D og Sögusafnið eru í eigu sömu fjölskyldu. Elma Backman er í forsvari fyr- ir M&D og faðir hennar Ernst Back- man er í forsvari fyrir Sögusafnið. Viðbygging við Alliance-húsið verður rifin. Þar er nú starfrækt norðurljósasýning. Verði hlið að Grandanum „Alliance-reiturinn er fyrsti við- komustaðurinn á Grandanum og má segja að hann sé eins konar „hlið“ (e. gateway) inn á sjálft Grandasvæðið,“ segir í tillögum hópsins. Alliance þróunarfélag hyggst skipuleggja jarðhæð austurbygg- ingar (íbúðarhús við hlið Mýrargötu 26) sem menningar- og listaaðstöðu. Göngugatan þar fyrir framan verður nefnd Listagatan. Jarðhæðinni verð- ur skipt upp í 3-5 minni bil þar sem leigð verða út pláss til listamanna þar sem möguleiki er á að sameina vinnustofu og verslun. Á efri hæðum hússins er gert ráð fyrir allt að 10 litlum íbúðum sem verða leigðar út. Á jarðhæð norður- byggingar er tækifæri til að bjóða upp á lítil og meðalstór verslunar- og þjónusturými, t.d. fyrir hárgreiðslu- stofu, heilsuverslun, skósmið ásamt annarri þjónustu. Í útfærslu þróun- arfélagsins á reitnum er gert ráð fyr- ir 95 herbergja hóteli. Meginmark- mið er að Alliance-húsið sé aðal- bygging svæðisins og hótelið sé kennt við það. Hönnun hótelsins á að sækja innblástur í sögu svæðisins og þann arkitektúr sem húsið hefur. Viljayfirlýsing við hótelkeðju liggur fyrir um að reka hótel á Alliance- reitnum. Verður það hótel innan dönsku hótelkeðjunnar Guldsmeden sem í dag rekur 9 hótel í Danmörku, Noregi, Berlín og Íslandi (Hótel Eyja Skipholti og fyrirhuguð opnun 2019 Hótel Von Laugavegi 55). Sögusafnið verður rekið áfram í óbreyttri mynd en Matur og drykkur mun færast úr Alliance-húsinu í stærri nýbygginguna (norðurhús). Þá er það hugmyndin að skipu- leggja útsvæðið á Alliance-reitnum sem almenningssvæði sem verði sambland af setusvæði og sýningar- svæði þar sem hægt er að halda ýmsa viðburði. Það mun fá heitið Grandatorg. Í samþykktu deiliskipulagi fyrir svæðið er heimilt að byggja samtals 4.800 fermetra, þar af ofanjarðar 3.300 fermetra og bílakjallari verður 1.400 fermetrar. Í tillögu tilboðsgjafa að deiliskipulagi er gert ráð fyrir að 7.600 fermetra byggingamagni. Gullsmiðshótel og íbúðir á Granda Mynd/THG arkitektar og Argos arkitektar Grandatorg Hugmynd arkitekta að Alliance-húsinu og nýjum byggingum á reitnum. Þetta á að verða viðburðatorg.  Þróunarfélag kaupir Alliance-húsið á 900 milljónir Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is Gríptu tækifærið og fáðu þér nýjan ŠKODA á besta verðinu strax í dag. Hlökkum til að sjá þig! Škodaðu verð 5 ár a áb yr gð fy lg ir fó lk sb ílu m H E K LU að up pf yl ltu m ák væ ðu m áb yr gð ar sk ilm ál a. Þ á er að fin na á w w w .h ek la .is /a by rg d i HEKLA · Laugavegi 1 0-174 · y javík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum Besta Škodaverðið 4.890.000 kr. Škoda Superb Combi Ambition / 2.0 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 5.410.000 kr. 520.000 kr. Afsláttur Besta Škodaverðið 3.790.000 kr. Škoda Octavia Limo Ambition / 1.6 TDI / Dísil / Sjálfskiptur Listaverð: 4.190.000 kr. 400.000 kr. Afsláttur Lögreglan handtók tvo karlmenn í útibúi Landsbankans í Borgartúni í hádeginu í gær. Voru mennirnir, sem voru viðskiptavinir bankans, leiddir út í handjárnum, en þeir eru grunaðir um fjármálabrot. Lögregl- an staðfesti hins vegar við mbl.is að þeir væru ekki grunaðir um tilraun til ráns. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni síðdegir í gær eru menn- irnir í haldi lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á meintri fölsun á íslenskri mynt. „Mennirnir, sem eru báðir er- lendir ríkisborgarar og ekki búsettir hérlendis, voru handteknir í banka- útibúi í Reykjavík í morgun fyrir áverkni starfsmanna bankans,“ seg- ir í tilkynningu lögrelunnar. Starfsfólk bankans kallaði eftir aðstoð lögreglu en mennirnir höfðu þó ekki ógnað starfsfólki heldur þótti hegðun þeirra grunsamleg. Guðmundur Páll Jónsson, lög- reglufulltrúi hjá Lögreglunni á höf- uðborgarsvæðinu, vildi í samtali við mbl.is í gærdag ekki greina frá því hvort málið teygði sig til fleiri landa en Íslands. Tveir menn teknir í banka  Í haldi lögreglu vegna rannsóknar hennar á meintri fölsun á íslenskri mynt Útibú Landsbankinn í Borgartúni en þar voru tveir handteknir í gær. Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.