Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.10.2018, Qupperneq 10
VETTVANGUR 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.10. 2018 Þótt virða beri öll lög í landinujafnt gildir ekki ósvipað umþau og dýrin í Dýrabæ Or- wells, sem sum voru jafnari en önnur, að sum lög virða menn frek- ar en önnur. Tvennt getur helst stuðlað að því að einstaklingar sem hneigjast til lögbrota haldi aftur af brotavilja sínum: Annars vegar öflugt eftirlit, þannig að erfitt sé að komast upp með lögbrot, og hins vegar þung viðurlög, þannig að dýrkeypt sé að vera gómaður. Þó að hægrimenn gangist fús- lega við andúð á ónauðsynlegum reglum og skrifræði er það mikill misskilningur ef einhver heldur að hægristefna gangi út á frumskóg- arlögmál þar sem reglur eru hvorki settar né þeim framfylgt. Öðru nær. Í frjálsu samfélagi er bæði óhjákvæmilegt og sjálfsagt að þegnarnir komi sér saman um alls konar leikreglur og fylgi þeim fast eftir. Ljót dæmi Við eigum því láni að fagna að hér á Íslandi hefur tekist ágæt mála- miðlun um leikreglur á vinnumark- aði, þar sem saman fara annars vegar töluverður sveigjanleiki í þágu fyrirtækja og hins vegar fremur sterk réttindi starfsólks. Það er allra hagur að þeim rétt- indum sé framfylgt af fyllstu ein- urð. Upplýsingar og vísbendingar í nýlegum Kveiksþætti á RÚV um forkastanlega meðferð á erlendu starfsfólki voru sláandi. Ég er að vísu sannfærð um að sú mynd sem dregin var upp í þættinum sé ekki dæmigerð fyrir íslenskan vinnu- markað; ég tel að atvinnurekendur fari almennt ekki á svig við reglur um kaup og kjör þó að til séu und- antekningar á því. Einnig ber að hafa í huga að sum fyrirtækjanna sem fjallað var um hafa gert at- hugasemdir við umfjöllunina og fullyrða að hún hafi ekki verið rétt- mæt. En þó að aðilar kunni að eiga sér málsbætur er það ekki aðal- atriðið hér heldur hitt, að mark- miðið verður að vera að uppræta brot á þessu sviði, því að þau vega að mikilvægum grundvallarrétt- indum fólks. Það hefur raunar legið fyrir að gera þurfi bragarbót á þessum málum og stjórnvöld hafa þegar stigið slík skref. Síðastliðið vor var lögum breytt til að sporna gegn fé- lagslegum undirboðum og nú í september samþykkti ríkisstjórnin tillögu félagsmála- ráðherra um aukið samstarf á milli opinberra aðila í þeim sama til- gangi. Þá mun dómsmálaráðherra einnig í haust kynna aðgerða- áætlun gegn man- sali. Það þarf því enginn að velkjast í vafa um að stjórnvöld taka þessi mál alvarlega. Nokkrar hugmyndir Af umræðunni að dæma eru fyrstu viðbrögð flestra á þann veg að herða þurfi eftirlit til að framfylgja betur gildandi reglum. Það er vissulega mikilvægt en ég tel að það þurfi einnig að huga að hinu atriðinu sem nefnt var í upphafi þessarar greinar: hvort nógu dýr- keypt sé að vera gómaður. Í því sambandi gætu ýmsir aðilar lagt sitt af mörkum. Upp í hugann koma nokkrir möguleikar sem ég ætla að leyfa mér að kasta hér fram til umhugsunar án þess að nein sérstök úttekt eða lög- fræðileg skoðun liggi að baki þeim: Að bankar og aðrir fjármögnunar- aðilar settu það sem skilyrði fyrir fjármögnun að brot gegn rétt- indum starfsfólks hefðu í för með sér rétt til að fella niður alla fyrir- greiðslu, án fyrirvara. Að sveitar- félög settu það sem skilyrði fyrir byggingarleyfi að brot á réttindum starfsfólks hefðu í för með sér um- svifalausa ógildingu leyfisins (þannig að framkvæmdir myndu stöðvast). Að aðilar sem gefa út starfsleyfi settu það sem skilyrði að brot á réttindum starfsólks hefðu í för með sér tafarlausa sviptingu starfsleyfis. Að lögum yrði breytt á þann hátt að launa- greiðendur sem hlunnfara starfs- menn um lögbundin kjör sín, hvaða nafni sem þau nefnast, yrðu sekt- aðir um t.d. þrefalda þá fjárhæð. Enn skal áréttað að framangreint er vangaveltur og ein- göngu settar fram til mögulegrar skoð- unar og umræðu, en breytingar í þessa veru myndu styrkja keðjuábyrgð fyrir- tækja til muna. Lykilatriði er að þótt opinbert eftirlit sé mikilvægt vega viðurlögin einnig þungt á metunum. Og ef aðilar eiga yfir höfði sér nógu harkaleg viðurlög, á borð við tafarlausa stöðvun á starf- semi og sviptingu leyfa, er ekki ólíklegt að þeir sem fjármagna þá muni í auknum mæli sjá sjálfir um það eftirlit og aðhald sem skatt- greiðendur þyrftu annars að borga opinberum stofnunum til að sinna. Það yrði skilvirk niðurstaða í þágu samfélagsábyrgðar og bættra við- skiptahátta. Það verður að vera dýrkeypt að brjóta á fólki ’Markmiðið verð-ur að vera aðuppræta brot á þessusviði, því að þau vega að mikilvægum grundvallarrétt- indum fólks. Úr ólíkum áttum Þordís Kolbrún R. Gylfadóttir thordiskolbrun@anr.is Morgunblaðið/Ómar Easy2Clean Mött málning sem létt er að þrífa Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Úrval af nýjum vörum! Góð g jöf fyrirmatgæðinga SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 16:00 í Hörpu jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.