Morgunblaðið - 30.10.2018, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 2018 25
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bókhald
NP Þjónusta
Býð fram liðveislu við bókanir, reikn-
ingsfærslur o.fl.
Hafið samband í síma 649-6134.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Fundir/Mannfagnaðir
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í
Hveragerði og nýkjörinn formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga, verður gestur
á hádegisfundi SES á morgun, miðviku-
daginn 31. október kl. 12:00, í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Húsið opnað kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi,
1000 krónur.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Stóla jóga kl. 9.30.
Gönguhópur kl. 10.15. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Línu-
dans kl. 13.30. Bíó í miðrými kl. 13.20. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árskógar Smíðar, útskurður, pappamódel með leiðbeinanda kl. 9-16.
Botsía með Guðmundi kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16.
Bónus-bíllinn fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leið-
beinanda kl. 12.30-16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS fræðslu- og
félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45.
Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 535-2700.
Áskirkja Spilum félagsvist í Dal, neðra safnaðarheimili kirkjunnar í
kvöld kl. 20. Allir velkomnir, Safnaðarfélag kirkjunnar.
Boðinn Botsía kl. 10.30. Fuglatálgun kl. 12.30. Brids og kanasta kl. 13.
Teflum saman kl. 13.
Bólstaðarhlíð 43 Yngingarjóga kl. 9-9.50, allir velkomnir. Hjúkrunar-
fræðingur kl. 11-11.30. Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl.
10-10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Bónusrútan kemur kl. 14.40. Leshópur
kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á miðvikudögum og hefst kl. 12.05 í
kirkjunni með hádegistónleikum þar sem okkar ástkæri tenór Kristján
Jóhannsson syngur, boðið verður uppá súpu og brauð í safnaðarsal á
eftir. Enginn aðgangseyrir. Félagasstarfið heldur áfram og gestur okk-
ar á miðvikudaginn er Bjarni Harðarson en fjallar með skemmtilegum
hætti um Skálholt á 18. öld. Kaffi eins og vant er.
Fella- og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12. Félagsstarfið byrjar kl. 13,
sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson er gestur okkar í dag. Hann leikur á saxa-
fón og segir skemmtilegar sögur. Allir hjartanlega velkomnir.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Stólaleikfimi kl. 11. Opin handverks-
stofa kl. 13. Landið skoðað með nútímatækni kl. 13.50. Kaffiveitingar
kl. 14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bútasaumur kl. 9-
12, glerlist kl. 9-12, námskeiðið var að hefjast og enn eru laus pláss.
Áhugasamir hafið samband í síma 411-9450, hópþjálfun með sjúkra-
þjálfara kl. 10.30-11.15, bókband kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16,
opin handverkstofa kl. 13-16. Verið velkomin á Vitatorg, Lindargötu 59,
síminn er 4119450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30/15. Qi gong Sjálandi kl. 9.
Karlaleikfimi Ásgarði kl. 12. Botsía Ásgarði kl. 12.45. Gönguhópur fer
frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bónusrúta fer frá Jóns-
húsi kl. 14.45. Tréskurður / smíði kl. 9 / 13 í Kirkjuhvoli. Línudans í
Kirkjuhvoli kl. 13.30 / 14.30.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Keramik-málun kl. 9-
12. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 13-16. Línudans kl. 13-14.
Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.30. Qigong kl. 10.30-11.30. Gönguhópur
um hverfið kl. 10.30. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 10 stólaleikfimi, kl. 13 handavinna, kl.
13 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 alkort, kl. 14 hreyfi- og jafn-
vægisæfingar, kl. 15 dans.
Grafarvogskirkja Í dag er opið hús í Grafarvogskirkju. Dagskráin er
hefðbundin og byrjar með kyrrðarstund kl. 12. Brauð og súpa í boði
fyrir vægt gjald eftir kyrrðarstundina. Söngstund með Hilmari byrjar
kl. 13. Þórey Dögg Jónsdóttir kemur með fyrirlestur og svo verður
handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja og stundinni lýkur svo
með kaffisopa kl. 15. Verið öll hjartanlega velkomin.
Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Botsía kl. 9.30. Málm-/silfursmíði / kanasta,
tréskurður kl. 13.
Hraunsel Dansleikfimi kl. 9. Qi-gong kl. 10. Föndur í vinnustofu kl. 9-
12. Brids kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45
og hádegismatur kl. 11.30. Brids í handavinnustofu kl. 13, gönguferð
um hverfið með Önnu kl. 13.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Hjá afa kl. 9.30, thai chi kl. 9-10, myndlistarnámskeið hjá
Margréti Z. kl. 9-12, leikfimi kl. 10-10.45, hádegismatur kl. 11.30. Spek-
ingar og spaugarar kl. 12.45-11.45. Listasmiðjan er öllum opin frá kl.
12.30, Kríur, myndlistarhópur kl. 13, brids kl. 13-16, leiðbeiningar á
tölvu kl. 13.10, enska I kl.13-14.30, kaffi kl. 14.30, enska ll kl. 15. Upp-
lýsingar í síma 4112790.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum. Botsía kl. 10 og 16 í dag í Borg-
um. Helgistund kl. 10.30 í Borgum. Leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll
kl. 11 í dag. Sundleikfimi kl. 13.30 í Grafarvogssundlaug. Heimanáms-
kennsla kl. 16.30 í dag. í Borgum.
Neskirkja Krossgötur kl. 13, Óskar Guðmundsson sagnfræðingur:
Það var fyrir hundrað árum. Fullveldisárið 1918 og sagnir af
alþýðufólki. Kaffiveitingar.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja kl.
9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með
leiðbeinanda kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, botsía, spil og
leikir kl. 15.30, tölvu- og snjalltækjakennsla kl. 17. Uppl. í s. 4112760.
Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara verður í kvöld kl. 18.
Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, kennari og prestskona flytur erindi og
Björgvin Franz Gíslason syngur uppáhalds gömlu lögin sín. Matur á
eftir að hætti Lárusar Loftssonar. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í
síma 5667 0110.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn-
um kl.10.30. Pútt í Risinu kl. 10.30. Kvennaleikfimi í Hreyfilandi kl.
11.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Helgistund og dagskrá í kirkjunni kl.
14. Karlakaffi í safnaðarheimilinu kl. 14. Fimmtudaginn 1. nóvember
kl. 14 verður bingó í salnum á Skólabraut. Skráning hafin á jólahlað-
borðið á Hótel Örk sem haldið verður fimmtudaginn 6. desember.
Uppl. í síma 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Leikfimi kl. 13. Bóka-
bíllinn kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til
sölu frá kl. 14.30-15. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Skák kl. 13, allir velkomnir.
Félagslíf
EDDA 6018103019 III
þú það sem
FINNA.is
lauk ekki við dauða föður míns,
þvert á móti hófst þá mín eigin
vinátta við Bárð. Þar var maður
sem ég fann að myndi aldrei
bregðast. Bárður gat virkað
kröfuharður en mestar kröfur
gerði hann þó til sín sjálfs. Hann
hafði yndi af því að afla sér
þekkingar og var mjög vel lesinn
á mörgum sviðum, ekki síst
tækni, vísinda og þjóðmála. Eftir
því sem maður aflaði sér meiri
menntunar sjálfur var Bárður
ætíð hvetjandi fyrirmynd, bæði
vegna lifandi áhuga á viðfangs-
efninu í hvert sinn og kröfu um
að nálgast það með virðingu og
öguðum vinnubrögðum.
Þegar Bárður fór að draga úr
vinnu vegna aldurs gaf hann sér
tíma til að leggja rækt við gam-
alt áhugamál sitt, stærðfræði.
Hann las sér til mikillar ánægju
um talnafræði og las þá jafnt
greinar og bækur frumkvöðla
greinarinnar á 17. öld og fræði
síðari tíma. Hann lék sér síðan
að því að glíma við ýmsar þraut-
ir talnafræðinnar og reyna við
sannanir sumra þeirra, t.d. hvort
unnt væri að finna knappari og
fallegri sannanir en komið hafði
verið fram með á sínum tíma. Ég
fékk að kynnast þessari iðju, því
hann bað mig oft um að aðstoða
sig við að skrifa þetta inn á tölvu
með réttri stærðfræðilegri fram-
setningu og táknum. Hann sagði
mér eitt sitt þegar hann var um
nírætt og ég var að aðstoða
hann, að glíman við stærðfræð-
ina héldi honum við andlega;
þegar hann þyrfti að hætta við
hana myndi honum hrörna.
Bárður sagði þó aldrei skilið við
stærðfræðina, við andlát var ein
eftirlætisbóka hans á náttborð-
inu, bók um talnafræði, „Von
Fermat bis Minkowski“.
Þegar maður lítur um öxl
hálfri öld síðar sér maður hvílík
forréttindi það voru að fá sem
unglingur og áfram á lífsleiðinni
að kynnast manni sem Bárði,
gildum hans, umhyggju og
mannkostum.
Fyrir það mun ég ævinlega
vera þakklátur og minnast hans
með stakri hlýju.
Sigurður Emil Pálsson.
✝ GuðmundaLilja Grétars-
dóttir fæddist á
Akranesi 5. maí
1970. Hún lést 19.
október 2018.
Foreldrar henn-
ar eru Hólmfríður
Gísladóttir kenn-
ari, f. 3.11. 1938, og
Grétar Jónsson,
bóndi að Hávars-
stöðum í Hval-
fjarðarsveit, f. 8.9. 1938.
Lilja átti eina hálfsystur, Sig-
ríði Hildu Radomirsdóttur, f.
18.8. 1968, sammæðra.
Lilja giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum Julio Cesar Gutier-
rez, bónda og rúningsmanni,
Hávarsstöðum þann 3.9. 2004.
Börn þeirra eru: 1) (Jórunn)
Narcisa Gutierrez, nemi, f. 23.9.
2001. 2) Emiliano Elvar Gutier-
rez, f. 2.2. 2004, nemi.
Lilja ólst upp í Ásgarði, Kjós
og að Hávarsstöðum og síðar í
Hafnarfirði.
Ung fékk hún áhuga á land-
búnaðarstörfum, tónlist, hesta-
mennsku og tungumálum. Síð-
ustu árin bættist ljósmyndun við
áhugamál hennar og tók hún
myndir af náttúrunni, hestum
og norðurljósum meðal annars.
Hún gekk í Menntaskólann
við Hamrahlíð og útskrifaðist
þaðan stúdent í des-
ember 1989.
Lilja vann um
skeið í Seðlabanka
Íslands. Hún hóf
nám við Landbún-
aðarháskólann á
Hvanneyri 1991 og
lauk þaðan prófi á
rekstrarsviði bú-
fræði 1992 og á
búfjárræktarsviði
1993.
Frá hausti 1993 til vors 1994
vann hún á búgörðum í Argent-
ínu og Úrúgvæ. Lilja og Julio
kynntust í Úrúgvæ 1994 og hafa
verið saman síðan. Lilja hóf
framhaldsnám við Landbún-
aðarháskólann á Hvanneyri
1994 og lauk þaðan kandídats-
prófi 1997.
Árið 1997 fluttu Lilja og Julio
að Laxárnesi í Kjós og bjuggu
þar til ársins 2000. Á þeim tíma
vann Lilja í fóðureftirlitinu til
ársins 2001. Árið 2000 keyptu
þau hálfa Hávarsstaði og fluttu
þangað. Árið 2002 hóf hún störf
við bókhald Heiðarskóla. Hún
hóf síðan störf hjá Tölvumiðlun,
síðar Advania árið 2006 og vann
þar til dauðadags.
Útför Lilju fer fram frá Hall-
grímskirkju í Hvalfjarðarsveit í
dag, 30. október 2018, klukkan
14.
Við komum þrjár að hausti 1994
að Hvanneyri til að nema fræði í
búvísindum. Útskrifaðar búfræð-
ingar hver á sínu árinu, Lilja elsti
búfræðingurinn frá 1992, hún fór
á svokallaða 5. önn ári síðar. Það
þótti víst öruggast að setja okkur
saman í Eldhúsálmuna við heima-
vistina á Hvanneyri, sem við
nefndum svo Útgarð. Við lifðum í
lystisemdum með heitan pott og
sundlaug í bakgarðinum. Kynnt-
umst við smátt og smátt og margt
var skrafað á frystikistunni á
ganginum. Lilja hafði farið í mikla
ævintýraför til Suður-Ameríku og
náði í þennan afbragðsmann sem
Julio er. Við vorum með sameig-
inlega eldunaraðstöðu og voru oft
framandi réttir reiddir þar fram
hjá þeim skötuhjúum, með
ógleymanlega kryddflösku sem
var þeim ómissandi hluti af elda-
mennskunni. Ekki má gleyma
„mate“ sem þau drukku úr skrítn-
um bolla úr náttúrulegum efnum,
hvort það var tré eða leður saman
í bland, en innihaldið var einhvers-
konar te ættað frá Suður-Amer-
íku. Julio var að læra íslenskuna,
því eina annað erlenda tungumálið
sem hann kunni var portúgalska.
Honum gekk vel að læra íslensku
og var furðufljótt farinn að leika
sér með hana enda var Lilja af-
bragðsíslenskukennari. Það var
gott að geta leitað til hennar með
yfirlestur á verkefnum og ritgerð-
um því hún var með íslenska mál-
fræði á hreinu, tungumál lágu
fyrir henni eins og opin bók. Lilja
var í lúðrasveitinni Svaninum og
hafði unun af þeim félagsskap.
Hún hafði klarínettið með sér á
Hvanneyri og spilaði oft fyrir
okkur í Útgarði. Á 1. des.-hátíð á
Hvanneyri settum við upp atriði
þar sem Lilja stjórnaði bjórflösk-
ublæstri okkar hinna og spiluðum
við lagstúf, þar sem hver og ein
hafði eina flösku (ein nóta). Ým-
islegt var brallað á þessum þrem-
ur árum á Hvanneyri, meðal ann-
ars skelltum við okkur öll deildin í
siglingu niður Hvítá og þá tók
hún mömmu sína með og Julio, en
hann var hluti af hópnum. Lilja
hafði mjög sterkar og ákveðnar
skoðanir sem enginn gat hnikað.
Hún notaði tölvu sem ekki var pc
og ekki apple og mjög fáir könn-
uðust við. Hún var mjög klár á
tölvusviðinu og þar áttum við
ekki séns í hana. Sveitin hennar
átti stóran sess í hennar hjarta,
dýrin voru henni mikils virði og
er ógleymanlegur hesturinn
hennar hann Svanur. Svo fór
einnig að hún settist að í sveitinni
sinni þar sem hún undi hag sínum
vel með Julio og börnunum þeirra
tveim. Við sendum þeim innilegar
samúðarkveðjur á þessum erfiðu
tímum.
Laufey Bjarnadóttir
og Jórunn Svavarsdóttir.
Lilja Grétarsdóttir